Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 63

Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 Akureyringar standa nú frammi fyrir hneykslismáli sem mun ekki jafna við Lúkasarmálið í írafári og skelfingu, en gæti jafnað við það í fáránleika. Ég er auðvitað að tala um derhúfu- hneykslið sem er nú til umræðu á öllum samfélagsmiðlum og betri kaffistofum. Eða kannski bara á meðal þeirra sem ég sjálf- ur fylgi á Twitter. Annað hvort. Þórsarar mættu nokkrir í við- töl eftir fótboltaleik fyrir norðan á dögunum, allir með höfuðfat skreytt merkjum einhvers er- lends veðmálafyrirtækis. Ekki var löng bið eftir því að lögfróðir menn bentu á að auglýsingar um slík happdrætti væru bönnuð. Norðanmenn gripu til þess ráðs að friðþægja reiðilegan lýð- inn með yfirlýsingu þess efnis að félagið hafi aldrei og muni aldrei þiggja greiðslur frá umræddu fyrirtæki. Um mistök hafi verið að ræða og stjórn Þórs þyki þetta allt saman leitt. Málið var þó ekki úr sögunni. Í gær kom í ljós að stuðnings- mannakort Þórs, sem gefin voru út fyrir tímabilið, eru öll skreytt stóru vörumerki fyrrnefndrar veðmálasíðu. Ekki hefur þessum auglýsingum verið komið fyrir af manngæskunni einni og sér, fyrir vesalings fjárhættustarfsemina? Sigurvegarinn í þessu öllu saman er svo auðvitað pen- ingaspilið sjálft, sem fær þessa umræðu frítt. Öll umfjöllun er góð umfjöllun sagði einhver. Þeim getur svo látið sér fátt um finnast þótt KSÍ hafi sektað Þór um einhvern fimmtíu þúsund kall. Þeir hefðu borgað meira fyrir aðra eins auglýsingu! Af hverju gátu Þórsarar ekki bara byrgt fyrir sólu með sjoppu- derhúfunni hans Ólafs Jóhannessonar? Aldrei olli hún slíku fjaðrafoki og var glæsileg í þokkabót. BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Tveir reyndir knattspyrnu- menn hafa slas- ast illa í bikar- leikjum með liðum sínum og óttast er að þeir hafi báðir slitið krossband í hné. Reynist það rétt spila þeir ekki meira á þessu tímabili og ferillinn gæti verið í hættu hjá þeim báðum. Gunnar Þór Gunnarsson, varnar- maður KR, slasaðist á hné í bikar- leik gegn Vængjum Júpíters í Egilshöll í fyrrakvöld. Hallgrímur Jónasson, varnar- maður KA, varð fyrir því sama í bikarleik gegn Leikni frá Reykja- vík á Akureyri í gærkvöld. „Okkur grunar sterklega að hann sé með slitið krossband,“ sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, við Morgunblaðið í gærkvöld. Tveir reyndir úr leik? Hallgrímur Jónasson KNATTSPYRNA Mjólkurbikar karla, 3. umferð: Ólafsvík: Víkingur Ó. – Víkingur R..... 19.15 Kópavogsv.: Breiðablik – Keflavík ..... 19.15 Enski boltinn á Síminn Sport Southampton – Arsenal ............................ 17 Burnley – Watford .................................... 17 Chelsea – Manchester City ................. 19.15 Í KVÖLD! BIKARINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is FH og Fjölnir knúðu fram nauma sigra á 1. og 2. deildarliðum Þróttar úr Reykjavík og Selfoss í þriðju um- ferð bikarkeppni karla í knatt- spyrnu, Mjólkurbikarsins, í gær- kvöld. FH sótti Þrótt heim í Laugardal- inn og sigraði 2:1 þar sem Morten Beck Guldsmed skoraði bæði mörk- in, á 5. og 55. mínútu. Djordje Panic jafnaði fyrir Þróttara eftir hálftíma leik og staðan var því 1:1 í hálfleik. Fjölnir tók á móti 2. deildarliði Selfoss í Grafarvogi og komust gestirnir tvisvar yfir í fyrri hálfleik með mörkum Guðmundar Tyrfings- sonar og Valdimars Jóhannssonar. Ingibergur Kort Sigurðsson og Viktor Andri Hafþórsson jöfnuðu jafnóðum fyrir Fjölnismenn og stað- an var 2:2 í hálfleik. Jón Gísli Ström skoraði síðan sigurmark Fjölnis, 3:2, á 68. mínútu. Tveir fengu rauða spjaldið eftir hálftíma Tveir leikmenn Leiknis úr Reykjavík, Sólon Breki Leifsson og Brynjar Hlöðversson, fengu rauða spjaldið eftir aðeins hálftíma leik gegn KA á Akureyri. Báðir fengu sitt annað gula spjald. Þar með voru úrslitin ráðin, staðan var 1:0 fyrir KA sem bætti við fimm mörkum gegn níu Leiknismönnum og vann 6:0. Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði tvö marka KA og Mikkel Qvist, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Gunnar Örvar Stefánsson og Stein- þór Freyr Þorsteinsson eitt hver.  Magni úr 1. deild tók á móti úr- valsdeildarliði HK á Grenivíkurvelli og náði forystunni með skallamarki Gauta Gautasonar á 17. mínútu. Staðan var 1:0 þar til Birnir Snær Ingason jafnaði metin fyrir Kópa- vogsliðið á 68. mínútu. HK fékk síð- an vítaspyrnu á 87. mínútu þegar Ásgeir Börkur Ásgeirsson var felld- ur og úr henni skoraði Atli Arnar- son sigurmark HK, 2:1.  