Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • Selena undirfataverslun
Mix & Match
sundföt frá Panache
Frábær snið og fjölbreyttar stærðir
Höfum opnað netverslun www.selena.is
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Stjórnendur útvarpsþáttanna Ís-
land vaknar og Síðdegisþáttarins
ætla að gerast ferðamenn í eigin
landi og ferðast um landið með
hlustendum í sumar, en næsti
áfangastaður K100 er sjálf höfuð-
borgin, Reykjavík.
Dagskrá K100 föstudaginn 26.
júní verður öll úr útsendingar-
hjólhýsi K100 á Lækjartorgi en
þangað munu koma ýmsir góðir
gestir úr borginni.
Morgunþáttur stöðvarinnar, Ís-
land vaknar, með þau Kristínu Sif,
Ásgeir Pál og Jón Axel innanborðs,
hefst stundvíslega klukkan sex að
morgni. Fréttirnar verða á sínum
stað og Siggi Gunnars og Logi
Bergmann í Síðdegisþættinum
munu skoða hvað gerir Reykjavík
að áhugaverðum stað og eftir-
sóknarverðum til að heimsækja,
starfa á og búa á.
Ýmislegt verður um að vera í
borginni í sumar og er því von á líf-
legri og skemmtilegri umræðu í út-
varpinu. Meðal annars verður
Hönnunarmars í gangi um helgina
en viðburðinum, sem átti að fara
fram í mars, var frestað vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar.
Logi Bergmann, annar stjórn-
enda Síðdegisþáttarins, er bæði
fæddur og uppalinn í Reykjavík, en
hann hlakkar til að fá góða gesti í
hjólhýsið úr borginni.
Ætlar að fræða Sigga
„Ég er mjög spenntur fyrir
þessu enda mikill Reykvíkingur.
Hef reyndar aldrei búið annars
staðar. Ég fæddist á Tjarnargöt-
unni og hef lengst af verið í
Vesturbænum og Bústaðahverf-
inu,“ segir Logi í samtali við
K100.is og Morgunblaðið. „Það er
líka mitt hlutverk að fræða Sigga
litla, sem er náttúrlega úr sveit, um
hvað borgin er frábær og margt
hægt að gera,“ bætir hann við
kíminn.
K100 í beinni frá
sumarborginni
Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynnast landinu betur
í sumar og kynna þá stórkostlegu staði sem eru í
boði fyrir landsmenn innanlands. Á morgun, 26.
júní, verður öll dagskráin í beinni frá Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavík Öll útsending K100 verður frá miðborg Reykjavíkur á morgun. Verður þar fjallað um það sem höfuð-
borgin hefur upp á að bjóða og munu góðir gestir úr borginni heimsækja útsendingarhjólhýsi stöðvarinnar.
Síðdegisþátturinn Logi hlakkar til að fræða „Sigga litla“, sem er úr sveit,
um það hvað borgin er frábær og hve margt er hægt að gera í henni.
Ísland vaknar Morgunþátturinn
Ísland vaknar verður á sínum stað.