Morgunblaðið - 29.10.2020, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020
K100 heldur áfram að hækka í
gleðinni í ljósi hertra samkomu-
takmarkana. Næsta laugardag kl.
19:00 bjóðum við hlustendum í al-
vöruhrekkjavökupartí í beinni út-
sendingu. Stebbi Jak. og Dagur Sig-
urðsson mæta í hljóðver og syngja
bestu lögin í Halloween Horrorshow
en þeim til halds og trausts verður
Eva Ruza sem hryllilegur gestgjafi
kvöldsins.
Hlustaðu í útvarpinu eða fylgstu
með í beinu streymi á K100.is eða á
rás 9 í Sjónvarpi Símans.
Hrekkjavökupartí K100 er í boði
Sun Lolly.
Mynd/Halloween Horror Show.
Hrekkjavökupartí
í beinni á laugardaginn
Söngvarinn
Stefán Jak-
obsson hér sem
blóðugi prest-
urinn í Hallo-
ween Horror
Show.
Í kvöld klukkan 19:00 verður fjölskyldustund, gleði,
gaman og BINGÓ í beinni útsendingu á mbl.is. Það er
enginn annar en Siggi Gunnars sem mun stýra gleðinni
og færa þér sjóðandi heitar tölur beint heim í stofu.
Honum til halds og trausts verður samfélags-
miðlastjarnan Eva Ruza sem sér til þess að vinningarnir
rjúki út eins og heitar lummur. Fylgstu með á mbl.is
klukkan 19:00 í kvöld!
Stjórnendur Siggi Gunnars og Eva Ruza stýra bingói á mbl.is.
Bingó á mbl.is í kvöld!
Ekki missa af fjörugu bingói með Morgunblaðinu, mbl.is og K100 þar sem þú
og þín fjölskylda getið unnið stórglæsilega vinninga.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Samfélagsmiðlastjarnan og
skemmtikrafturinn Eva Ruza færir
hlustendum K100 fréttir af fræga,
fallega, fína og ríka fólkinu á
hverjum degi.
Í Hafnarfirði er verið að hvetja bæj-
arbúa til þess að skreyta extra
snemma til þess að lífga upp á
skammdegið og tilveruna á þessum
síðustu og verstu tímum. Þau Siggi
Gunnars og Eva Ruza heyrðu í
henni Rósu Guðbjartsdóttur, bæj-
arstjóra í Hafnarfirði, og veltu því
fyrir sér hvort hún væri ábyrg fyrir
þessu jólaævintýri í Hafnarfirði.
„Ja jólaævintýri, ég veit það ekki.
Við gerðum það nú reyndar í fyrra
að þá var óskað eftir því að setja
þessi hvítu fallegu jólaljós upp fyrr
en oft áður. Ég verð nú að viður-
kenna það að ég á dálítið stóran þátt
í því þar sem ég er mikið jólabarn og
mikil stemmningsmanneskja,“ segir
Rósa.
Á síðasta ári voru hvítu jólaljósin
sett upp um miðjan nóvember og
segir Rósa að í ár hafi ekki verið eft-
ir neinu að bíða.
„Ef við þurfum einhvern tíma á
því að halda að leggja okkar af
mörkum til að færa meiri birtu, yl og
gleði í hjörtu fólks þá er það núna,“
sagði hún en um síðustu helgi voru
jólaljósin kveikt við góðar undir-
tektir bæjarbúa.
Jólaljósin komin
upp í Hafnarfirði
Skreyta snemma Rósa Guðbjarts-
dóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.