Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 29

Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 29
www.tilfyrirmyndar.is | #tilfyrirmyndar | @tilfyrirmyndar Takk fyrir að vera til fyrirmyndar er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og vorum til fyrirmyndar með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Á þessum tímamótum er vert að staldra við, huga að því sem vel er gert og þakka þeim sem við teljum vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Bréf með yfirskriftinni ,,Takk fyrir að vera til fyrirmyndar” er hægt að nálgast hjá Póstinum, í útibúum Landsbankans, í Nettó, Bónus og Krónunni. Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands. Einnig er hægt að senda bréf á rafrænu formi inn á heimasíðunni tilfyrirmyndar.is. Þar er hægt að nálgast bréfin á fjölmörgum tungumálum. Hvetjum við alla landsmenn til að senda þessi bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða og annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. ,,TAKK veggir” verða málaðir víða um land. Skemmtilegt er að taka myndir af sér og sínum á og deila á samfélagsmiðlum. Fylgstu með og taktu þátt!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.