Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 53
refsi meðferð en langtímaárangur er lítill. Þar sem neikvæð hegðun minnkar hratt í fyrstu eftir refsingu er fólk gjarnt á að nota slíkar aðferðir þrátt fyrir að vita að þær geti vakið upp neikvæð við brögð og haft aukaverkanir (gleitman, 1995). Þvingandi meðferð er réttlætt á þeim grunni að hún dragi úr spennu og áreiti, skapi umhverfi sem er vænlegt til að takast á við óróleika og óæskilega hegðun sjúklinga og hafi því meðferðarlegt gildi (hem, Molewijk og Pedersen, 2014; Larsen og Terkelsen, 2014; Perkins, Prosser, riley og Whittington, 2012). Slík úrræði eru réttlætt þrátt fyrir að rannsóknir hafi sýnt að þvingandi meðferð geti haft neikvæðar afleiðingar á líðan sjúklinga og starfsfólks (happell og koehn, 2010; hol- mes, kennedy og Perron, 2004). Sjúklingar upplifa þvingandi meðferð gjarnan sem refsingu sem hafi ekkert meðferðarlegt gildi og valdi þeim vanmætti og vonleysi (Stewart, Bowers, Simpson, ryan og Tziggili, 2009; Van Der Merwe, Muir-Coc- hrane, jones, Tziggili og Bowers, 2013). neikvæðum áhrifum þvingandi meðferðar á starfsfólk hefur einnig verið lýst, svo sem sektarkennd, eftirsjá, gremju, kvíða og starfsleiða (Chuang og huang, 2007; happell og koehn, 2010; holmes o.fl., 2004). Ofbeldisatvik og þvingandi meðferð geta skapað hættu á slysum hjá sjúklingum og starfsfólki (Stewart o.fl., 2009), haft neikvæð áhrif á meðferðarsamband og traust (Bowers o.fl., 2014; holmes o.fl., 2004; katsakou o.fl., 2010) og geta jafnvel valdið dauðsföllum hjá sjúklingum (Berzlanovich, Schopfer og keil, 2012). Með þvingun er hætta á að valdabarátta skapist milli starfsfólks og sjúklinga og verði að nokkurs konar víta- hring þar sem þvinganir leiði til frekari þvingana (Larsen og Terkelsen, 2014; van Doeselaar, Sleegers og hutschemaekers, 2008). Gagnsemi þvingandi meðferðar umdeilt er hvort þvingandi meðferð skilar árangri, slík úrræði eru jafnvel talin skaðleg eða í besta falli gagnslaus (Bowers o.fl., 2012; renwick o.fl. (2016). Líklegasta skýringin á því að starfs- fólk réttlæti notkun þvingandi meðferðar er sú að eftir því sem bein þátttaka starfsfólks í framkvæmd þvingandi meðferða er meiri því auðveldara verði að beita sjúklinga þvingun (van Doeselaar o.fl., 2008). framkvæmdin sjálf kemst upp í vana og fólk verður ónæmt fyrir neikvæðum áhrifum þvingana á sjúk- linga. Siðir og venjur á deildum geta haft blindandi áhrif og dregið úr gagnrýnni og sjálfstæðri hugsun starfsfólks. Þvingun verður þá hluti af starfsvenjum deilda (van Doeselaar o.fl., 2008). Eitt frægasta dæmi um þetta er rannsókn haney, Banks og Zimbardo (1973) þar sem könnuð var hegðun sjálfboðaliða sem valdir voru af handahófi úr hópi háskólanema og þeir fengnir til að látast vera fangar eða fangaverðir í fangelsi. rann- sóknin átti að standa í tvær vikur en henni var hætt eftir sex daga því hegðun þeirra sjálfboðaliða sem léku fangaverði varð skaðleg þeim sem léku fangana. rannsóknin fjallar einmitt um það hvernig þvinganir geta haft áhrif á einstaklinga og blindað siðferðisvitund þeirra. auk siða og venja deilda virðist mann- legt eðli starfsfólks skipta máli þegar kemur að þvingandi meðferð á geðdeildum. Vinnustaðarandi sem einkennist af því að þarfir starfsfólks eru settar ofar þörfum sjúklinganna, lélegri stjórnun og skorti á teymisvinnu ýti undir að þvinganir séu réttlættar og geti því leitt til þess að þvingandi meðferð sé of- notuð (Paterson, Mcintosh, Wilkinson, McComish og Smith, 2013). nýleg rannsókn, sem gerð var á lokuðum örygg- isgeðdeildum á þremur sjúkrahúsum í Bretlandi þar sem fylgst var með störfum 68 geðhjúkrunarfræðinga, sýndi að tilfinn- ingaleg viðbrögð hjúkrunarfræðinga við ofbeldi höfðu áhrif á notkun þvingandi meðferðar. niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að hjúkrunarfræðingar sem fundu til reiði gagnvart sjúklingum í kjölfar munnlegs ofbeldis eða lítilsvirðandi fram- komu í sinn garð voru líklegri til að samþykkja notkun þvingandi meðferðar, eins og fjötra og einangrunar, en þeir sem ekki fundu til reiði gagnvart sjúklingunum (jalil, huber, Sixsmith og Dickens, 2017). Því má segja að þvingandi meðferðarúrræði séu gagnslítil og standi höllum fæti gagnvart siðfræðilegum gildum og siðalögmálum. nauðsynlegt að fylgja ströngum reglum varðandi notkun þvingandi meðferðar og mikilvægt er að hafa hugfast að tilgangur hennar er fyrst og fremst sá að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks (niCE, 2015). Siðfræði þvingandi meðferðar kenningar siðfræðinga og heimspekinga eru mikilvægar varðandi gildi þvingandi meðferðar. Vilhjálmur Árnason (1991) segir: „Markmið lækna og hjúkrunarfræðinga er að stuðla að heilbrigði sjúklinga sinna og draga úr þjáningum þeirra.“ (bls. 35). Þvingandi meðferð veldur sjúklingum og starfsfólki þjáningum og það bendir til þess að þvinganir stríði gegn betri vitund og séu í mótsögn við siðferðileg gildi og ríkj- andi siðareglur. Þá vakna spurningar á borð við hvort nægjan- legt sé að treysta á siðferðisvitund hvers og eins þegar kemur að umönnun sjúklinga með alvarlega geðsjúkdóma og hvort þjáning sé órjúfanlegur þáttur meðferðar þeirra. auk þess kveða siðareglur félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á um að: „hjúkrunarfræðingur hefur samráð við skjólstæðing og virðir rétt hans til að taka ákvarðanir um eigin meðferð“ (Siðaráð, 2015). hér er aftur dæmi um augljósa mótsögn sem rennir stoðum undir þau átök sem eiga sér stað í tengslum við þving - andi meðferð. Sjúklingar sem eru beittir þvingunum eru ekki samþykkir meðferð sinni. Þó má telja óhætt að fullyrða að ein- staklingur yrði eflaust ósáttur við meðferðarleysi eða afskipta- leysi heilbrigðisstarfsfólks ef heilsa hans ógnaði öryggi hans hjúkrun á geðdeildum tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 53 Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að hjúkr- unarfræðingar sem fundu til reiði gagnvart sjúklingum í kjölfar munnlegs ofbeldis eða lít- ilsvirðandi framkomu í sinn garð voru líklegri til að samþykkja notkun þvingandi meðferðar, eins og fjötra og einangrunar, en þeir sem ekki fundu til reiði gagnvart sjúklingunum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.