Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 56

Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 Skjótt skipast veður í lofti og í mars voru komnar upp aðstæður sem enginn hefði getað séð fyrir. Síðan þá hafa fyrirtæki í veitingageir- anum mörg hver róið lífróður en Jó- hannes segir að það sé styrkur Gleðipinna hversu fjölbreytta veit- ingastaði fyrirtækið hefur og þegar á móti blási sé lítið annað í boði en að gefa vel í og reima á sig takka- skóna. Nú hafa Gleðipinnar opnað sinn eigin banka þar sem gjaldmiðillinn heitir gleðikrónur og er þeim ætlað að efla andann og seðja hungur landsmanna. „Þetta er í raun full- komlega rökrétt ákvörðun. Við ákváðum að það væri bráðsnjallt í þessu ástandi að opna banka og gefa út okkar eigin gjaldmiðil,“ segir Jó- hannes brosandi og er greinilega hæstánægður með framtakið. „Þetta er Gleðibankinn – engir gulir miðar og þú tekur bara út en leggur ekkert inn. Að öllu gríni slepptu þá höfum lengi gælt við þá hugmynd að finna leið til þess að viðskiptavinirnir gætu valið á milli allra okkar staða því styrkleikar okkar felast ekki síst í því hvað fjölbreytnin er mikil. Við vildum líka hafa þetta skemmtilegt í leiðinni og það má segja að þetta sé mjög falleg peningaútgáfa,“ segir Jói og tekur fram að það sé engin leið að ruglast á gleðikrónum og hefðbundnum peningum. Nú þegar séu gleðikrónurnar komnar í töluverða dreifingu. „Fyrirtæki hafa verið að nýta sér þetta til að gleðja og hvetja starfs- fólk sitt. Það hefur mikið mætt á fólki, mikið rót og álag og það er ánægjulegt að sjá hvað mörgum fyr- irtækjum hefur verið umhugað um að hlúa að starfsfólki sínu og verð- launa það. Svo fer að bresta á með jólagjafakaupum og ljóst að sam- félagsleg ábyrgð er fyrirtækjum hugleikin og því leitast þau við að styrkja önnur fyrirtæki í greinum sem eiga undir högg að sækja núna. Mér finnst ótrúlega fallegt að sjá hvernig erfiðleikar sem þessir kalla fram það besta hjá fólki,“ segir Jó- hannes sem almennt er talinn með jákvæðari mönnum. „Ég tamdi mér þá reglu að finna mér eitthvað til að vera þakklátur fyrir á hverjum morgni. Hugarfarið skiptir svo gríðarlega miklu máli og ég hef alveg þurft á því að halda eins og sjálfsagt flestir,“ segir Jóhannes og kveðst afar þakklátur fyrir teym- ið í kringum sig. „Mér finnst magn- að hvað fólk sýnir sínar bestu hliðar. Það er svo auðvelt að detta í nei- kvæðni og vonleysi en það er oft þannig að þegar á móti blæs koma bestu eiginleikar fólks í ljós og þá sést hvað kjarninn í teyminu er sterkur. Við erum sannarlega að upplifa það hjá okkur og fyrir það er ég gríðarlega þakklátur.“ Jói segir að veitingabransinn finni sérstaklega mikið fyrir toppunum á bylgjunum. Það sé þá sem reyni á út- haldið en óvissan sé versti óvin- urinn. „Við vonum að bóluefnið komi sem fyrst þannig að lífið kom- ist í eðlilegt horf. Við erum alveg til í að fá nokkuð eðlileg jól og áramót. Ég væri alveg til í kvitta upp á það hér og nú,“ segir Jói og vonast – eins og sjálfsagt flestir – eftir því að bóluefni komi sem fyrst á markað „og við getum siglt inn í næsta sum- ar af dálitlum krafti. Það væri falleg tímalína ef hún myndi standast“, segir Jói að lokum og það er ekki annað hægt en taka undir það. Morgunblaðið/Eggert Engir gúmmítékkar í Gleðibankanum Auðvelt er að ná sér í gjaldeyri í Gleðibankanum en Jói segir best að óska eftir tilboði fyrir sinn hóp og því verði svarað hratt og vel. Áhugasamir geta sent tölvupóst á