Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 11
fjölbreyttan vettvang í atvinnulífinu og mörg tækifæri, ekki
eingöngu hér á landi heldur einnig utanlands. Íslenskir hjúkr-
unarfræðingar úr háskóla Íslands eru eftirsóttir starfsmenn
um allan heim.“ hefðbundinn dagur hjá Björk hefst á því að
hún fer út að ganga, hvernig sem viðrar. Það er líkamsræktin
hennar, hugleiðslan og afslöppunin. hún segist eiga mörg
áhugamál sem hún reynir að sinna eftir bestu getu, en sum
hefur hún í bið stöðu þar til tækifæri býðst.
Björk er að lokum spurð að því hvernig henni lítist á
stöðuna á Íslandi nú þegar árið 2020 er gengið í garð? „Mér
líst vel á stöðu Íslands í dag og samfélagið sem við búum í.
Menntun hefur fleygt fram og við eigum margt framúrskar-
andi gott fólk. konur standa jafnfætis körlum á svo mörgum
sviðum, en ég man hvað ég var lengi að fella mig við kven-
presta þegar þær komu fyrst í kirkjurnar. Líklega hef ég verið
fordómafull eða fundist að sérstök störf væru kynbundin. Þá
langar mig til að segja frá því að ég var einu sinni á ferðalagi á
grænlandi og hópurinn sem ég var með, ásamt áhöfn flugvél-
arinnar sem kom á staðinn til að ná í okkur, gengum saman
niður í þorpið. Ég horfði á eina konuna í áhöfninni og fannst
svo flott að flugfélagið væri búið að setja strípur á armboðing-
inn á frökkum flugfreyjanna. Mér kom aldrei til hugar að þetta
væri sjálfur flugstjórinn fyrr en ég sá hana ganga í kringum
vélina eins og flugstjórar gera áður en farið er í loftið. að
lokum vil ég koma því á framfæri að þörfin fyrir hjúkrun
verður alltaf til staðar og auðvelt er að breyta um svið innan
hjúkrunarinnar og það er stór kostur,“ segir hún.
Viðtal: Magnús Hlynur Hreiðarsson
lauk doktorsprófi í mannfræði 78 ára gömul
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 11
Blánemar voru nemendurnir kallaðir sem hófu nám í hjúkrunarfræði
1960 en þessi mynd var tekin á fyrstu dögum námsins. Björk er næst
veggnum í röð þrjú neðan frá.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn með fulla aðild og fagaðild sem skrá
sig til þátttöku á fundinn fyrir 1. maí. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.
Fundurinn verður nánar auglýstur síðar á vefsvæði félagsins www.hjukrun.is
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn
Fulla aðild hefur hjúkrunarfræðingur sem sótt hefur um aðild að félaginu, greiðir félagsgjöld
samkvæmt ákvörðun aðalfundar af launum sínum og atvinnuveitandi greiðir tilskilin gjöld í sjóði
félagsins fyrir hans hönd.
*
Aðalfundur Fíh