Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2016, Side 206

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2016, Side 206
205RITDÓMUR: MENNINGARARFUR Á ÍSLANDI beinlínis fáránlegt. Það var engin nostalgía í þessu fólki – fyrir þeim var fortíðin fjarlæg og furðuleg eins og geðveik amma á háaloftinu sem allir skömmuðust sín fyrir. Best að láta sem hún væri ekki til. Það er merkilegt að hugsa til þess að það geti hafa verið tímar þar sem fólk lifði í þannig algeru jafnvægi við hefðir og siði að það upplifði ekkert af því sem arf sem hefði gildi og þyrfti að hampa og varðveita, að það væri engin sameiginleg reynsla sem skilgreindi það sem hóp, engin tákn eða minni sem gæfu tilveru þess gildi. Í byrjun 19. aldar sátu Íslendingar ennþá við og skrifuðu upp handrit og ortu rímur, og ennþá voru meira að segja skrifaðar Íslendingasögur, en þetta var allt meira eins og af ódrepandi vana en að það þætti einhver sérstakur þjóðarsómi. Hin stórskemmtilega bók, Menningararfur á Íslandi – Greining og gagn rýni, sem Valdimar Hafstein og Ólafur Rastrick ritstýrðu, fjallar ekkert um fyrri hluta 19. aldar en hún dregur athyglina kirfilega að því að menningararfur er af leiðing af breytingum, af rofi. Það er ekki fyrr en að breytingar verða sem við skynjum að hlutirnir hafa gildi. Það var í raun offramboð af fortíð í lífi Íslendinga í byrjun 19. aldar. Merkin um þá fortíð voru alls staðar og alltumlykjandi og svo samofin samtímanum að hvergi sást í saumana. Það sem maður ekki sér getur manni ekki þótt merkilegt. En um leið og breytingar fara af stað, og jafnvel þótt þær liggi bara í loftinu, vakna upp tilfinningar á borð við eftirvæntingu, kvíða, feginleika og eftirsjá. Í breytingum felst að það sem var verður ekki lengur, að minnsta kosti ekki eins. Þverstæðan sem margar af greinunum í þessari bók glíma við er að við það að missa gildi sitt geta hlutir öðlast gildi. Það er útbreiddur misskilningur – sem margir greinarhöfundar ráðast til atlögu gegn – að með því að varðveita gamla hluti, hvort sem það eru hús eða föt eða orðfæri eða matur, sé verið að viðhalda gildi þeirra. Það er ekki þannig. Ef upp kemur sú þörf eða skoðun að nauðsynlegt sé að varðveita einhvern hlut þá er það vísbending um að hann hafi glatað upphaf legu gildi sínu. En um leið hefur hann, með því að vera skilgreindur sem menningararfur, öðlast nýtt og öðruvísi gildi. Að hluta til er þetta spurning um framboð og eftirspurn. Fágæti eitt og sér getur valdið því að hlutir eru skilgreindir sem menningararfur, eitthvað sem eftirsóknarvert er að eiga og varðveita, og í stigveldi menningararfs er fágæti einmitt ein mikilvægasta breytan. Því fágætari og einstakari, þeim mun meiri ástæða til að varðveita. En þetta er f lóknara mál. Í raun er fullt af hlutum sem úreldast, hverfa og gleymast sem aldrei ná því að verða menningararfur. Það eru hlutir sem fáum dettur í hug að sjá eftir. Það geta verið fyrirbæri eins og þrælahald
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.