Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
LEIÐRÉTT
Rynkeby ekki keppni
Ranglega var sagt í myndatexta á
forsíðu sl. þriðjudag að hjólreiða-
hópurinn Team Rynkeby, sem heim-
sótti Bessastaði, tæki þátt í keppni.
Um góðgerðarhjólreiðar er að ræða
frá Danmörku til Parísar þar sem 57
lið frá átta löndum taka þátt. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Þrír úr Miðflokknum
fluttu ræðu
Ranglega var sagt í frétt í blaðinu í
gær um eldhúsdagsumræðurnar á
Alþingi að tveir þingmenn Mið-
flokksins hefðu tekið til máls. Hið
rétta er að þrír þingmenn flokksins
fluttu ræður við umræðurnar, þeir
Gunnar Bragi Sveinsson, Karl Gauti
Hjaltason og Sigurður Páll Jónsson.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Old Iceland opið og
Fiskmarkaðurinn
ekki gjaldþrota
Í töflu sem birt var í Viðskipta-
Mogganum í gær yfir veitingastaði
sem lokað hefðu vegna kórónuveiru-
faraldursins eða hefðu farið í þrot,
skal áréttað að veitingastaðurinn
Old Iceland er ekki lokaður. Hið
rétta er að hann er opinn frá mið-
vikudegi til laugardags. Þá skal
áréttað að Fiskmarkaðurinn er ekki
gjaldþrota heldur rekinn inni í hús-
næði Grillmarkaðarins. Húsnæði
Fiskmarkaðarins er lokað.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bessastaðir Lið Rynkeby í heimsókn.
Félag atvinnurekenda (FA) telur að
útfærsla á niðurgreiðslu sumarnáms
sé ólögmæt, samkeppnishamlandi og
brjóti gegn samningi um Evrópska
efnahagssvæðið. Félagið hefur sent
Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráð-
herra erindi vegna útfærslu á stuðn-
ingi ráðuneytisins við sumarnám.
Þetta kemur fram á vef Félags at-
vinnurekenda.
Að sögn félagsins hefur skoðun FA
leitt í ljós að verulegur hluti þeirra
500 milljóna sem veitt hefur verið til
sumarnáms á háskólastigi renni til
endur- og símenntunarstofnana há-
skólanna, sem eru í beinni samkeppni
við námskeið á vegum einkarekinna
fræðslufyrirtækja.
Niðurgreidd en utan verksviðs
Sú skoðun hefur einnig leitt í ljós að
námskeið sem séu utan verksviðs há-
skólanna eins og það er skilgreint í
lögum, séu niðurgreidd um tugi þús-
unda króna. „Nefna má sem dæmi
námskeið sem alls ekki eru ætluð há-
skólanemum, háskólamenntuðum eða
atvinnuleitendum sérstaklega, til
dæmis tölvunámskeið, námskeið í
samskiptaleikni, framkomu og verk-
efnastjórnun,“ segir á vef FA.
„Endurmenntunardeildir háskól-
anna auglýsa nú námskeið á 3.000
krónur, sem alla jafna kosta tugi þús-
unda,“ segir í erindi FA. „Það gefur
auga leið að einkarekin fræðslufyrir-
tæki geta ekki með nokkru móti
keppt við þessi niðurgreiddu nám-
skeið.“
Í erindi FA kemur fram að félaginu
sé kunnugt um að námskeið hjá
einkareknum fræðslufyrirtækjum
hafi verið felld niður þar sem fyrir-
tæki sjái ekki tilgang í að keppa við
niðurgreidd námskeið.
Í erindinu stendur að útfærsla
niðurgreiðslunnar brjóti gegn 61.
grein samnings um Evrópska efna-
hagssvæðið, sem leggur bann við
samkeppnishamlandi ríkisstyrkjum,
sem hafa áhrif á viðskipti milli aðild-
arríkja EES.
Þá brýtur niðurgreiðsla ríkisins, að
mati FA, einnig gegn lögum um opin-
bera háskóla og samkeppnislögum.
„Auðveldlega hefði mátt útfæra
a.m.k. hluta stuðningsins með öðrum
hætti, til dæmis á svipaðan máta og
„ferðagjöf“ stjórnvalda með e.k.
ávísanakerfi, þar sem áhugasamir
gætu nýtt námsstyrk frá ráðuneytinu
ýmist hjá háskólum sem njóta ríkis-
stuðnings eða hjá einkareknum
fræðslufyrirtækjum,“ segir í er-
indinu. ragnhildur@mbl.is
Telja niðurgreiðsluna ólögmæta
Einkarekin fyrirtæki hafa þurft að fella niður námskeið vegna niðurgreiðslu sumarnáms, að sögn FA
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18.
Lau: 11-15.
www.spennandi-fashion.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur