Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 26
Ofmetnasta dyggðin er að segja já við endalausum aukavöktum — Signý Sveinsdóttir Fullkomin hamingja er … að líða vel í eigin skinni og njóta lífsins. Hvað hræðist þú mest? að missa ástvin og loftlagsbreytingarnar. Fyrirmyndin? Efst í huga er amma kata því hún lifir lífinu eftir sinni sannfæringu óháð skoðunum annarra. Svo hefur hún endalausa trú á sínu fólki og manni líður alltaf vel eftir samtal við hana. Eftirlætismáltækið? Þetta reddast! Hver er þinn helsti kostur? ætli það sé ekki þrjóska. hef komist í gegnum margt á þrjóskunni þótt það hafi oft verið krefjandi fyrir foreldra mína þegar ég var yngri. Hvað vildirðu verða þegar þú varst ung? Ég var alltaf að skipta um skoðun en man einna mest eftir því þegar ég vildi verða forn- leifafræðingur eftir að hafa skoðað fornleifauppgröft á Skriðuklaustri. Eftirlætismatur - inn? Morgunmaturinn er alltaf bestur. Hvaða löst áttu erfiðast með að þola í fari annarra? neikvæðni og leti. Hverju ertu stoltust af að hafa áorkað? Steig verulega út fyrir þægindarammann 2018 þegar ég flutti til Svíþjóðar og byrjaði að vinna á sjúkrahúsi án þess að kunna stakt orð í sænsku daginn sem ég flutti út. upplifði margar hlægilegar samræður við sjúklinga og samstarfsmenn fyrstu vikurnar. Eftir- minnilegasta ferðalagið? keníaferðin með frábærum hjúkkuvinum sumarið fyrir lokaárið í BS-náminu er eitt sem stendur upp úr. Ofmetnasta dyggðin? að segja já við endalaust af aukavöktum. Hver er þinn helsti löstur? að trúa ekki nógu mikið á sjálfa mig. Hverjum dáist þú mest að? Mömmu minni, algjör ofurkona. Eftirlætis- höfundurinn? astrid Lindgren. Ofnotaðasta orðið eða orðatiltækið? úff, ég er örugglega sek um að nota flest af þeim en ætli „heyrðu“ og „jæja“ sé ekki aðeins of mikið notað af okkur Íslendingum. Mesta eftirsjáin? Of mikil brúnkukremsnotkun á unglingsárum og fjöldamörg nammibindindi sem entust í mesta lagi í hálfan dag. Eftirlætisleikfangið? Ég á risastórt og fallegt Playmo-hús sem mér þykir afar vænt um. Stóra ástin í lífinu? Þessa dagana er það Móeiður Selja, systurdóttir mín. frábært eintak af barni. Hvaða eiginleika vildirðu helst hafa? Vildi að ég gæti farið í handa- hlaup, hef aldrei náð tökum á því. Þitt helsta afrek? Er stolt af því að hafa ekki borðað kjöt eða dýraafurðir í 8 ár og svo auðvitað hjúkrunarfræðigráðan. Eftirlætisdýrið? fílar. Hvar vildir þú helst búa? Skiptir ekki máli hvar það er en mér finnst mikilvægt að það sé stutt í einhvers konar náttúru og að fjölskyldan mín sé nálægt. Hvað er 26 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 Setið fyrir svörum … — Þrjár kynslóðir sitja fyrir svörum Þau Signý Sveinsdóttir, Auður Elísabet Jóhannsdóttir og Jóhann Marinósson eiga það sameiginlegt að starfa sem hjúkrunarfræðingar en þegar þau voru spurð að því hvað þau vildu starfa við ung að árum þá er ekki margt sem sameinar þau þrjú. Signý vildi vera fornleifafræðingur, Auður dansari og Jóhann bóndi. En þau eiga sitthvað sameigin - legt fyrir utan starfsvettvanginn. Eftirlætisdýr Auðar og Jóhanns er kisa en fílar eru eftir - læti Signýjar. Yrsa er í miklu eftirlæti hjá Auði og Jóhanni þegar kemur að höfundum en eftirlætishöfundur Signýjar er Astrid Lindgren. En hvað hræðast þau mest? Loftslags- breytingar, svara þær Signý og Auður, en Jóhann hræðist mest snáka. Signý Sveinsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur á bráðamóttöku Landspítala.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.