Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 6

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 6
alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WhO) ákvað að tileinka hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum árið 2020 og vill vekja athygli á mikilvægi þessara stétta innan heilbrigðisþjónust- unnar. WhO telur að þessar stéttir séu um helmingur heildar - fjölda heilbrigðisstarfsmanna í heiminum. Til að ná heims - mark miðum Sameinuðu þjóðanna fyrir 2030 telur stofnunin jafnframt að þörf sé á 9 milljónum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til viðbótar í heiminum en öll aðildarríki hafa skuldbundið sig til að innleiða markmiðin sautján, þar með talið Ísland. alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur því hvatt þjóðir heimsins til að fjárfesta betur í störfum hjúkrunarfræð- inga og ljósmæðra, hámarka framlag þessara tveggja stétta og tryggja þannig öllu fólki heilbrigðisþjónustu án tillits til efna- hags þeirra. Markmiðið að bæta stöðu og ímynd hjúkrunar Árið 2020 er einnig síðasta árið í þriggja ára átakinu Nursing Now sem alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og alþjóðaráð hjúkr - unarfræðinga (iCn) hafa staðið fyrir. Markmið átaksins hefur verið að bæta stöðu og ímynd hjúkrunar á alþjóðavettvangi og valdefla hjúkrunarfræðinga. Því var sett af stað svonefnd Nightingale-áskorun í ár í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli florence nightingale sem hefur þann tilgang að ná til hjúkr- unarfræðinga og ljósmæðra yngri en 35 ára og styðja næstu kynslóð í að verða leiðtogar í sínu fagi. Sjá nánar á vefslóðinni https://www.nursingnow.org/nightingale/. Markmiðið er að a.m.k. 20.000 hjúkrunarfræðingar og ljósmæður um heim allan njóti góðs af átakinu og a.m.k. 1.000 vinnustaðir taki þátt í verkefninu. nú þegar hafa yfir 20.000 hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á 572 vinnustöðum í 66 löndum hafið þátttöku í verkefninu. nightingale-verkefninu hefur verið hrint af stað hér á landi og hafa heilsugæsla höfuð - borgarsvæðisins, Landspítali og Sjúkrahúsið á akureyri þegar skráð sig til leiks. félagið fagnar því og verður áhugavert að fylgjast með hvernig þessir vinnustaðir vilja kljást við verk- efnið, sem og hvort fleiri vinnustaðir á Íslandi muni ekki skrá sig til leiks. Markmiðið er að vekja athygli á störfum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélag Íslands hófu af þessu tilefni samstarf í haust vegna ársins og vilja vekja saman athygli á árinu 2020. fjölbreyttir viðburðir verða á árinu 2020 ásamt því að ýmislegt verður gert til að vekja athygli á störfum beggja stétta. Til dæmis fór fyrsti sameiginlegi við - burður félaganna fram 16. janúar síðastliðinn í hallgríms- kirkju þar sem hjúkrunarfræðingar og ljósmæður hleyptu árinu 2020 af stokkunum af krafti. Einnig verða gefin út hlaðvörp um störf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á árinu og fyrir- hugað er sameiginlegt málþing stéttanna sem haldið verður 12. nóvember næstkomandi. félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga og Ljósmæðrafélag Íslands hvetja yfirvöld og félagsmenn sína til að fjölmenna á viðburði ársins og nýta árið til fullnustu með betri heilbrigðisþjónustu að leiðarljósi fyrir alla lands- menn og undirstrika mikilvægi þessara heilbrigðisstétta. 6 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 2020 ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra Hera Björk Þórhallsdóttir og Björn Thoroddsen fluttu tónlist á viðburði félaganna í Hallgrímskirkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.