Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 4
nálgun Snr var að samhliða okkar samningaviðræðum hefur nefndin viljað ræða
sambærilega hluti við aðra viðsemjendur og það gert allt ferlið mun þyngra í vöfum.
Líkja má þessu við snjóflóðaleit þar sem allir aðilar standa í sömu línu og leita en
aðilar þurfa að bíða þar til hópurinn er tilbúinn til að færa sig samtaka áfram í næstu
skref. Við höfum því stundum þurft að bíða á meðan verið er að ræða við önnur
stéttarfélög og bandalög um einstök atriði.
Við höfum birt reglulega fréttir af gangi mála sem einhverjum kann að finna
frekar óljósar en á meðan á samtalinu stendur milli fíh og Snr ríkir gagnkvæm
þagnarskylda og því ekki hægt að fara út í einstök atriði viðræðnanna hverju sinni.
Ég get þó fullvissað félagsmenn um að samninganefnd fíh hefur ekki slegið slöku
við og haldið Snr alveg við efnið en metið stöðuna svo að betra sé að halda áfram
en að slíta viðræðum.
Stærsta verkefnið er stytting vinnuvikunnar
hjá vaktavinnufólki
nú þegar er búið að ná saman lausnum í ýmsum þáttum kjarasamningsins, m.a.
styttingu vinnuvikunnar hjá dagvinnufólki. Stærsta verkefnið fram að þessu er stytt-
ing vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki en meginþorri hjúkrunarfræðinga tilheyrir
þeim hópi og því mikilvægt að fá farsæla lausn. nú er þeirri grunnvinnu lokið en
síðastliðinn mánuð hefur sérstakur vaktavinnuhópur samsettur af fulltrúum aSÍ,
BhM, BSrB, fíh, reykjavíkurborg, ríki og sveitarfélögum unnið að breytingum á
vinnutíma fyrir þúsundir vaktavinnufólks á landinu, ásamt grundvallarkerfisbreyt-
ingum sem stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks. Þetta er mikil tímamótavinna
4 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Formannspistill
Ekkert gefið eftir í viðræðum!
Hjúkrunarfræðingar geta ekki beðið öllu lengur og viðsemjendum
okkar það alveg ljóst. Við héldum góðan baráttufund með yfir-
skriftinni Kjarasamninga strax, hingað og ekki lengra! 30. janúar
síðastliðinn í Háskólabíói ásamt BHM og BSRB þar sem yfirvöld
fengu skýr skilaboð.
Fyrir ellefu mánuðum síðan hefði mig aldrei órað fyrir því að
nú í febrúar 2020 stæðum við ennþá í kjaraviðræðum við ríkið.
En svona er lífið og ekki hægt að sjá allt fyrir þó auðvelt sé að
rýna í baksýnisspegilinn og sjá af hverju þetta hefur tekið
svona langan tíma. Það er þó alveg ljóst að samninganefnd
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) hefur ekkert gefið
eftir í viðræðunum við Samninganefnd ríkisins (SNR) og eru
megináherslur krafna okkar hækkun dagvinnulauna, stytting
vinnuvikunnar og bætt starfsumhverfi.