Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 27
skemmtilegast? að hitta frábært fólk og hlæja, ferðast og dansa eins og enginn sé
að horfa. Hvaða eiginleika metur þú mest í fari vina? Einlægni. Eftirlætiskvik-
myndin? The Lion king. Markmið í lífinu? Ég ætla að hlaupa hálfmaraþon innan
tveggja ára. Eftirminnilegasti sjúklingurinn? Staldra lengst við þessa spurningu því
ég á erfitt með að nefna einhvern einn sjúkling. Ég hugsa stundum til þess þegar ég
vann á Landakoti sumarið áður en ég byrjaði í hjúkrunarfræði en þetta voru mín
fyrstu kynni af hjúkrun og sótti ég um starfið til að fá staðfestingu á að þetta væri
námið fyrir mig. Margir einstaklingar sem þar lágu eru mér í fersku minni. Óborg-
anlegt að fá að kynnast eldra fólki svona vel og ætli þau hafi ekki kennt mér svolítið
á lífið og tilveruna. Hvaða starfsvettvang myndirðu kjósa annan en núverandi? Á
erfitt með að sjá mig í einhverju öðru en hjúkrun en finnst líklegast að ég myndi
prófa kennarann, hef alltaf haft gaman af því að kenna öðrum. Eitthvað að lokum
… Takk fyrir mig og gleðilegt ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra!
Tugi ára í golfi og enn ekki hola í höggi!
— Auður Elísabet Jóhannsdóttir
Fullkomin hamingja er … bíddu … er hún til? Hvað hræðist þú mest? hamfara -
hlýnun … flott orð. jú, er orðin ansi hrædd um að fara ekki holu í höggi þrátt fyrir
tugi ára í golfi. Ég bara bíð og bíð og bíðððð. Fyrirmyndin? Margar fyrirmyndir, ég
hef alltaf heillast mikið af Oprah Winfrey og faðir minn hefur verið fyrirmynd í að
sjá það góða í hverri manneskju og vera létt í lund. Eftirlætismáltækið? „Það er alltaf
bongó blíða á Sigló“ … Maður verður heilaþveginn þegar maður á föður sem er for-
fallinn Siglfirðingur, „lókal djók“ á milli okkar í stórfjölskyldunni. Hver er þinn helsti
kostur? já, nú vandast málið … kannski næmni, samningamaður, hæfilega kærulaus
í sumu en mjög nákvæm í öðru. Hvað vildirðu verða þegar þú varst ung? Langaði
mikið að vera dansari þegar var ung … en foreldrar mínir hefðu aldrei haft efni á að
senda mig í samkvæmisdansa, fékk að fara í dansskóla heiðars Ástvalds (af því hann
var Siglfirðingur, sko) en í forgangi voru skíði (faðir minn var og er tvöfaldur
Ólympíu fari á skíðum, skíðakennari og -þjálfari). Eftirlætismaturinn? úuu, það er
sko gaman að gefa mér að borða, elska fisk, síður kjöt en borða allt. Hvaða löst áttu
erfiðast með að þola í fari annarra? undirförli og lygi. Hverju ertu stoltust af að
hafa áorkað? koma þremur frambærilegum einstaklingum á legg, langlíft hjónaband
og að hafa kynnst mörgum dýrmætum vinum á lífsleiðinni. Eftirminnilegasta
ferðalagið? Þau eru mörg, nýjasta er stórafmælisferð; sigling þarsíðustu jól og ára-
mót, fyrsta skipti sem ég fer í siglingu (ekkert golf eða skíði) og það var dá semd.
Einnig fararstjóraferð með millistykkinu mínu (hk-fótbolti) í gothia cup, frábær
hópur, úrslitakeppni og læti. Ógleymanlegt. Ofmetnasta dyggðin? Við erum svo
duglegar, algjörlega ómissandi. Hver er þinn helsti löstur? Er stundum óþolinmóð,
við vissar aðstæður. Hverjum dáist þú mest að? fólki sem fylgir hjarta sínu og lætur
ekkert stoppa sig. Eftirlætishöfundurinn? Er alæta á bækur. hef lesið mjög mikið
gegnum tíðina en það eru tveir höfundar sem ég les alltaf um jól og það er ragnar
jónasson (Siglfirðingur!) og Yrsa Sigurðardóttir. Ofnotaðasta orðið eða orðatil-
tækið? já, ok. Mesta eftirsjáin? Þýðir ekkert að horfa í baksýnisspegilinn þó maður
geri það ósjálfrátt einstaka sinnum. Það er hægt að dvelja við sorgina, missi, en langar
ekki að vera á þeim stað, frekar horfa fram á við, það er svo margt að vera þakklát
fyrir. Eftirlætisleikfangið? golfsettið — hvað annað! Stóra ástin í lífinu? Þegar ég
fékk frumburðinn í hendurnar, heilbrigt barn. Þvílík guðsgjöf að fá þann heiður að
verða móðir en það tókst í fjórðu tilraun. Móðurást er ótrúlegt afl og alveg eins með
hin tvö. Þakklæti efst í huga að fá þetta hlutverk að vera móðir og vonandi amma.
Hvaða eiginleika vildirðu helst hafa? Ohh, hvað væri gaman að hafa bara brot af
hæfileikum ara Eldjárns, hvernig hann hefur einstaka hæfileika að koma frá sér
skemmtiefni. Þitt helsta afrek? fjórar fæðingar, miserfiðar. Menntun mín, öll
verðlaun sem maður hefur fengið í gegnum árin: skíði, dans, fyrirsætukeppni, golf
setið fyrir svörum …
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 27
Auður Elísabet Jóhannsdóttir,
hjúkrunarfræðingur hjá Krabba-
meinsfélaginu.