Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Marta María
mm@mbl.is
Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal,
vann að endurgerð stóls Helga
Hallgrímssonar ásamt eiganda
stólsins, Kristjáni Garðarssyni
arkitekt, og Ivan Hansen hjá
House of Finn Juhl.
„Helgi Hallgrímsson var einn
virtasti húsgagnaarkitekt tuttug-
ustu aldar en nafn hans er þó ekki
á allra vörum, þar sem maðurinn
var með eindæmum hógvær. Það
er okkur sönn ánægja að kynna
hans fallegu hönnun fyrir nýrri
kynslóð Íslendinga,“ segir Eyjólf-
ur himinlifandi.
Helgi útskrifaðist úr Listiðn-
aðarskólanum í Kaupmannahöfn
árið 1938 og var þar í vinfengi við
marga þekktustu hönnuði hinnar
dönsku hönnunarbylgju og taldi
hann meðal annars Hans Wenger
og Börge Mogensen til góðra vina
sinna.
„Pabbi starfaði sem húsgagna-
arkitekt alla tíð og kenndi jafn-
framt fjölmörgum verðandi arki-
tektum og hönnuðum við
Iðnskólann í Reykjavík. Verk hans
vöktu mikla athygli en hann hann-
aði meðal annars innréttingar fyr-
ir útibú Landsbankans á Selfossi
og fleiri,“ segir Rut Helgadóttir
sem margir þekkja sem fyrrver-
andi ritstjóra Gestgjafans en hún
er dóttir Helga. Hún bendir á að
eitt þekktasta verk Helga, forláta
ruggustóll, er til sýnis á Hönn-
unarsafni Íslands. Hún lýsir föður
sínum sem einstökum „séntil-
manni“ og heimsborgara, sem var
svolítið sérstakt fyrir mann sem
var alinn upp af fátæku fólki í
barnamergð á Patreksfirði.
18 ára MR-ingur keypti
stólinn árið 1960
Stóllinn sem nú er endurgerður
er í eigu Kristjáns Garðarssonar
arkitekts, sem fékk hann að gjöf
frá föður sínum. Kristján er ann-
álaður smekkmaður og hefur notið
mikillar velgengni í starfi sínu en
hann var einn af þeim sem hönn-
uðu Veröld - hús Vigdísar.
„Árið 1960 sýndi Helgi Hall-
grímsson þennan forláta armstól
og fótskemil á sýningu Félags
húsgagna- og innanhússarkitekta.
Faðir minn, Garðar Gíslason, sem
var þá ungur maður í Mennta-
skólanum í Reykjavík, fór á sýn-
inguna og rak strax augun í stól-
inn góða. Hann hafði ekki getu til
að kaupa hann en var svo heppinn
að móðir hans, sem var með í för,
ákvað að kaupa stólinn og gefa
honum og síðan hefur hann verið
stöðugri notkun í fjölskyldunni í
60 ár,“ segir Kristján.
Það næsta sem gerist er að
Kristján Garðarsson og Eyjólfur
Pálsson taka samtal og í fram-
haldinu ákváðu þeir að endurgera
hinn fallega stól. Eyjólfur hafði
svo milligöngu um samstarf við
House of Finn Juhl, en þar á bæ
heilluðust menn af þessum fallega
grip.
„Það er okkur sönn ánæga að
varpa ljósi á Helga Hallgrímsson
og við vonum að hann fái þann
sess í hönnunarsögunni sem hann
á skilið, bæði á Íslandi og í hinu
víðara samhengi,“ segir Eyjólfur.
Morgunblaðið/Eggert
Eyjólfur
Pálsson
Rut
Helgadóttir
Morgunblaðið/Ernir
Hógvær Helgi Hallgrímsson hann-
aði afar falleg húsgögn.
Stóll Helga
Hallgrímssonar
endurgerður
af Finn Juhl
Stóll Helga Hallgrímssonar var frumsýndur á Hönn-
unarMars í gær. Það er danska húsgagnafyrirtækið
House of Finn Juhl sem framleiðir stólinn.
Vandaður Hér má sjá stól
Helga Hallgrímssonar sem
búið er að endurgera.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?