gledikron- ur@gledipinnar.is og eins er hægt að kynna sér nýja bankann og gjaldmið- ilinn frekar á vefsíðunni, www.gledipinnar.is. Ákváðu að opna sinn eigin banka Þegar American Style, Saffran, Hamborgara- fabrikkan, Keiluhöllin, Shake&Pizza, Blackbox, Eld- smiðjan, Aktu taktu og Pítan sameinuðust undir nafni Gleðipinnar í vor varð til ein stærsta veit- ingastaðakeðja landsins. Jóhannes Ásbjörnsson tók sér sæti í brúnni og ekki var annars að vænta en spennandi árs með nýjum og spennandi áskorunum. "Svona kleinuhringi smakkaði ég fyrst í uppáhaldsbakaríinu mínu hér á Íslandi. Ég sver ég gat ekki hætt að borða þá, þeir voru svo góðir. Þeir eru enn þann dag í dag mitt helsta uppáhaldsbakkelsi sem er fáanlegt á Íslandi. Ég bjó til mína eigin útgáfu af þeim og var heldur betur sátt. Uppskriftina að vatnsdeiginu má einnig nota á bolludaginn en þá slepp- ir maður kanilnum og bakar deigið í staðinn fyrir að djúpsteikja það." 12 kleinuhringir 150 ml mjólk 150 ml vatn 250 g smjör við stofuhita 10 g DanSukker-sykur 4 g salt 230 g Pillsbury-hveiti 3 g kanill 7 egg ISIO-olía til steikingar Kanilsykur til að velta kleinuhringj- unum upp úr Byrjið á því að skera bökunar- pappír í ferninga. Setjið mjólk, vatn, smjör, sykur og salt í pott og hitið blönduna að suðu. Um leið og suðan kemur upp bæt- ið þið hveitinu og kanilnum saman við og ristið massann með því að hræra vel og hratt allan tímann. Massinn er tilbúinn þegar hann Ljósmynd/Elenora Rós Frábærar viðtökur Bókin BAKAÐ með Elenoru Rós hefur fengið frá- bærar viðtökur. Þessir dásemdar vatnsdeigs-kanilkleinuhringir koma úr smiðju Elenoru Rósar sem var að gefa út bókina BAKAÐ með Elenoru Rós. Hér deilir Elenora uppskrift- inni sem hún segir að sé í algjöru uppáhaldi hjá sér. byrjar að losna frá hliðunum og er kominn saman. Þegar massinn er tilbúinn er hann settur í hrærivélarskál og hrærður hratt til að ná mestum hita úr deiginu. Ástæðan fyrir því að deigið er kælt niður áður en eggin eru sett saman við er vegna þess að annars eldast eggin. Gott er að hafa deigið ylvolgt þegar eggin fara saman við. Þegar deigið hefur verið hrært í smá tíma og er orðið volgt má byrja að bæta einu eggi við í einu, passið að hræra vel á milli og skafa öðru hvoru niður hliðarnar. Deigið er nú tilbúið og á að vera silkimjúkt og renna fallega en ró- lega niður. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið hringi á pappírsfern- ingana, sem þið klipptuð í byrjun. Hitið olíuna í potti upp að 180°C. Þegar olían er orðin vel heit er kleinuhringurinn settur of- an í pottinn með pappírnum. Hann mun losna frá um leið og hann byrjar að steikjast og þá fjarlægið þið pappírinn úr pottinum með töng. Steikið kleinuhringinn þar til hann er orðinn fallega brúnn eða í um 30-60 sekúndur á hvorri hlið. Takið kleinuhringinn úr pott- inum, leggið hann á eldhúspappír og leyfið olíunni að renna af. Á meðan kleinuhringirnir eru enn þá volgir er þeim velt upp úr kanilsykri og þá eru þeir tilbúnir. Vatnsdeigskanilkleinuhringir Hreinasta skemmtun Það er fátt skemmti- legra en að dunda sér við bakstur heima. ST.1 Hybrid Lite Verð: 21.995.- Vnr. E-83739401480 ST.1 Hybrid Lite Verð: 19.995.- Vnr. E-83725401001 ST.1 HYBRID FALLEGIR OG LÉTTIR HERRASKÓR, MEÐ MJÚKUM SÓLA ST.1 Hybrid Verð: 27.995.- Vnr. E-83642401001 ST.1 Hybrid Verð: 27.995.- Vnr. E-83642401053 S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE KRINGLAN - SMÁRALIND 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.