Morgunblaðið - 25.06.2020, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Sérvaldar steikur á grillið,
Úrvals hamborgarar með brauði,
Krydd, sósur og ýmsar grillvörur
Byrjað er á því að smella í brún-
kökubotninn, ég ákvað að nota
Ghirardelli-brúnkökumixið sem
fæst í Costco en mér finnst það
stórgott. Að sjálfsögðu er hægt
að gera brúnkökubotninn frá
grunni líka. Skyrkakan sjálf er
ótrúlega einföld að gera, maður
einfaldlega stífþeytir rjómann,
blandar skyrinu saman við og
lakkrísnum.
Lakkrís-skyrkaka
með brúnkökubotni
Brúnkökumix
200 g súkkulaði- og lakkrísskyr frá
Örnu Mjólkurvörum
300 g rjómi
3 msk. flórsykur
2 matarlímsblöð
200 g lakkrískurl
50 g súkkulaði
Fersk brómber
Útbúið brúnkökubotninn sam-
kvæmt leiðbeiningum, bakið í
u.þ.b. 23 cm hringformi. Kælið
botninn vel í ísskáp. Leggið mat-
arlímsblöðin i kalt vatn.
Stífþeytið rjómann. Hrærið
skyrið varlega saman við rjómann
með sleikju og sigtið flórsykurinn
út í, hrærið varlega saman.
Setjið 100 g af lakkrískurlinu út
í rjómablönduna og blandið sam-
an.
Takið matarlímið upp úr vatninu
og kreistið mesta vatnið af. Bræð-
ið matarlímið yfir vatnsbaði (setjið
vatn í pott og sjóðið, setjið aðra
skál ofan á pottinn og bræðið mat-
arlímið þannig). Blandið matarlím-
inu hratt saman við rjómablönd-
una og setjið á brúnkökubotninn,
geymið í ísskáp í u.þ.b. 30 mín.
Skreytið kökuna með restinni af
lakkrískurlinu, skerið súkkulaði
með flysjara yfir kökuna og raðið
brómberjunum á kökuna.
Nákvæmt aðferðarmyndband er
að finna á Instagram.com/lindaben
í Lakkrískaka highlights.
Lakkrís-skyr-
kaka með
brúnkökubotni
„Lakkrís-skyrkaka með brúnkökubotni er alveg
stórkostlega góð kaka,“ segir Linda Ben um þessa
köku, sem hún segir að sé bæði einföld og fljótleg.
„Frá því að ég smakkaði nýja lakkrís- og súkku-
laðiskyrið frá Örnu hefur mig dreymt um að nota
það í skyrköku. Þessi kaka er allt sem mig dreymdi
um og gott betur en það. Þetta er ein af þessum
kökum þar sem það er eiginlega ekki hægt að
leggja gaffalinn frá sér.
Unaðsleg Hvað hljómar betur en
skyrkaka með brúnkökubotni?
Ljósmynd/Linda Ben
Í útilegu er alveg tilvalið að hafa
grillaða sykurpúða með og
sprauturjóma. „Ef þið gerið kakóið
heima mæli ég með að hafa ekta
þeyttan rjóma og súkkulaðispæni.
Þar sem dósamjólkin er dísæt þarf
ekki að bæta við sykri þótt maður
noti bökunarkakó en mér finnst
Cadbury- kakóið henta best í
þennan drykk, enda allt súkkulaði
frá þeim með því betra sem ég hef
smakkað. Hér er ekkert vesen á
ferðinni, bara henda dósamjólk í
pott á prímusinn og bæta vatni og
kakó saman við. Grilla nokkra syk-
urpúða og málið dautt, segir
María.
Ofureinfalt útilegukakó
1x 305 ml niðursoðin dósamjólk
(condensed milk)
vatn
5 msk. Cadbury-bökunarkakó
Sykurpúðar
sprauturjómi eða venjulegur þeyttur
rjómi
Súkkulaðispænir (má sleppa)
Hellið dósamjólkinni í pott.
Fyllið svo dósina af mjólkinni 2 x
af vatni og hellið saman við.
Bætið svo 5 msk. af kakó út í og
hrærið vel.
Grillið sykurpúða.
Þegar kakóið er byrjað að sjóða
hellið því þá í bolla og toppið með
sykurpúðum og rjóma.
Ofureinfalt útilegukakó
Hér gefur að líta afar einfalt kakó sem hentar vel í
útileguna í sumar. Það má samt líka vel gera bara
heima fyrir góðar stundir, segir María Gomes á
Paz.is um þessa kakóuppskrift.
Ljósmynd/María Gomez
Spennandi Kakóuppskrift þar sem
kveður við nýjan tón.