Morgunblaðið - 25.06.2020, Síða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerru-
smíða
2012
2019
60 ára Sigrún er
Reykvíkingur, ólst upp
í Vogunum og Bú-
staðahverfinu en býr í
Breiðholti. Hún er ís-
lenskufræðingur,
framhaldsskólakenn-
ari og ljósmyndari.
Sigrún er Íslandsmeistari í brids í tví-
menningi kvenna.
Maki: Eggert Ólafsson, f. 1952, rekstrar-
stjóri hjá Reykjavíkurborg.
Börn: Signý, f. 1982, Unnur Ósk, f. 1989,
Þorbjörg Ósk, f. 1991. Stjúpdætur eru
Eva Björk, f. 1973, og Elísabet, f. 1979.
Barnabörnin eru 12.
Foreldrar: Þorvarður Björn Jónsson, f.
1928, d. 2013, framkvæmdastjóri hjá
Pósti og síma, og Unnur Ósk Jónsdóttir,
f. 1928, d. 2015, húsmóðir.
Sigrún Þorvarðsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú skiptir það sköpum að fara
gætilega í fjármálunum og velta hverri
krónu. Opnaðu augun því þá fyrst fara hjól-
in að snúast þér í hag og þú átt það svo
skilið.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhvern veginn hefur það þróast
þannig að þú ert með puttann í næstum
hverju sem er á þínum vinnustað. Leggðu
þig heldur fram um að bæta samskiptin því
maður er manns gaman.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að losa aðeins um bönd-
in á sjálfum þér og sletta úr klaufunum.
Reyndar langar hana að breyta fjölmörgu
frá og með deginum í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Undanfarið finnst þér að samskipti
þín og ástvinanna mættu vera betri. Láttu
aðra vita af fyrirætlunum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinir og samstarfsmenn leita svara
hjá þér við margs konar vandamálum.
Gefðu þeim tíma til að sanna sig því án
samkomulags verður ykkur ekkert að verki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað óvænt og snúið gæti komið
upp í samræðum við fólk á förnum vegi,
maka eða nána vini í dag. En sá sem sparar
ekki fyrirhöfnina mun græða best.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fjármálin eru þér ofarlega í huga og þú
kemur auga á nýja möguleika til fjáröflunar.
Farðu gætilega svo það komi þér ekki í koll
síðar meir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu þér ekki bregða, þótt til
þín verði leitað um handtök sem heyra nú
ekki beint til þíns lifibrauðs. Ekki hræðast
að þú vitir ekki hvað skuli gera næst.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að taka þér tak og
freista þess að gera sjálfan þig að betri
manni. Sýndu samt fyrirhyggju.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mikið að gerast í fé-
lagslífinu. Enginn er fullkominn og heim-
urinn ferst ekki þótt eitthvað þurfi að bíða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver hefur mikla þörf fyrir að
gera allt til að gleðja þig. Spurðu bara réttu
spurninganna. Gerðu þér dagamun.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir þurft að ganga þvert á vilja
hóps sem þú átt dagleg samskipti við.
Vertu rólegur þegar þú tekst á við aðra sem
eiga hlut að máli.
kúlur og allar kölluðu þær eftir ís-
lenskri vöru. Það var því oft mikið
að gera og álag á framleiðslunni
mikið.“ Eftir fimm ár hjá Glófa fór
Birgitta í MBA-nám hjá Háskól-
anum í Reykjavík og kláraði það
2017.
Þau hjónin stofnuðu árið 2012
Reiðhjólaverzlunina Berlin og ráku í
sex ár þar til reksturinn var seldur í
lok árs 2018. „Þessi verslun var
mjög frábrugðin þeim reiðhjóla-
verslunum sem fyrir voru og bauð
upp á klassísk götuhjól ásamt vönd-
uðum fylgihlutum. Einnig var boðið
upp á t.d. tweed-fatnað, leðurhanska
og regnslár þannig að hægt væri að
ferðast með glæsileika hvert sem
fara þurfti innanbæjar. Áhersla var
lögð á að fólk gæti notað hjólið til
vinnu, kaffihúsið eða jafnvel í leik-
húsið.“
Stóðu þau hjónin einnig fyrir ýms-
um uppákomum í tengslum við reið-
hjólin. Til dæmis kynntu þau hinn
alþjóðlega Tweed Ride viðburð til
landsins og settu hann upp bæði í
Reykjavík og á Akureyri. Hún
skipulagði líka góðgerðaviðburðinn
„Hjólum bæinn rauðan“. Þar kom
saman hópur af konum sem allar
voru klæddar rauðu og hjóluðu um
Stuttu eftir efnahagshrunið fór
Birgitta úr heilbrigðisgeiranum og
tók við sem sölu- og markaðsstjóri á
prjónafyrirtækinu Glófi ehf. „Þetta
var áhugaverður tími, þjóðfélagið
leitaði mikið inn á við í menningar-
arfinn. Margir fóru að prjóna aftur
og íslenskt handverk komst í tísku.
Ferðamannaiðnaðurinn var líka að
byrja að rúlla og ferðamannaversl-
anir skutu upp kollinum eins og gor-
B
irgitta Guðrún Schepsky
Ásgrímsdóttir er fædd
25. júní 1970 á Land-
spítalanum í Reykjavík
og ólst upp í Laugar-
neshverfinu, fyrst á Laugarnesvegi
en síðar á Brekkulæk. „Öll sumur
fram að fermingaraldri var ég í sveit
hjá ömmu og afa mínum á Hryggj-
um í Mýrdal. Ég dvaldi einnig í
nokkur skipti í Hjaltadalnum hjá
föðurforeldrum mínum í Hlíð.“
Birgitta var bæði í Laugarnes- og
Laugarlækjarskóla og varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1991. Birgitta flutti til Freiburg í
Þýskaland eftir stúdentinn og eftir
einn vetur í þýskunámi þar flutti
hún til Kaiserlautern og hóf líf-
fræðinám. Kláraði þaðan B.Sc
gráðuna 1995 og M.Sc. gráðuna 1998
við Heinrich-Heine-Universität í
Düsseldorf.
