Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 29
www.tilfyrirmyndar.is | #tilfyrirmyndar | @tilfyrirmyndar
Takk fyrir að vera til fyrirmyndar er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur
og íslensku þjóðinni.
Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og vorum til fyrirmyndar
með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum,
frú Vigdísi Finnbogadóttur. Á þessum tímamótum er vert að staldra við, huga að því sem
vel er gert og þakka þeim sem við teljum vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.
Bréf með yfirskriftinni ,,Takk fyrir að vera til fyrirmyndar” er hægt að nálgast hjá Póstinum,
í útibúum Landsbankans, í Nettó, Bónus og Krónunni. Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands.
Einnig er hægt að senda bréf á rafrænu formi inn á heimasíðunni tilfyrirmyndar.is.
Þar er hægt að nálgast bréfin á fjölmörgum tungumálum.
Hvetjum við alla landsmenn til að senda þessi bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða
og annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.
,,TAKK veggir” verða málaðir víða um land. Skemmtilegt er að taka myndir af sér
og sínum á og deila á samfélagsmiðlum.
Fylgstu með og taktu þátt!