Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 9
hún var hjúkrunarkona sem sá fyrir sér,“ segir Björk þegar hún
rifjar upp af hverju hún vildi verða hjúkrunarkona. hún segir
að kynni hennar af systrunum á St. jósepsspítala í hafnarfirði
hafi líka haft mikið að segja um ákvörðunina, en þær höfðu
mikil áhrif á hana — svo mikil að á tímabili var hún jafnvel að
hugsa um að gerast nunna en að baki lágu praktískar ástæður.
„Ein systir mín lá lengi á St. jósepsspítala og ég heimsótti hana
þangað nærri daglega. Systurnar hjúkruðu henni og voru ein-
staklega elskulegar við okkur. nunnurnar bjuggu á efstu hæð
spítalans og ein nunnan bauð mér að skoða heimili þeirra og
þá fann ég út að þessar konur áttu sín eigin herbergi, rúm,
kommóðu, skrifborð og stól. Þetta fannst mér vera drauma -
staða því heima hjá mér bjuggum við frekar þröngt og ég þráði
að eiga sérherbergi,“ segir Björk.
Vann á barnadeild Landspítalans
Til að afla sér upplýsinga um hjúkrunarnámið pantaði Björk
viðtal við Þorbjörgu skólastjóra. Þorbjörg lagði til að Björk
kynntist lífinu á sjúkrahúsi og fékk í kjölfarið meðmæli hjá
deildarstjóra. hún réð sig á barnadeild Landspítalans og vann
þar eitt sumar sem gangastúlka hjá fröken Árnínu guðmunds-
dóttur. „Það var gott að vera á barnadeildinni og mér fannst
gaman að vera innan um allar flottu ungu hjúkrunarkonurnar
sem þar störfuðu og hjúkrunarnemana. Í janúar 1960 hóf ég
svo nám í hjúkrunarskóla Íslands. Við hjúkrunarnemarnir
bjuggum á heimavist og þar voru strangar reglur. Enginn utan -
aðkomandi fékk t.d. að kom í heimsókn inn á herbergi og við
áttum að vera komnar heim á vissum tímum á kvöldin,“ segir
Björk sposk á svipinn.
Gaman í ungbarnaheimsóknum
Björk er því næst spurð um hjúkrunarnámið, hvernig það hafi
verið. „Mér fannst spennandi að læra hjúkrun og vann á
flestum deildum Landspítalans á nemaárunum mínum. Það
gaf mér innsýn í þá miklu fjölbreytni sem sjúkrahúshjúkrun
býr yfir. Á heilsuverndarstöðinni í reykjavík var ég mest
hrifin af því að fylgja ljósmæðrum í ungbarnaheimsókn, þá sá
ég mismunandi aðstæður hjá nýbökuðum mæðrum. Ég var
send á sjúkrahúsið í keflavík í fáeina mánuði, þar kynntist ég
alls kyns hjúkrun og þótti mest spennandi að vera á skurðstof-
unni. Ég bjó á jarðhæðinni í spítalabyggingunni og var því til
taks á kvöldin og um nætur ef eitthvað kom upp á á deildinni.
Þetta fannst mér mikil ábyrgð. Seinna á nematímanum var ég
send í nokkra mánuði á sjúkrahúsið á akureyri og kunni vel
við mig þar.“
Vann í 36 ár á Kleppi
1. mars 1967 hóf Björk störf á sjúkrahúsinu kleppi sem nú til
dags heitir geðdeild Landspítalans á kleppi. „já, á þessu tíma-
bili í lífi mínu var ég búin að eiga börnin mín og var að byggja
og mér bauðst húsnæði og barnapössun á staðnum. Ég sló til
og hugsaði með mér að ég gæti unnið þarna í tvö ár. En margt
fer öðruvísi en ætlað er. Ég vann við geðdeildirnar til haustsins
2003,“ segir Björk og hlær og bætir við: „Þegar ég hóf störf á
kleppi var mikið breytingartímabil, iðjuþjálfun varð almenn,
félagsráðgjafi var ráðinn og mér fannst þetta allt spennandi.
Það voru fyrirlestrar og námskeið fyrir okkur hjúkrunar -
fræðingana sem varð til þess að ég lærði meira um geðsjúk-
dóma og hjúkrun geðsjúklinga. kleppur var ekki lengur
geymslustaður fyrir geðveikt fólk heldur fór mikið af tíma
mínum í að sjá til þess að sjúklingarnir á deildinni minni ein-
angruðu sig ekki heldur tækju þátt í því sem þeim stóð til boða.
Í mörg ár var ég svo í hlutavinnu á kvöldvöktum í Víðihlíð því
það var hagstæðara fyrir mig og fjölskylduna. Þegar geðdeild
Landspítalans var opnuð við hringbraut flutti ég mig þangað.“
Fyrsti hjúkrunarfræðingurinn
á næturvakt
Til að byrja með var Björk hjúkrunarfræðingur á 33C á kleppi
og til gamans má geta þess að hún var fyrsti hjúkrunarfræðing-
urinn á næturvakt í húsinu því 33C var fyrsta deildin sem var
opnuð. „Við vorum tvö á vakt yfir einum sjúklingi sem var alltaf
að koma fram um nóttina til að athuga hvernig við hefðum það,
hvort við gætum nú bara ekki sofið, hann myndi bara passa upp
á okkur,“ segir Björk og hlær. Þegar nýi hjúkrunarskólinn hóf
tveggja ára sérnám fyrir geðhjúkrunarfræðinga dreif hún sig í
það nám og kláraði það 1981. „Eiginlega fannst mér það vera
nauðsynlegt fyrir okkur hjúkrunarfræðingana sem störfuðum
við geðdeildirnar að fara í sérnám til að fá víðari sýn á starfið
okkar,“ segir Björk um leið og hún tekur fram að þegar deildar-
stjórastaða losnaði á göngudeild fyrir áfengis- og vímuefnasjúk-
linga 32E sótti hún um og fékk þá stöðu. Þar starfaði Björk frá
1. desember 1981 til 1. september 2003. Á göngudeildinni störf -
uðu nokkrar starfsstéttir, hjúkrunarfræðingar, læknar, félags -
ráðgjafar, iðjuþjálfar, sálfræðingar, áfengisráðgjafar og svo lækna-
og móttökuritarar. Þarna var gott samstarf. hjúkrunarfræðing-
arnir tóku viðtöl og stýrðu svo hverjum sjúklingi áfram, þeir sáu
um lyfjagjafir og fylgdust með hverjum og einum hvort sem það
var í stuttan eða langan tíma.
Nennti ekki að sitja heima og prjóna
Þegar Björk hætti störfum á 32E 1. september 2003 hafði hún
áunnið sér rétt til að fara á eftirlaun. hún var þeirrar skoðunar
lauk doktorsprófi í mannfræði 78 ára gömul
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 9
Hún segir að kynni hennar af systrunum á St.
Jósepsspítala í Hafnarfirði hafi líka haft mikið
að segja um ákvörðunina, en þær höfðu mikil
áhrif á hana — svo mikil að á tímabili var hún
jafnvel að hugsa um að gerast nunna en að
baki lágu praktískar ástæður.