Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 17
upp í hugann. nei, sko, í því magni sem löngu er hægt að telja
eðlilegt. gúmmítúttur og strigaskór er aldrei góð hugmynd
þegar ganga skal í flughálli brekku og mikið væri nú gott ef
glerflöskur yrðu bannaðar í dalinn. Svona í slysavarnarskyni.
Sem betur fer gengur vinnan í skýlinu langoftast vel fyrir sig.
Þrír hjúkrunarfræðingar eru þar að störfum ásamt lækni og
sjúkraflutningamönnum. Ómurinn úr brekkunni heyrist upp
í skýli, útsýni yfir flugeldasýningu og brennu hið besta og það
er aukabónus við vinnuna. Taugaskoðun á ölvuðu fólki sem
lent hefur í ryskingum getur verið flókin og það gerir hins
vegar vinnuna í skýlinu erfiða.
Áfram keyri ég reykjanesbrautina og kem að kafla þar sem
banaslys varð fyrir ekki svo löngu síðan þegar bíl var ekið
framan á snjóruðningstæki. kannski ætti ég að ræða um
hvernig sé að koma að alvarlegu bílslysi á reykjanesbraut,
hugsa ég. Ég sé laskaðan bíl úti í móa eða þveran á brautinni.
Ég hægi á bílnum, stoppa úti í kanti og hugsa í smá stund hvað
ég geti gert til að hjálpa. Stress og adrenalín blossar upp, ég fer
að efast hvort ég geti eitthvað gert því þetta er ekki mitt rétta
umhverfi. Ég hef ekki þá vaktara sem ég er vön á að nota, eins
og púlsmæli, blóðþrýstings- og mettunarmæli og enga íhluti
er ég með. En ég er með hendur, augu og eyru sem geta verið
hinir bestu vaktarar. Mér verður síðan hugsað til fyrirmynd-
anna í starfinu, eins og þegar jón garðar kenndi mér að hjartað
er dælustöð en ekki sjónvarpsstöð og maður ætti að horfa og
koma við sjúklinginn fremur en að líma augun á „mónitorskjá-
inn“. Ég geri það og finn að radial-púlsinn er daufur og þá
blóðþrýstingur sennilega lægri en 90 í systólu. Þá fer púlsinn
hjá mér að hraða á sér og hljómar þá frasi sem Ásgeir Valur
sagði eitt sinn við mig: „Betra er lágur þrýstingur en enginn!“
og ég róast. Svo poppa upp lífeðlisfræðigullkornin frá rut
minni Þorsteins og ég hugsa til Viðars Magnúss og það rifjast
upp fyrir mér að hægt er að deila þyngd sjúklings með fjórum
og þá er ég komin með ketamínskammt sem þarf til að verkja-
stilla. Þessi er 80 kg svo hann má þá fá max 20 mg af ketamíni.
Muna svo eftir að gefa um 1 mg af dormicum til að forða
viðkomandi frá því að sjá bleika fíla af ketamíninu. Þessi lyf
finnast í töskum sjúkrabíla þegar þeir mæta á staðinn. Þegar
ég lendi í því síðan ári seinna að koma að öðru slysi mun al-
varlegra en því fyrra þar sem tveir farþegar eru fastir í bílnum,
annar látinn, og eina sem ég get gert er að hughreysta hinn og
halda á honum hita. Þá veltir ég fyrir mér að koma mér hrein-
lega upp betri búnað í bílnum hjá mér, en áttar mig á því að
ekki geti ég verið rúntandi á ,,mini“ útgáfu af sjúkrabíl og ákveð
að sjúkrapúði frá rauða krossinum, ullarteppi og „pocket“
þankastrik
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 17
„Gleymi heldur aldrei tilfinningunni þegar á
bráðamóttökuna í Fossvogi var komið. Barnið
var enn á lífi. Ég man í sjúkrabílnum á braut-
inni á leiðinni heim hugsaði ég hversu magnað
það er að hafa upplifað það þegar þetta kerfi
virkar. Hver einasti hlekkur í keðjunni virkar.“