Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 45
Framtíðarsýn hjúkrunar
er betra aðgengi
Það er farið að líða að lokum heimsóknar minnar til Stein-
unnar Birnu og eftir að hafa kynnst umfangsmiklu starfi
hennar, sem hún sinnir að mestu leyti ein í síbreytilegu um-
hverfi heilbrigðisþjónustunnar, liggur beinast við að spyrja
hana hver framtíðarsýn hennar sé varðandi hjúkrunar- og heil-
brigðisþjónustu á Vopnafirði? „Eins og þetta er í dag þá er
heilsugæslan úti á landi undirfjármögnuð. Ég myndi vilja sjá
lengri þjónustutíma. Mitt litla starfshlutfall er liður í sparn -
aðaraðgerðum þar sem ekki er horft til þeirrar stefnu að við
eigum að vera fyrsti viðkomustaður skjólstæðinga. Ég hef velt
fyrir mér fjarlækningunum þó ég sé ekki alveg búin að sjá það
fyrir mér í framkvæmd. nema að hér fá skjólstæðingar þjón-
ustu sálfræðinga í gegnum Skype og það er mikilvægt skref.
Ég tel að það væri mjög gott að færa sérfræðiþjónustu nær
fólkinu, þá er ég líka að tala um að hér býr fólk sem á mjög
erf itt með að fara af staðnum, til dæmis aldraðir sem dvelja
hér í Sundabúð og hafa ekki aðgang að augnlækni af því að
hingað kemur enginn augnlæknir. unga fólkið okkar hefur
tækifæri til að fara í burtu og sækja þessa þjónustu en ég myndi
vilja sjá betra aðgengi fyrir hópinn sem kemst ekki í burtu og
það myndi nýtast öðrum íbúum líka. Ég held að ein af ástæð -
um þess hvernig staðan er í sérfræðiþjónustu úti á landi sé að
það er ekki skilgreint nákvæmlega hvaða þjónusta eigi að vera
til staðar á ákveðnum stað eða innan ákveðins svæðis. Og ef
þetta er ekki skilgreint þá fara heldur ekki fjárveitingar í
þennan þjónustuþátt. En eins og þetta er núna þá greiða heil-
brigðisstofnanirnar sjálfar fyrir þjónustu á ólíkum stöðum og
líka eftir því hver hefðin hefur verið. En við hér á Vopnafirði
erum út úr, staðsetning þorpsins er þannig að það þarf að hafa
fyrir því að koma hingað. fallegi fjallgarðurinn hérna hinum
megin við fjörðinn er hindrun!“
reynsla Steinunnar undangengin ár hefur leitt í ljós að það
eru ekki einungis sérfræðilæknar sem þarf að auka aðgengi að:
„Ég myndi vilja hafa meira aðgengi að sálfræðiþjónustu. Það
er biðlisti til að komast að hjá sálfræðingunum á Egilsstöðum
og þeir forgangsraða sínum verkefnum og beiðnum en að -
gengið er ekki gott þó að málin séu sett í forgang. Þá þurfa
skjól stæðingar að keyra til Egilsstaða til sálfræðings og fá svo
Skype-viðtölin hér á stofunni hjá mér. Ég hefði viljað hafa betra
aðgengi hér á staðnum, það hefði verið hægt að nýta það
víðtækar í skólaheilsugæslunni líka, það er oft mikið álag hjá
mér í viðtölum þar.“
nú er lítil stúlka komin í ungbarnaeftirlit ásamt móður
sinni. Það er því tími til kominn fyrir mig að kveðja þennan
skipulagða, fjölhæfa og lausnamiðaða hjúkrunarfræðing og
deildarstjóra á Vopnafirði. Mávarnir kveðja mig sömuleiðis
þegar ég stíg inn í bílinn. Enn virðist allt vera með kyrrum
kjörum á heilsugæslustöðinni, en eftir að hafa kynnst starf-
seminni hjá Steinunni Birnu og Baldri lækni veit ég að það er
ekki allt sem sýnist.
Viðtal: Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
með marga hatta í fjölbreyttu og gefandi starfi
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 45
skoðunarmönnum fyrir kjörtímabilið 2020-2021.
Stjórn félagsins: 3 stjórnarmenn og 1 varamaður.
Ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga: 3 aðalmenn.
Samkvæmt lögum félagsins er kosið til tveggja ára í senn
nema í tilfelli skoðunarmanna, þar er kosið til eins árs í senn.
Hámarksseta í nefndum og stjórn er ögur tímabil samfellt.
Kosning fer fram á aðalfundi félagsins 7. maí 2020.
Framboð tilkynnist til kjörnefndar á netfangið
kjornefnd@hjukrun.is.
Framboðsfrestur er til 1. apríl 2020
boðum
Framboð í stjórn og ritnefnd