Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 52
Inngangur
hlutverk bráðageðdeilda er að annast móttöku og meðferð
sjúklinga með bráð geðræn einkenni sem eru taldir hættulegir
sjálfum sér, umhverfi sínu eða öðrum (Salzmann-Erikson,
Lutzen, ivarsson og Eriksson, 2008). Ofbeldi, hegðunartrufl-
anir og sjálfsvígshætta eru algengustu ástæður fyrir innlögn á
bráðageðdeildir og ofbeldishegðun er algengasta ástæða fyrir
þvingandi meðferð á geðdeildum (Bowers, 2014; Bowers o.fl.,
2008; happell og gaskin, 2011). Sjúklingar á bráðageðdeildum
eru því í aukinni hættu á að vera beittir þvingandi meðferð
(Bowers o.fl., 2008). helstu meðferðarúrræði á geðdeildum á
Íslandi sem fela í sér þvingun eru nauðungarvistun, nauðung-
arlyfjagjöf, einangrun og að halda sjúklingum kyrrum með lík-
amsafli. Einnig má rökstyðja að náið eftirlit starfsfólks þar sem
gát (öryggismeðferð) er höfð á sjúklingum, læstar dyr geð -
deilda og markasetning sé ákveðin þvingun. Tilgangur þessara
úrræða er að minnka eða fyrirbyggja truflandi hegðun óró-
legra sjúklinga með það að markmiði að tryggja öryggi, ró og
meðferðarvænt deildarumhverfi (ryan og Bowers, 2005).
Meðferð sem felur í sér þvingun getur verið afar erfið fyrir
sjúklinga, starfsfólk og aðstandendur. Því er talið mikilvægt
fyrir alla hlutaðeigandi að skapa aðstæður sem koma í veg fyrir
eða lágmarka þvingandi meðferð á geðdeildum.
Þrátt fyrir það að ekki séu notaðar ólar eða belti á geð deildum
á Íslandi þá hefur þvingandi meðferð á geðdeildum hér á landi
verið gagnrýnd. Meðal annars gerði Evrópunefnd um varnir
gegn pyntingum og ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð
eða refsingu athugasemdir um skort á skráningu þvingandi
meðferðar á geðdeildum á Íslandi árið 2012 (Council of Eu-
rope, 2013). úrbætur hafa í framhaldinu verið gerðar varðandi
skráningu og framkvæmd nauðungarvistunar og upplýsinga-
gjöf til þeirra sem eru nauðungavistaðir. auk þess voru, á fyrri
hluta árs 2019, gerðar umfangsmiklar breytingar á verklagi um
gát eða öryggismeðferð sjúklinga á geðdeildum Landspítala.
Þær breytingar voru gerðar til þess að auka gæði náins eftirlits
með sjúklingum, auka öryggi sjúklinga, draga úr þvingunum
og bæta alla skráningu. Ástæða er til enn frekari aðgerða og
því vert að huga að umhverfi sjúklinga og þeim þáttum sem
geta haft áhrif á líðan þeirra og meðferð. Safe wards-líkanið um
öruggar sjúkradeildir byggist á fjölmörgum rannsóknum
síðustu áratuga sem gerðar voru til að kanna tengsl mismun-
andi þátta við þvingandi meðferðarúrræði og hvaða leiðir
væru færar til þess að draga úr notkun hennar. Safewards-lík-
anið er því hannað til þess að draga úr atvikum er geta leitt til
þvingandi meðferðar (Bowers, 2014).
Með þessari grein er leitast við að varpa ljósi á siðfræði
þvingandi meðferðar á geðdeildum og þeim tengdu þáttum
sem Safewards-líkanið felur í sér. Safewards-líkanið bendir á
þá þætti legudeilda sem hafa áhrif á atvik sem leiða til árekstra
og þvingandi meðferðar. Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga
sem starfa á geðdeildum að þekkja þessa þætti og hvernig hægt
er að vinna með þá til að draga úr árekstrum og spennu á
deildum sem leitt geta til þvingandi meðferðar sjúklinga.
Þvingandi meðferð
á geðdeildum
Tilgangur þvingandi meðferðar á geðdeildum hefur skýra til-
vísun í kenningar atferlismótunar innan sálfræðinnar. kenningar
atferlismótunar fjalla um tengsl mismunandi áreitis við breyt-
ingar á hegðun og hvernig unnt er að stjórna áreiti til að hafa
áhrif á hegðun. Þær eru í raun námskenningar þar sem áhrif
umbunar og refsingar eru í aðalhlutverkum. rannsóknir hafa
sýnt að með því að veita umbun fyrir ákveðna hegðun eykst sú
hegðun í framtíðinni en þá er um jákvæða styrkingu að ræða.
refsing er hins vegar þegar ákveðinni hegðun fylgir neikvætt
áreiti, eins og skammir, og leiðir það til þess að hegðunin minnk -
ar (Martin og Pear, 1992). Þvingandi meðferð sem hefur neikvæð
áhrif á sjúklinga getur því fallið undir skilgreiningu sem refsi -
meðferð innan atferlismótunar (rachman, 1996). Sýnt hefur
verið fram á að jákvæð skilyrðing gefur mun betri árangur en
refsimeðferð. refsingar geta haft í för með sér neikvæð viðbrögð
eins og reiði og ofbeldi. neikvæð hegðun minnkar hratt við
52 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
Hjúkrun á geðdeildum — siðferðilegar mótsagnir
þvingandi meðferðar og líkan um öruggar sjúkra-
deildir
Eyrún Thorstensen, hjúkrunarfræðingur, MSc, verkefnastjóri1; Helga Bragadóttir, hjúkrunar-
fræðingur, PhD, FAAN, prófessor, forstöðumaður fræðasviðs í hjúkrunarstjórnun1,2
1 Landspítala
2 hjúkrunarfræðideild, heilbrigðisvísindasviði, háskóla Íslands v/hring-
braut, 101 reykjavík
Þrátt fyrir það að ekki séu notaðar ólar eða belti
á geð deildum á Íslandi þá hefur þvingandi
meðferð á geðdeildum hér á landi verið gagn -
rýnd.