Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 59

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 59
Inngangur krabbameinssjúklingar eru oft í meiri hættu en aðrir á að fá alvarlegar sýkingar, ástæðan er ónæmisbæling af völdum krabbameinsmeðferðarinnar. hiti hjá þessum sjúklingahópi getur verið eina vísbendingin um sýkingu og ætti að flokka sem bráðatilvik. Í gæðahandbók Landspítalans voru nýlega gefnar út leiðbeiningar um meðferð, eftirlit og umgengni við krabbameinssjúklinga með daufkyrningafæð, þar á meðal vinnulýsing um viðbrögð við hita hjá þessum sjúklingahópi. Markmið þessarar greinar er að kynna fyrir hjúkrunarfræð- ingum þessar leiðbeiningar í þeim tilgangi að samhæfa störf, bæta meðferð og öryggi sjúklinga. Leiðbeiningarnar eru ætlað - ar öllum hjúkrunarfræðingum sem annast krabbameinssjúk - linga, hvort heldur á sjúkrahúsi eða öðrum heilbrigðisstofn - unum. Ónæmisbæling og hiti Þegar talað er um ónæmisbælingu eða mergbælingu í þessari grein er vísað til fækkunar á hvítum blóðkornum og er þá sér- staklega átt við einn undirflokk hvítra blóðkorna sem kallast daufkyrningar (e. neutrophils). aðalhlutverk daufkyrninga er að þyrpast á svæði líkamans sem verða fyrir sýkingu, bera kennsl á hana og ráðast gegn henni (Mayadas o.fl., 2015). flest krabbameinslyf geta haft bælandi áhrif á getu beinmergsins til að mynda blóðkorn og þar með geta þau valdið fækkun á dauf- kyrningum, þó mismikið eftir tegundum lyfja og skammta - stærðum. geislameðferð getur einnig haft mergbælandi áhrif (Lucas o.fl., 2018). Eðlilegt er að daufkyrningar mælist á bilinu 1,9–7,0. Þegar daufkyrningar eru komnir um og undir 0,5 er sjúklingur orð - inn verulega ónæmisbældur og með litlar varnir gegn sýk ing - um. Sjúklingar eru þá oft sagðir „neutropenískir“ eða með daufkyrningafæð. Venjuleg einkenni sýkinga á borð við roða, bólgu o.s.frv. eru oft ekki til staðar í daufkyrningafæð. hiti getur þá stundum verið eina vísbendingin um sýkingu og því þarf að bregðast skjótt við, þrátt fyrir að sjúklingur sé ekki bráðveik- indalegur að sjá, til að koma í veg fyrir að alvarlegt, jafnvel lífs- hættulegt ástand skapist. hita hjá ónæmisbældum krabbameinsjúklingi þarf að meðhöndla strax og ætti alltaf að flokka sem bráðatilvik þar sem alvarlegir fylgikvillar, s.s. lágþrýstingur, bráð nýrna-, önd- unar- eða hjartabilun, geta komið fram í allt að 25–30% tilvika og dánartíðni getur verið allt að 11% (Carmona-Bayonas o.fl., 2015; kuderer o.fl., 2006). Í þeim tilvikum sem sjúklingur fær sýklasótt (e. sepsis) getur dánartíðni farið upp í 50% (Legrand o.fl., 2012). Mynd 1. Skilgreiningar á daufkyrningafæð og hita (nCCn, 2018) Mat á áhættu og hugsanlegar afleiðingar nokkrir þættir, aðrir en krabbameinsmeðferðin sjálf, geta aukið hættu á að sjúklingur fái hita meðan hann er ónæmis- bældur. Þessir áhættuþættir eru: 1) aldur sjúklinga (65 ára og eldri), 2) útbreiddur sjúkdómur, 3) fyrri saga um hita meðan á daufkyrningafæð stóð, 4) sýklalyf ekki gefin í fyrirbyggjandi skyni og/eða vaxtarþáttur (g-CSf), 5) slímhúðarbólga, 6) bág- borið líkamlegt ástand (e. poor performance status), 7) sjúk- lingar með hjarta- eða æðasjúkdóma (klastersky o.fl., 2016). hætta á sýkingum er í beinu samhengi við fjölda hvítra blóð - korna og lengd daufkyrningafæðar (freifeld o.fl., 2011). tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 59 Hiti hjá ónæmisbældum krabbameinssjúklingum — Fyrstu viðbrögð Brynja Hauksdóttir*, Halla Grétarsdóttir*, Guðbjörg Guðmundsdóttir* * Sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með krabbamein á dagdeild blóð- og krabbameinslækninga (11B), Landspítala. Daufkyrningafæð (e. neutropenia) — Skilgreining Fjöldi daufkyrninga er undir 0,5 × 109/L eða öldi daufkyrninga er yfir 1 × 109 L og búast má við lækkun á gildum í/eða undir 0,5 × 109 L innan 48 klst. Hiti — Skilgreining Hiti er 38,3°C eða hærri (stök mæling) eða hiti er 38,3°C í 1 klukkustund eða hiti er 38,3°C eða hærri ásamt hrolli og vanlíðan. Daufkyrningafæð og hiti  Bráðatilvik, bregðast skjótt við Bregðast þarf skjótt við hita hjá sjúklingi með daufkyrn - inga fæð — sjá vinnu lýsingu á mynd 2.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.