Morgunblaðið - 25.06.2020, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Íbúar sameiginlegs sveitarfélags á
Austurlandi greiða atkvæði um til-
lögur að nafni á sveitarfélagið um
helgina, samhliða forsetakosning-
unum. Þeir sem ekki verða heima á
kjördag geta tekið þátt í nafnavalinu
með því að mæta á skrifstofur sveit-
arfélaganna fjögurra og hafa all-
margir nýtt sér þann möguleika, að
sögn Björns Ingimarssonar, bæjar-
stjóra á Fljótsdalshéraði.
Íbúar Fljótsdalshéraðs, Seyðis-
fjarðarkaupstaðar, Djúpavogs-
hrepps og Borgarfjarðarhrepps hafa
samþykkt að sameina sveitarfélögin
og munu þau ganga í eina sæng í
haust, í kjölfar kosninga til nýrrar
sveitarstjórnar 19. september.
Fjöldi tillagna um nafn á hið nýja
sveitarfélag barst í nafnasamkeppni.
Ákveðið var að gefa íbúunum kost á
að velja á milli sex nafna í leiðbein-
andi kosningu. Þau eru Austurþing,
Austurþinghá, Drekabyggð, Múla-
byggð, Múlaþing og Múlaþinghá.
Hægt er að velja fyrsta og annan
valkost.
Yngri íbúarnir fá að taka þátt því
aldurstakmark er 16 ár.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Krossgötur Margar leiðir liggja um Egilsstaði. Þess vegna byggðist þorp.
Íbúar velja á milli
sex tillagna að nafni
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Mikil óánægja ríkir á Þórshöfn og
nágrannabyggðarlögum vegna
þeirrar ákvörðunar Frumherja að
hætta bifeiðaskoðun í Langanes-
byggð. Frumherji var með sam-
starfssamning við verkstæðið
Mótorhaus á Þórshöfn en sagði
þeim samningi upp í janúar. Nú
blasir það við íbúum byggðarlags-
ins að þurfa að aka í næstu
byggðarlög með
bifreiðar og
tæki til skoð-
unar.
Byggðaráð
Langanesbyggð-
ar hefur í tví-
gang ályktað um
þessa ákvörðun
Frumherja en
gefur lítið fyrir
útskýringar
fyrirtækisins. Jafnframt minnir
byggðaráð á skyldur ríkisvaldsins
um lögbundna skoðun bifreiða
eins og sjá má á seinni ályktun
byggðaráðs:
Þjónustuskerðing þvert á
byggðastefnu stjórnvalda
„Um er ræða lögbundna skoðun
bifreiða, sem allar bifreiðar verða
að undirgangast. Frumherji er
með samning við ríkið um þessa
skoðun og fyrirtækið var einka-
vætt á þeim forsendum að það
sinnti þessari þjónustu við íbúa.
Kostnaður bifreiðaeigenda við
akstur til Vopnafjarðar eða Húsa-
víkur á opnunartíma Frumherja
er talsverður, sérstaklega fyrir at-
vinnubíla sem jafnvel þurfa að
fara fleiri ferðir vegna tengivagna
og annars búnaðar. Til viðbótar
kemur að bifreiðaeigendur þurfa
flestir að taka sér frí úr vinnu
heilan dag til að komast með bif-
reiðar sínar til skoðunar,“ segir
m.a. í ályktun byggðaráðs.
Þar er bent á að Frumherji hafi
verið með aðstöðu á svæðinu til
skoðunar bifreiða, það hafi gengið
vel og því hafnar ráðið þeim full-
yrðingum Frumherja að um „fá-
brotnar“ aðstæður sé að ræða.
Mun ekki færa ökutæki til
skoðunar á næstu stöð
„Rauntilgangur Frumherja
virðist því fyrst og fremst vera að
draga úr þjónustu við bifreiðaeig-
endur til að lækka eigin rekstr-
arkostnað. Einnig vill byggðaráð
benda á að það sé gagnstætt
byggðastefnu stjórnavalda að
skerða þjónustu ríkisins í hinum
dreifðari byggðalögum landsins
eins og Frumherji gerir með þess-
ari ákvörðun sinni,“ segir enn
fremur í ályktun byggðaráðs, sem
krefst þess að Frumherji og ríkis-
valdið tryggi að skoðun bifreiða
verði áfram á Þórshöfn og öðrum
nærliggjandi byggðarlögum eins
og verið hefur.
Eigandi vertakafyrirtækis á
Þórshöfn var mjög ósáttur við
þessa stóru þjónustuskerðingu á
svæðinu: „Það kostar fyrirtæki
mitt um tvær milljónir að fara
burt með öll mín tæki til skoð-
unar, fyrir utan skoðunargjaldið,
en ríkið hagnast á þessu fyrir-
komulagi gegnum olíugjaldið sem
við greiðum. Þetta er bæði ólíð-
andi og óboðlegt,“ sagði hann og
hyggst ekki færa sín ökutæki til
skoðunar, nema hann eigi leið um
svæði með skoðunarstöð af öðrum
ástæðum.
Jónas Egilsson, sveitarstjóri
Langanesbyggðar, harmar þessa
þjónustuskerðingu og hefur hann
fengið mikil viðbrögð frá íbúum
byggðarlagsins vegna málsins,
hann segir fólk afar óánægt og
margir hafa lýst því yfir að þeir
muni framvegis sniðganga þjón-
ustustöðvar Frumherja.
Bifreiðaskoðun hætt í Langanesbyggð
Mikil óánægja meðal íbúa með ákvörðun Frumherja Þurfa nú að aka langar leiðir með bíl í
skoðun Byggðaráð hefur bókað mótmæli í tvígang Minna ríkisvaldið á þjónustuskyldur sínar
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þórhöfn Bifreiðaskoðun hefur verið hætt í Langanesbyggð og mikil óánægja ríkjandi meðal íbúa. Byggðaráð hefur í tvígang bókað athugasemdir.
Jónas Egilsson
Ákvörðun stjórnenda Frumherja að hætta að senda skoðunarmann frá
Húsavík nokkrum sinnum ári til að skoða ökutæki á Kópaskeri, Þórshöfn
og Vopnafirði tengist endurskoðun á kerfi fyrirtækisins. Það hefur skoð-
að á 35-40 stöðum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni en tilkoma
fleiri fyrirtækja á þessum samkeppnismarkaði og harðari samkeppni
knýr fyrirtækið til endurskoðunar, að sögn Orra Hlöðverssonar fram-
kvæmdastjóra.
Hann segir að skoðað hafi verið við frumstæðar aðstæður á þessum
stöðum og stöðinni á Húsavík lokað á meðan. Flóknari bílar kalli á betri
tækjabúnað til skoðunar. Í staðinn fyrir að skoðunarmaður hættir að fara
til Kópaskers og Þórshafnar verður þjónustan á Húsvík efld og einnig
verður þjónusta á Vopnafirði. Þá er til athugunar að láta færanlegan
skoðunarbíl koma við á Þórshöfn og Kópaskeri á sumarrúnti hans. Orri
segir skiljanlegt að fólk vilji hafa þessa þjónustu í heimabyggð en bendir
á að samgöngur á þessu svæði hafi batnað. Nefnir að 69 kílómetrar séu
frá Þórshöfn til Vopnafjarðar.
Skoðað við betri aðstæður
FRUMHERJI ENDURSKOÐAR STÖÐVAKERFI SITT