Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 73
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 73
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af AJ Power
rafstöðvum:
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Áburðaráætlanir í jólabókaflóðinu
Ýmislegt skemmtilegt lesefni
stendur mönnum til boða um
þetta leyti árs nú sem endranær
þó ekki komist allt á topplistana.
Áburðarsalar eru að gefa út sínar
bækur um þessar mundir þar sem
hægt er að fræðast um framboð
áburðar næsta vors.
Að mörgu er að hyggja þar sem
úrvalið er fjölbreytt og útfærslur
allnokkrar, auk þess sem áburður
er stór kostnaðarliður fyrir bændur.
Þegar úrvalið er mikið er ekki
síður þörf á að leggja niður fyrir sig
hver afraksturinn á að vera, hvaða
þættir eiga að vera ráðandi hverju
sinni og þannig verði jafnvægi
milli kostnaðar og væntinga.
Því er mikilvægt að vanda val
áburðartegunda, skipuleggja
áburðarnotkun vel og taka tillit til
ólíkra eiginleika, ræktunarsögu og
fyrirhuguð not túna. Mikilvægt er að
ná sem bestri nýtingu búfjáráburðar
svo notkun á tilbúnum áburði verði
markvissari og sú auðlind sem finnst
í búfjáráburði nýtist vel.
Meira er betra í upplýsingum
Hægt er að meta hvað mikið þarf
af hverju áburðarefni á tiltekið tún
og er það gert í áburðaráætlunum.
Nákvæmni slíks mats fer eftir þeim
upplýsingum sem liggja fyrir og
eftir því sem þær eru meiri, því
betri eru forsendurnar til að ákvarða
áburðarþarfirnar og þar með fæst
markvissari áætlun. Best er að fyrir
liggi áburðargjöf og uppskera fyrri
ára sem og niðurstöður hey- og
jarðvegsefnagreininga auk grunn
jarðvegsgerðar. Auk þess skiptir
máli að vita ræktunarsöguna, það
er aldur og ástand ræktunarinnar og
hvaða tegundir eru ríkjandi. Góð
áburðaráætlun tekur mið af öllum
fyrirliggjandi upplýsingum með
það að markmiði að tryggja góðan
heyfeng án þess að gengið sé á
næringarefni í jarðvegi. Ef eitthvað
af ofantöldum upplýsingum eru
ekki til staðar er unnið út frá því
sem er þekkt og hugað að því að
auka söfnun upplýsinga jafnt og þétt.
Vert er að benda á að fleira þarf
til en áburð ef vonir um mikla og
góða uppskeru eiga að rætast. Ef
við sleppum þáttum sem við ráðum
ekki við eins og veðurfari þá sitja
eftir mikilvæg atriði sem verða að
vera í lagi eins og t.d. sýrustig og
framræsla ef ræktun á að gefa af sér
eins og kostur er.
Mikilvægt er að hafa í huga þá
áhrifaþætti sem spila inn í góðan
árangur og áburður gegni þar
mikilvægu hlutverki. Markmið
með áburðaráætlun eru að hámarka
magn og gæði uppskerunnar, út frá
kostnaði eða öðrum forsendum sem
hver og einn bóndi leggur upp með.
Bændur eru hvattir til að nýta
sér áburðarráðgjöf RML og aðra þá
ráðgjöf sem þörf er á. Við leggjum
okkur fram að vinna af fagmennsku
og framsækni fyrir þig.
Jarðræktarráðunautar RML
Þórey Gylfadóttir
ráðunautur, rekstrar-
og umhverfissvið
og hægt er. Þegar kýr eru fóðraðar
segi ég oft við bændur að þeir séu
í raun ekki að fóðra kýr heldur að
fóðra milljarða af örverum í vömb
kúnna. Örverur eru í eðli sínu
ofur viðkvæmar og því jafnara og
stöðugra starfsumhverfi sem við
sköpum þeim, því meira mjólka
kýrnar. Nákvæmnisfóðrun leikur
því lykilhlutverk á kúabúum sem
stefna að því að hámarka nýtingu
kúnna og í dag er til mikið úrval af
tæknibúnaði sem auðveldar bændum
þennan þátt í bústörfunum. Sjálfvirk
holdastigun með notkun þrívíðra
og innrauðra myndavéla er tækni
sem stóreflir bústjórnina og notkun
tölvuskynjara sem geta mælt og
metið fóðurgæðin í rauntíma er ekki
síður áhugaverð tækni sem fleiri og
fleiri kúabændur um allan heim hafa
verið að taka í notkun. Bóndinn fær
því afar nákvæmar upplýsingar um
fóðrið sem fer til kúnna og getur
tryggt einkar vel að það sé alltaf eins
og jafnt að gæðum frá degi til dags.
Örverurnar þakka svo fyrir þessa
þjónustu og kýrnar í kjölfarið með
auknum og jöfnum afurðum.
Snjallsímar og -gleraugu
Í dag eiga líklega flestir snjallsíma
og í dag geta þeir létt verulega störf
kúabænda. Fleiri og fleiri forrit eru í
boði sem eru sérhæfð fyrir kúabúskap
auk þess sem ýmis önnur forrit, sem
hugsuð eru fyrir almenna notkun,
henta einnig til að bæta bústjórnina.
Þannig eru t.d. til forrit sem geta
greint kýrnar út frá mynd, komið
með tillögu að holdastigun, aðstoðað
við heilsufarsgreiningar og margt
fleira mætti tína til. Þá færist í vöxt
að þróa búnað fyrir snjallgleraugu
þannig að bændur geta fengið fram
á lítinn skjá á gleraugunum allskonar
mikilvægar upplýsingar í rauntíma,
sem auðvelda vinnuna í fjósinu. Á
komandi árum mun notkun á þessari
tækni stóraukast og tengist s.s.
ekki fjóshönnuninni beint en mun
klárlega breyta starfi bændanna í
framtíðinni.
Sjálfvirk vöktun
Notkun á hverskonar skynjurum
hefur aukist hreint ótrúlega á
undanförnum örfáum árum. Fyrsta
notkun á skynjurum við kúabúskap
var líklega þegar bændur fengu
hálsólar með einstaklingsmerkingu
og hreyfiskynjara á kýrnar sínar á
sínum tíma. Þegar kýrnar gengu
svo til mjalta og fóru um þar til gert
hlið eða greiningarbúnað var lesið
af skynjaranum og fengust þannig
mikilvægar upplýsingar um atferli
gripsins. Síðan þessi tækni kom á
markað hefur mikið vatn runnið til
sjávar.
Í dag eru skynjararnir bæði minni
og endingarbetri, en einnig miklu
fjölhæfari og einfaldari í notkun.
Í dag geta bændur t.d. sett rafræn
merki í eyru kúnna og þurfa ekki
hálsólarnar lengur. Þá geta tölvukerfi
vaktað smákálfana og látið vita
ef þeir missa heilsuna t.d. ef þeir
drekka lítið eða fara sjaldan og fá
sér að éta nú eða einfaldlega liggja
of mikið. Beiðslisgreiningarbúnaður,
þ.e. búnaður sem byggir á
hreyfiskynjaratækni, er mikið
til fullþróaður fyrir alllöngu en
hugbúnaðurinn sem vinnur úr
upplýsingum um hreyfingar kúa
er alltaf að verða betri og betri. Í
dag getur t.d. tölvubúnaður fylgst
með atferli kúnna, hvar þær eru í
fjósinu og t.d. hve lengi þær standa
við fóðurgang, brynningarstamp eða
í legubás. Þá er hægt að fá sjálfvirka
skynjara sem láta vita ef kýr er að
fara að bera, hve mikið hún jórtrar,
hvort hún sé með hita eða hve hratt
hún andar svo dæmi sé tekið. Á
hverju ári bætist í þessa flóru sem
öll er gerð til að bæta bústjórn, létta
vinnu bændanna og um leið auðvitað
að auka afköst þeirra.
