Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 56

Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir tanntækni eða aðstoðarmanni tannlækna Skilyrði er að umsækjandi hafi frumkvæði, tölvukunnáttu og geti starfað sjálfstætt. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 10. ágúst 2020. Um er að ræða 100% starf. Umsóknir sendist á box@mbl.is merktar: ,,K - 26561’’, eigi síðar en 26. júní 2020. Tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti dómara við Landsrétt. Stefnt er að því að skipa í embættin hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 6. júlí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 19. júní 2020. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Hljóðfæraleikari í Ólafsvíkurkirkju Ólafsvíkursókn óskar eftir tónlistarmanni í 21% starf. Um er að ræða tónlistarflutning við athafnir og undirleik á kóræfingum. Nánari upplýsingar eru á kirkjanokkar.is og hjá sr. Óskari Inga Ingasyni, s. 844-5858 og Gunnsteini Sigurðssyni, formanni, s. 861-8582. Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi hagvangur.is  Sjá nánar á kopavogur.is Laus störf hjá Kópavogsbæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.