Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 12
hjúkrunarfræðingar eru súrefnið sem berst um allt æðakerfi heilbrigðisstofnana. Ef súrefnið er á einhvern hátt takmarkað þá veikist heilbrigðiskerfið, rétt eins og manns- líkaminn. Súrefnisskorturinn er þó löngu fyrirséður og er því miður ekki staðbund- inn vandi heldur alheimsvandi. Við þörfnumst nauðsynlega fleiri hjúkrunarfræðinga víða um heim og það strax. Ein leið til að fjölga hjúkrunarfræðingum er að laða fleiri til starfa en við verðum líka að tryggja að þeir sem mennta sig í hjúkrunarfræðum fari ekki til annarra starfa. Við gerum það ekki eingöngu með því að dásama starfið og þakka af öllu hjarta þeim sem tryggja velferð okkar nánustu í það og það skiptið heldur með því að gera starfsumhverfið og starfskjörin þannig að mannsæmandi séu. Þar hefur stjórn- völdum á Íslandi því miður ekki tekist nógu vel upp enda hefur tilraunum hjúkr- unarfræðinga til kjarabóta verið tekið af fálæti og undanbrögðum undanfarin misseri. Því miður virðist lítið breytast í þeim efnum þrátt fyrir augljósan skort á hjúkrunarfræðingum. Við berum öll ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er og verðum að viðurkenna vand- ann og bregðast við. Í lok árs 2017 skilaði ríkisendurskoðun af sér skýrslu sem inni- hélt úttekt embættisins á mönnun, menntun og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Þar kom fram að fyrirsjáanlegur skortur á hjúkr unar fræðingum væri alvörumál sem yrði að bregðast við. fimmtungur starfandi hjúkrunarfræðinga ætti rétt á töku lífeyris á næstu þremur árum (ég minni á að þetta var fyrir tæpum þremur árum) og að allt benti til þess að álag í heilbrigðis þjónustu myndi aukast á næstu árum, m.a. vegna hækkandi lífaldurs þjóðarinnar og aukinnar tíðni lífsstílstengdra sjúk- dóma. Þetta eru ekki ný tíðindi en því miður óttast ég að við bregð umst ekki nógu hratt við. Við bregðumst augljóslega ekki við með því að tryggja nauðsynlega nýliðun í stétt hjúkrunarfræðinga né senda stjórnvöld frá sér skýr skila boð inn í kjarasamn- 12 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 Tæpitungulaust Hjúkrunarfræðingar eru súrefnið — Helga Vala Helgadóttir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar og formaður velferðar- nefndar Alþingis. Veik staða íslenska heilbrigðiskerfisins hefur verið umfjöllunarefni síðustu missera. Ég held reyndar að rætt hafi verið um nauðsyn eflingar heilbrigðiskerfisins frá því ég man eftir mér en minnist þó ekki viðlíka ástands og birtist okkur þessi dægrin. Fráflæðisvandi, atgervisflótti, vaktaálag og mönnun eru orðin meðal algengustu orða fréttatímanna. Hættan er á að vitund okkar stíflist við ofgnótt frétta af lasburða heilbrigðiskerfi og þið sem í því starfið eigið svo miklu betra skilið en að það sé stöðugt talað niður því ykkar starf er svo sannarlega gott, en gæti verið betra væri því sköpuð betri umgjörð. Á því bera stjórnvöld hvers tíma ábyrgð. Þar hefur stjórnvöldum á Íslandi því miður ekki tekist nógu vel upp enda hefur tilraunum hjúkrunarfræðinga til kjarabóta verið tekið af fálæti og undanbrögðum undanfarin misseri. Því miður virðist lítið breytast í þeim efnum þrátt fyrir augljósan skort á hjúkrunarfræðingum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.