Bændablaðið - 17.12.2020, Side 79

Bændablaðið - 17.12.2020, Side 79
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 79 Samfara skammdeginu, ekki síst á aðventu er ekki óalgengt að fólk kveiki á kertaljósum sér og öðrum til ánægju. Samfara því koma þó stundum leiðindafréttir af bruna sem orsakast út af kertaljósum. Í mörgum tilfellum hefur tjón orðið mikið og nokkur dæmi þess að fólk hafi misst allt sitt í bruna. Aðrir hafa verið svo lánsamir að reykskynjari lét vita af eldi áður en tjón varð stórt og enn aðrir þakka slökkvitæki að hægt var að slökkva eldinn áður en hann var orðinn óviðráðanlegur. Óvenju margir brunar það sem af er ári Sex hafa látist í eldsvoðum hér á landi það sem af er ári, og hafa ekki verið fleiri dauðsföll vegna bruna í yfir fjörutíu ár, en undanfarin tíu ár hafa að meðaltali einn til tveir einstaklingar látist í brunum hér á landi. Í október höfðu slökkvilið farið í yfir tvö hundruð brunaútköll á árinu og enn eftir tveir þeir mánuðir sem oftast kviknar í út frá kertum. Margir hugsa vel um brunavarnir og jafnvel halda brunaæfingar á heimilinu samanber að ef kviknar í þá á hver heimilismaður sitt slökkvitæki og fer strax að sínu tæki við æfingu. Það eru hins vegar og margir sem hugsa „það kemur aldrei neitt fyrir hjá mér“. Verður að láta fara yfir slökkvitæki árlega? Já og aftur já. Slökkvitæki geta lekið þrýstingi og þegar á að grípa til þeirra er enginn þrýstingur til að sprauta léttvatninu eða duftinu á eldinn, en á öllum slökkvitækjum er mælir efst á tækinu sem sýnir þrýstinginn. Ef þrýstingurinn er ekki á græna bilinu þarf að láta slökkvitækjaverkstæði yfirfara tækið eða að gera það samkvæmt límmiða sem er utan á tækinu sem segir hvenær næst skuli yfirfara tækið. Reykskynjarar ganga flestir fyrir rafhlöðu sem þarf að skipta um árlega (margir hafa ákveðinn dag á ári sem þeir skipta um rafhlöður í reykskynjurum, veit til þess að það er Þorláksmessukvöld hjá nokkrum sem ég þekki). Slökkvitæki hafa margsinnis sannað gildi sitt og bjargað frá stórtjóni Á öllum bensínstöðvum eru slökkvitæki og það kom sér vel fyrir vörubílstjóra sem átti leið framhjá N1 Lækjargötu og það kviknaði í bílnum við bensínstöðina. Það vildi til að ég var staddur þar og sá í hvað stefndi. Án hugsunar tók ég þriggja kílóa dufttæki sem var við bensíndælurnar og náði að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom nokkrum mínútum seinna og kældi bílinn niður. Þessi bíll ók sjálfur í burtu nánast óskemmdur. Björgunargildi slökkvitækja kynntist Jóhann Ragnarsson, bóndi í Laxárdal í Hrútafirði, sem er með lítið tveggja kílóa slökkvitæki utan á dráttarvélinni sinni. Hann var að rúlla hey þegar hann fann brunalykt, neisti hafði farið í þurrt heyið og kveikt í rúlluvélinni hjá honum. Þótt slökkvitækið sé ekki stórt þá bjargaði það bæði rúlluvélinni og dráttarvélinni að hans mati. Að vera með slökkvitæki á góðum stað utan á dráttarvél er alveg spurning um hvort ekki sé ástæða hjá tryggingafélagi viðkomandi að gefa auka afslátt á tryggingum fyrir hugulsemi og forvarnarvinnu. Að hugsa í forvörnum á þann hátt að hugsanlega gæti kviknað í hjá mér þá segi ég sem er búinn að slökkva eld áður en stórtjón varð með litlu slökkvitæki. Það sem kom fyrir mig getur líka komið fyrir þig, en endilega vertu viðbúinn þegar það gerist. Startarar og Alternatorar - Vinnuvélar - Ly�arar - Drá�arvélar - Bátar ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins – Gleðileg jól Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Hugað að eldvörnum fyrir jól Ekki þarf að hafa áhyggjur af að lenda í Grýlupottinum ef eldvarnirnar eru í lagi. Nálin verður að vera á græna, ef ekki, fara með tækið í skoðun strax. Hér er eitthvað komið fram yfir skoðun. Þetta litla tveggja kílóa tæki bjargaði heyrúlluvélinni í Laxárdal. GLANSA ALÞÝÐA G VANSÆMD S DVÍNAFLOG K HUGLÍTIL M NESTIS- POKI HÓLFA A L S E K K U R GEISPA IÞ L J A HLUT-SKIPTI Ö R L Ö G SRÝR M Á GÆLUNAFNTILDRÖG M A N G A Ú HELLINGURDRAGSPIL G O M M A MIÐJA P SORTERA MUNN- MÆLI ÁS S A G N I R HÁSPIL P SKÓLI MILDI M A URGIGLATA SÞESSISKURN MJÓRÓMA R K R Æ K TVEIR EINSSKÁLMA I I UPP-GANGUR S T I G I HAGNAÐURS L A G E R KOSNING K J Ö R TÆRALÍFFÆRI Æ T APAKKHÚS A Ð I L I Í RÖÐ K NÁÐIRSTAGL K O M S T R HLUT- TAKANDI ÍMYNDUN R A R JURTGLEÐI G R A S STÓRTERFIÐUR M I K I ÐÓ Í HÆRRI ÞEISNÍKILL U S S TRÍTLA T I P L A LOFA S N E F N A GEÐLEIÐ ÓSKERTMÁLMUR A L L T NÓTASKRÁ R ETILGREINA E F L A DRÍFANDI Ö T U L EINDÁTT A T Ó MSTYRKJA T T R I Ó L Ð S BÓKFESTA Ö R G I N T SÖNGLA U R N A GREMJA U A L M A IFYLLING LEIÐ- BEINING M Y N D : P IX A B A Y .C O M / R IC H A R D R EV EL ( CC 0) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 143 Bænda 14. janúar 2021 Er þitt bú öruggur og góður vinnustaður? ElDvarnir borga sig Yfirvöld setja ákveðnar reglur um brunavarnir og slökkvibúnað í byggingum. Dæmi um þetta eru kröfur um reykskynjara og slökkvibúnað í íbúðarhúsnæði. Hvað getur þú gert sem bóndi til þess að lágmarka áhættu af sökum elds á þínu býli? PO RT h ön nu n Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KÚPLINGAR í flestar gerðir dráttarvéla

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.