Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 67
Færðu í magann, uppþembu og loftþegar þú borðar steik ? Verki efþú leyfir þér smá mjólkurvörur? Sumir fá líka óþægindi, uppþembu og vindverki eftir máltíðar en vita ekki af hverju. Afar líklegt er að þetta tengist skorti á meltingarensímum, sem er algengt vandamál því þau sjá um niðurbrot fæðunnar. Ensím brjóta niður fæðuna Meltingarensím eru af mörgum tegundum og hafa öll mismunandi hlutverk en hjá öllum hefst meltingin í munninum. Þar eru fyrstu meltingarensímin sem fæðan kemst í snertingu við og hefja þau niðurbrot á kolvetnum. Í maganum taka svo fleiri tegundir af ensímum við og brjóta m.a. niður prótein, fitu og laktósa. Stundum gerist það þegar við borðum of mikið og/ eða að samsetning matarins er slæm að líkaminn nær ekki að „lesa skilaboðin rétt“ eða getur ekki framleitt nægilega mikið af ensímum. Þetta getur valdið vandamálum hjá fjölmörgum. Ekki bara magaónotum, þreytu, fæðuóþoli eða öðrum kvillum, heldur getur það gerst að við fáum ekki þá næringu sem maturinn á að skila okkur. Orkumeiri og nærist vel Kristín Sif Björgvinsdóttir er útvarps og íþróttakona sem hugsar vel bæði um hreyfingu og mataræði. Hún er sannkallaður orkubolti, 2 barna móðir sem starfar sem útvarpskona á K100 og þjálfari í Crossfit Reykjavík auk þess sem hún hefur æft með keppnisliði Mjölnis í boxi og keppir bæði í Crossfit og ólympískum hnefaleikum. Magaónot kringum máltíðir hafa þó háð henni en eftir að hún fór að nota Digest Gold meltingarensímin frá Enzymedica hafa lífsgæðin aukist til muna: „Ég fann oft fyrir orkuleysi kringum hádegið og fékk oft illt í magann eftir máltíðir. Ég fór að taka Digest Gold meltingarensímin og fann strax mikinn mun, magaverkirnir hurfu bókstaflega og orkan kom til baka. Ég borða hollan og góðan mat og vanda mig mjög við að fá rétt hlutföll af næringarefnum yfir daginn. Með því að taka inn Digest Gold veit ég að ég líka að líkaminn nær að nýta næringarefnin til fullnustu, ég er orkumeiri og get borðað áhyggulaus því magaónotin eru horfin“. Hverja vantar meltingarensím? Afleiðingar vegna skorts á meltingarensímum geta verið víðtæk og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en meltingarónotum. Einkenni skorts á ensímum geta verið: n Brjóstsviði n Vindverkir n Uppþemba n Kviðverkir & ógleði n Bólur n Nefrennsli n Krampar í þörmum n Ófullnægt hungur n Exem n Höfuðverkur n Skapsveiflur n Liðverkir n Húðkláði n Húðroði n Svefnleysi Einnig ættu allir þeir sem eru að taka inn mjólkursýrugerla að skoða hvort meltingarensím geti ekki hjálpað til við að koma meltingunni í gott horf og auka þar með almennt hreysti og vellíðan. Nokkrar staðreyndir um ensím Ensím á bætiefnaformi geta dregið úr einkennum fæðuóþols og geta hjálpað þörmunum að ná eðlilegri virkni. Með inntöku getur fólk skilað meira frá sér en áður og reglulegar og hungurtilfinning minnkar eða hverfur því næringin úr fæðunni nýtist líkamanum betur. Enzymedica Til eru fjórar tegundir meltingarensíma frá Enzymedica og fer það eftir einkennum hvað hentar best. Það sem er einstakt við þessar vörur er að ensímin eru unnin með aðferð sem kallast Therablend en þá er blandað mörgun stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH- gildum og ná þau þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím. Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana. Magaverkirnir hurfu og orkan kom tilbaka Enzymedica er fjölbreytt vörulína af öflugum meltingarensímum sem geta bætt meltinguna, dregið úr einkennum fæðuóþols og haft margvísleg jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina umfram bætta meltingu. ERTU MEÐ STERK BEIN? BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI OSTEO ADVANCE er fullkomin blanda fyrir beinin • Kalk og magnesíum í réttum hlutföllum • D vítamín tryggir upptöku kalksins • K2 vítamín sér um að kalkið skili sér í beinin Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona, Crossfit þjálfari og 2 barna móðir „Með því að taka inn Digest Gold veit ég að ég líka að líkaminn nær að nýta næringarefnin til fullnustu, ég er orkumeiri og get borðað áhyggulaus því magaónotin eru horfin“. Kristín Sif Björgvinsdóttir. Meltingarensím eru ávallt tekin rétt fyrir eða með mat. Þú finnurmuninn strax!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.