Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 42
Á stöðinni er rými með myndgreiningartæki, en Baldur læknir
tekur myndir sem eru sendar á Sjúkrahúsið á akureyri. Ég spyr
Steinunni hvort það megi ekki segja að þetta sé vísir að fjar-
heilbrigðisþjónustu og tekur hún undir það. Skrifstofa Baldurs
er við hlið aðalskiptistofunnar þar sem finna má ýmis tæki og
hluti til hjúkrunar, lækninga og rannsókna, sem tilheyrir rými
sem gegnir í raun svipuðu hlutverki og bráðamóttaka á spítala:
„Við notum bæði þessa skiptistofu, en Baldur fyrst og fremst í
tengslum við sína læknatíma. Þannig að ég reyni að bóka á
hana þegar hann er með símatíma eða strax eftir hádegi svo
að tímarnir okkar skarist ekki. Það er líka stundum hóað í mig
og ég beðin um að taka hjartalínurit eða setja „holter“ á fólk.
Svo er líka önnur skiptistofa hérna við hliðina og hún er í raun-
inni mæðraskoðunarherbergi, en hér starfar ljósmóðir í verk-
töku sem annast mæðraskoðanir og ég nýti það sem skiptistofu
líka. En aðstaðan er ekki eins góð, og þá þarf ég að hlaupa eftir
umbúðum og fleiru af því að það er allt hérna á aðalskiptistof-
unni. Og ég þarf að gæta þess að það sé allt til af öllu!“ Sama á
við um hjúkrunarlagerinn sem er sneisafullur af vörum, skipu-
lega raðað í hillur. „já, ég ber ábyrgð á hjúkrunarlagernum, að
það sé alltaf allt til, og ég reyni að eiga allt sem þarf, sem er
auðvitað svo ótrúlega mikið.“
Lyfjaherbergið og rannsóknarstofan eru saman í litlu rými:
„Það er í rauninni ótrúlega mikið umstang í kringum lyfja -
lagerinn okkar. Við erum með rafrænt birgðakerfi, alfa, og ég
þarf að taka á móti öllum vörum sem koma inn í kerfið, halda
vel utan um fyrningarlistann, lyfin í ísskápnum, eiturskápnum,
vökvana sem þarf að hafa eftirlit með og svo læknatöskuna og
aðra tösku sem er í sjúkrabílnum. Ég fer sem sagt í hverjum
mánuði yfir allt saman: fyrningu, töskurnar báðar og panta og
fylla á ef þarf. Við erum líka með bóluefni hérna, neyðarlyf og
einnig geyma skjólstæðingar, sem eru á föstum lyfjagjöfum,
lyfin sín hjá okkur. Og svo má ekki gleyma að við erum auð -
vitað með skráningu á öllu: hitastigi ísskápsins, atvikaskrán-
ingu ef það verður eitthvert frávik og svo er ég líka með
þrif lista sem er krafa frá lyfjaeftirlitinu. Það þarf að fara yfir
allt, þrífa hillurnar, bekkina og skrá allt.“ Ég get ekki varist
þeirri hugsun að kröfurnar um skráningu séu meðal annars
tilkomnar til að gæta að öryggi og gæðum, en um leið er verið
að setja enn meiri ábyrgð á herðar hjúkrunarfræðings — og
það gæti komið niður á öryggi og gæðum ef ábyrgðin verður
of mikil.
Skjólstæðingar stöðvarinnar koma að jafnaði í bókaðar
blóðprufur á miðvikudögum og sér læknirinn yfirleitt um að
taka þær en hjúkrunarfræðingur sinnir þeim líka, sérstaklega
þegar margir koma í blóðprufu eða þegar afleysingalæknar
þurfa aðstoð. hjúkrunarfræðingur sér svo um að ganga frá
blóðprufunum, setja þær í skilvindu, pakka þeim og skrá.
Sumar prufur fara í Blóðbankann, til Íslenskrar erfðagrein-
ingar eða í veirufræðirannsóknir. „Þetta getur alveg verið
kaótískt ástand hérna stundum,“ segir Steinunn, „sérstaklega
ef það eru margir í blóðprufu þar sem því fylgir ákveðin tíma-
pressa. Stundum liggur við að ég loki hurðinni á þessari litlu
rannsóknarstofu til þess að ná öllu!“ segir hún og hlær.
Við erum stofnunin hérna
Í ljósi aukinnar umræðu um viðbrögð á landsbyggðinni vegna
slysa sem meðal annars má rekja til fjölgunar ferðamanna, þá
spyr ég hvernig því sé háttað hjá þeim á Vopnafirði. hún segir
þau taka þátt í hópslysaæfingum sem eiga sér stað og hún þurfi
að gæta þess að það sé alltaf allt til reiðu á stöðinni: „Ef það er
slys, þá náttúrlega þarf maður að rífa allt með sér, allar slysa-
töskurnar og allt sem til er.“ Baldur læknir er sá aðili sem er
alltaf á bakvakt en Steinunn er í 70% starfshlutfalli og tekur
engar bakvaktir. Einnig er móttöku- og læknaritari á heilsu-
gæslunni sem er mikilvægur hlekkur á litlum vinnustað og
þarf að kljást við ófyrirséð verkefni enda fyrsti starfsmaðurinn
aðalbjörg stefanía helgadóttir
42 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
„Ég er svona að fara úr einu í annað því að tím-
inn er líka svo mikilvægur, og sinna mjög
ólíkum verkefnum yfir daginn. Já, og svo er ég
líka deildarstjóri yfir sjálfri mér!“
Heilsugæslustöðin á Vopnafirði er nyrsta starfsstöð Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands — HSA — sem nær yfir sveitarfélögin Vopnafjarðar-
hrepp, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshrepp, Borgarfjarðarhrepp, Seyðis -
fjarðar kaupstað, Fjarðabyggð, Breiðdalshrepp, Djúpavogshrepp og fyrr-
verandi Skeggjastaðahrepp.