Þór úr 1. deild lenti í miklum vandræðum með 3. deildarlið Reyn- is úr Sandgerði, sem komst snemma yfir með marki frá Elton Barros. Sölvi Sverrisson jafnaði á 78. mín- útu og Sigurður Marinó Kristjáns- son skoraði sigurmark Þórs úr víta- spyrnu rétt fyrir lok framlengingar, 2.1.  Þremur leikjum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöld. Mikil spenna var í Safamýri þar sem 2. deildarlið Kórdrengja komst tvisvar yfir gegn úrvals- deildarliði Skagamanna en staðan var 2:2 eftir venjulegan leiktíma. Úrslitin má sjá á mbl.is/sport/ fotbolti. Stóru liðin sluppu vel  FH, Fjölnir og HK með nauma sigra gegn mótherjum úr 1. og 2. deild í bikarkeppninni og Þór þurfti framlengingu gegn 3. deildarliði Reynismanna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framlengt Kórdrengir og Skagamenn áttust við í tvísýnum bikarslag í Safamýri í gærkvöld þar sem grípa þurfti til framlengingar. Sandra María Jessen, landsliðskona í knattspyrnu, hefur samið að nýju við þýska félagið Bayer Leverkus- en til eins árs en Leverkusen skýrði frá þessu á heimasíðu sinni í gær. Sandra lék fyrst með Leverkusen seinni hluta tímabilsins 2015-16 en kom síðan aftur til félagsins frá Þór/KA í árslok 2018. Hún hefur spilað 29 leiki með liðinu í efstu deild og skorað tvö mörk. Lever- kusen nánast gulltryggði sér áframhaldandi sæti í deildinni á sunnudaginn með sigri á Köln í botnslag, 3:1. Sandra áfram í Leverkusen Ljósmynd/Leverkusen Leverkusen Sandra María Jessen fagnar marki í leik í Þýskalandi. Hólmbert Aron Friðjónsson tryggði nýliðum Aalesund fyrsta stig sitt í norsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gær þegar hann jafnaði metin í 2:2 gegn Brann á heima- velli, tíu mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Þetta var kærkomið stig fyrir Aalesund sem hafði fengið á sig ellefu mörk í fyrstu tveimur leikjunum. Matthías Vilhjálmsson skoraði mark Våler- enga í 4:1 tapi gegn Odd en Emil Pálsson hjá Sandefjord var rekinn af velli eftir klukkutíma leik þegar lið hans tapaði fyrir Stabæk, 2:0. Hólmbert tryggði fyrsta stigið Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic Skoraði Hólmbert Aron Friðjóns- son jafnaði metin gegn Brann. ENGLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Liverpool er með níu fingur á Eng- landsmeistarabikarnum eftir stór- sigur gegn Crystal Palce í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu á Anfield í Liverpool í gær, 4:0. Það voru þeir Trent Alexander- Arnold, Mohamed Salah, Fabinho og Sadio Mané sem skoruðu mörk Liverpool í leiknum en eftir að Alex- ander-Arnold kom Liverpool yfir á 23. mínútu var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Liverpool er nú með 86 stig í efsta sæti deildarinnar og hefur 23 stiga forskot á Manchester City, sem er í öðru sæti deildarinnar. City mætir Chelsea í kvöld á Stamford Bridge í London og gæti sá leikur orðið ör- lagavaldur í titilbaráttunni. Fari svo að Chelsea vinni leikinn verður Liverpool enskur meistari heima í stofu, líkt og gerðist tíma- bilið 2015-2016, þegar Leicester varð Englandsmeistari 2. maí 2016 eftir að Chelsea og Tottenham gerðu 2:2-jafntefli á Stamford Bridge í London. Liverpool varð síðast enskur meistari árið 1990 en hefur aldrei unnið ensku úrvalsdeildina frá stofnun hennar árið 1992 og er biðin fyrir stuðningsmenn liðsins því orð- in ansi löng. Þrenna á Old Trafford Anthony Martial gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir lið sitt Manchester United þegar Sheffield United mætti í heimsókn á Old Trafford í Manchester. Martial skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og bætti svo þriðja markinu við á 74. mínútu en United stjórnaði ferðinni frá A til Ö, allt frá fyrstu mínútu. Þetta var fyrsta þrennan sem leikmaður United skorar í ensku úr- valsdeildinni síðan 2013. Hollenski framherjinn Robin van Persie gerði það síðast í stjóratíð Sir Alex Ferguson gegn Aston Villa á Old Trafford. Loksins vann Everton Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á varamannabekk Everton þegar liðið heimsótti botnlið Norwich á Carrow Road í Norwich. Gylfi kom inn á sem varamaður í hálfleik og tíu mínútum síðar skor- aði Michael Keane sigurmark leiks- ins eftir sendingu frá Lucas Digne. Þetta var fyrsti sigurleikur Ever- ton síðan 8. febrúar, en liðið vann þá Crystal Palace 3:1 á Goodison Park. Liverpool í kjörstöðu  Getur orðið meistari í kvöld AFP Sigur Mohamed Salah, Roberto Firmino, Jordan Henderson og Fabinho fagna einu markanna gegn Crystal Palace á Anfield í gærkvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.