Önnur atriði
Af öðrum þáttum sem t.d. bændur
erlendis horfa til við hönnunar á
kúabúum í dag er t.d. kynjahlutfall
kálfa, en með notkun á kyngreindu
sæði gjörbreytast allar forsendur við
hönnun fjósanna. Þá er með notkun á
erfðaefnisgreiningum hægt að haga
uppeldi á gripum með öðrum hætti
en áður þar sem snemma verður
ljóst hvort ástæða sé til að ala t.d.
kvígu sem framtíðar mjólkurkú
eða til kjötframleiðslu. Ennfremur
hafa orðið stökkbreytingar í
tæknilegum möguleikum í tengslum
við kynbætur s.s. stóraukin notkun
á glasafrjóvgun, skolun á eggjum
úr ungum kvígum og þess háttar
möguleikar sem breyta bæði
forsendum við kúabúskapinn
en einnig vinnunni á búunum
sjálfum. Þá má að síðustu nefna að
nákvæmnisgreiningar á mjólk eru
alltaf að verða betri og einfaldari og
færist víða í vöxt örverugreiningar
heima á búum, sem styttir alla
ferla og eykur nákvæmni við
lyfjameðhöndlun sjúkra kúa.
Hér að framan hefur verið farið í
stuttu máli yfir helstu atriði sem hægt
er að nýta á kúabúum dagsins í dag.
Upptalningin er hvorki tæmandi né
endanleg enda koma á markað nýjar
lausnir nánast í hverjum mánuði.
Vegna smæðar markaðarins á Íslandi
er hins vegar ekki allt í boði sem
fæst erlendis en þar sem afar auðvelt
er í dag að bæði komast í samband
við erlenda aðila sem og að panta
erlendis frá ætti það að vera hægur
vandi fyrir hvaða kúabónda sem er
að útbúa bú sitt með nákvæmlega
þeirri tækni og þeim búnaði sem
hann eða hún vill.
Skynjarar og sjálfvirk vöktunarkerfi eru orðin afar fullkomin og í dag er m.a.
hægt að láta tölvukerfi fylgjast með bæði atferli og fóðrun smákálfa svo
hægt sé að bregðast við tímanlega ef þörf krefur.
Gleðileg jól og þökk fyrir
samfylgdina á árinu
Bændablaðið
Samvinna á Suðurlandi
– Fjórar nýjar bækur eftir Guðjón Friðriksson
BÆKUR&MENNING
„Samvinna á Suðurlandi“ er
nafn á fjögurra binda bókum
eftir Guðjón Friðriksson, sem
voru að koma út m.a. í tilefni
af 90 ára afmæli Kaupfélags
Árnesinga 1. nóvember
síðastliðinn.
Í bókunum er rakin saga
samvinnufélaga í Árnessýslu,
Rangár vallasýslu, Vestur-
Skaftafellssýslu og í
Vestmannaeyjum, ekki bara
kaupfélaga með ólíkum póli-
tískum lit heldur einnig annarra
samvinnufélaga, svo sem rjóma-
og mjólkurbúa, áveitufélaga og
útgerðarfélaga.
„Í raun er þetta að mörgu
leyti héraðssaga þessa svæðis frá
um 1880 fram yfir árið 2000 en
samvinnufélögin voru einn helsti
áhrifavaldurinn í nútímavæðingu
Suðurlands, hvort sem var í
verslun, iðnaði, matvælavinnslu,
landbúnaði, útgerð eða
fiskvinnslu. Mikil áhersla er lögð
á samgöngusögu svæðisins sem
skipti ekki litlu mál í þróun þess.
Auk þess að vera saga samtaka og
samvinnu er þetta saga hatrammra
átaka og litríkra einstaklinga,“
segir Guðjón. Bókaútgáfan
Sæmundur á Selfossi gefur verkið
út í smekklegri öskju. Mikill
fjöldi mynda er í bókunum. Hægt
er að versla bækurnar í helstu
bókaverslunum landsins, auk
þess sem hægt er að kaupa þær á
skrifstofu Kaupfélags Árnesinga
með því að hafa samband við
Guðmund Búason í síma 899-9413
eða senda tölvupóst á hagbok@
hagbok.is /MHH
Guðmundur Búason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Árnesinga, við bækurnar fjórar en félagið stóð a'
útgáfunni í tilefni af 90 ára afmæli kaupfélagsins.
Mynd / MHH