„Lokaverkefnið kláraði ég við Há-
skólann í Kiel, en þangað flutti ég til
eiginmanns míns, Alexanders.
Honum kynntist ég í náminu í Kais-
erslautern. Ég bjó í rúmlega sex ár í
Þýskalandi og í kjölfarið að kynnast
þar eiginmanni mínum, eignaðist ég
þar tengdafjölskyldu mína ásamt
stórum vinahóp. Tengingin við
Þýskaland er því mjög sterk og við
pössum upp á að fara þangað mjög
reglulega. Börnin eru alin upp tví-
tyngd og dvöldust oft hjá ömmu
sinni og afa í Þýskalandi hluta af
sumarfríinu þegar þau voru lítil.“
Fjölbreyttur starfsferill
Birgitta og Alexander fluttu til Ís-
lands 1998, hann byrjaði í doktors-
námi við HÍ en Birgitta vann stuttan
tíma við rannsóknir í lyfjaþróun en
var komin í sölu- og markaðsstörf
fljótlega og vann sem sölustjóri í
heilbrigðisgeiranum í nokkur ár. „Á
fyrstu fjóru árunum eftir að við
fluttum heim eignuðumst við börn
okkar þrjú og stofnuðum einnig lítið
fyrirtæki á þessum tíma þar sem við
fluttum inn rekstrarvörur fyrir
rannsóknarstofur. Það var því oft
mikið að gera á þessum árum með
lítil börn, vinnu og rekstur fyrir-
tækis. Reksturinn seldum við svo til
Hátækni sjö árum síðar.“
Miðborgina. Öll miðasala á þennan
viðburð rann til Menntunarsjóðs
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Birgitta vinnur núna hjá sprota-
fyrirtækinu EpiEndo Pharmaceuti-
cals sem er lyfjaþróunarfyrirtæki og
vinnur að rannsóknum á lyfi gegn
langvinnri lungateppu. Frumlyf
fyrirtækisins er nú á leið inn í klín-
ískar rannsóknir.
Birgitta hefur starfað þó nokkuð
við félagsmál. Hún sat í stjórnum
foreldrafélaga í skólum og íþrótta-
félögum, var í fyrstu stjórn Auðar í
krafti kvenna og var formaður ný-
sköpunarnefndar hjá FKA. Einnig
hefur hún setið í stjórnum hverfa-
samtaka og í deild Miðbæjarsamtak-
anna.
Áhugamál Birgittu tengjast úti-
vist og framkvæmdum. „Við erum
með stóran garð sem ég hef mjög
gaman af að breyta og bæta. Einnig
erum við með íbúðir á Norðurlandi,
þangað förum við hjónin reglulega
til að dytta að og gera upp enda
finnst mér fátt skemmtilegra en að
breyta og bæta. En annars hef ég
líka gaman af allri útiveru hvort sem
það er fjallganga, skíði eða garð-
vinna. Útihlaup eru svo fullkomin til
að hreinsa hugann og/eða hlusta á
góða hljóðbók. Núna eftir að börnin
eru orðin svona fullorðin gefst líka
meiri tími til að sinna gæluverk-
efnum. Ég er til dæmis að breyta
gömlum upphlut frá ömmu minni og
dunda mér við að skrifa bók fyrir
börnin með tengingu í menningar-
arfinn enda hef ég mikinn áhuga á
öllu sem að honum lítur og tel mikil-
vægt að haldið sé vel utan um hann.
Afmælisdaginn sjálfan nota ég til
að eiga ljúfa stund með eiginmanni
og börnum en svo ætlum við hjónin
að halda saman upp á 50 ára afmæl-
in okkar í ágúst og eigum þá von á
ættingjum og vinum frá Þýska-
landi.“
Fjölskylda
Eiginmaður Birgittu er Alexand-
er Schepsky, f. 28.9. 1970, doktor í
sameindalíffræði. Þau eru búsett í
Reykjavík. Foreldrar Alexanders:
Hjónin Helga Schepsky, 17.4. 1946,
vann hjá Deutsche Post, búsett í
Birgitta G. S. Ásgrímsdóttir markaðsstjóri – 50 ára
Ljósmyndari/Ólafur Þórisson
Fjölskyldan Stödd á ættarmóti síðastliðið sumar rétt hjá Hryggjum í
Mýrdal þar sem Birgitta var í sveit hjá afa sínum og ömmu.
Kominn tími fyrir gæluverkefnin
Afmælisbarnið Birgitta.
30 ára Margrét er
Reykvíkingur en býr í
Hafnarfirði. Hún er
með BS í sálfræði frá
Háskólanum í
Reykjavík og er ráð-
gjafi á legudeild
Barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítalans.
Maki: Jónas Orri Jónasson, f. 1987, verk-
efnastjóri hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu.
Systkini: Gunnar Freyr, Helga María,
Sigurður Narfi og Rut.
Foreldrar: Rúnar Gunnarsson, f. 1944,
ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður
og fv. dagskrárstjóri hjá RÚV, og Hildur
Jónsdóttir, f. 1953, vann síðast í fyrir-
tækjaþjónustu hjá Íslandspósti. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Margrét Rúnarsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Elmar Breki Hafdal
Kristinsson fæddist 1. júlí 2019. Hann
vó 3.388 g og var 51 cm langur. For-
eldrar hans eru Kristinn Sveinn Páls-
son og Fjóla Rún Hafdal Jónsdóttir.
Nýr borgari