Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Tannlæknastofa
í Reykjavík
óskar eftir tanntækni eða
aðstoðarmanni tannlækna
Skilyrði er að umsækjandi hafi frumkvæði,
tölvukunnáttu og geti starfað sjálfstætt.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
eigi síðar en 10. ágúst 2020. Um er að ræða
100% starf.
Umsóknir sendist á box@mbl.is merktar:
,,K - 26561’’, eigi síðar en 26. júní 2020.
Tvö embætti dómara
við Landsrétt
laus til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti dómara við Landsrétt. Stefnt er að því að skipa
í embættin hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um
launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010,
um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn
komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af
lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum
akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv.,
6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum
við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar
um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi
samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf
og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni
umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa
ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 6. júlí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna
og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með
rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu, 19. júní 2020.
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Hljóðfæraleikari
í Ólafsvíkurkirkju
Ólafsvíkursókn óskar eftir tónlistarmanni í
21% starf.
Um er að ræða tónlistarflutning við athafnir
og undirleik á kóræfingum.
Nánari upplýsingar eru á kirkjanokkar.is og
hjá sr. Óskari Inga Ingasyni, s. 844-5858 og
Gunnsteini Sigurðssyni, formanni,
s. 861-8582.
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Sjá nánar á kopavogur.is
Laus störf
hjá Kópavogsbæ