Vinnan - 01.09.1946, Blaðsíða 6
r
■\
AF ALÞJÓÐAVETTVANGI
V___________________________y
Tilkynntug frá
aðalskrtfstofu Alþjóða-
samkands verkalýðsfélaga
Með djúpri hryggð tilkynnir Framkvæmdaráð
Alþjóðasambandsins, að varaíorseti Alþjóða-
sambandsins og einn af ötulustu forvígismönn-
um þess, félagi Sidney Hillman, lézt hinn 10.
júlí síðastl. Verkalýður alls heimsins heiðrar
minningu hins látna, og þakkar honum hið
mikla starf hans í þágu einingarinnar í samtök-
um sínum.
Sidney Hillman var fæddur í Litháen árið 1887, en
fluttist á unglingsaldri til Englands og lærði þar klæð-
skeraiðn. Rúmlega tvítugur flutti hann þaðan til Banda-
ríkjanna og settist að í Chicago.
Hann varð brátt þekktur forystumaður í samtökum
stéttar sinnar og aðalleiðtogi hennar í hinu fræga Hart,
Schaffner og Marx verkfalli 1910.
Forseti klæðskerasambandsins var hann frá stofnun
þess 1914, til dauðadags. Hann var einn af aðalstofn-
endum C. I. 0. og varaforseti þess frá byrjun, auk þess
sem hann gegndi fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir
það.
Þekktastur varð hann í starfi sínu sem formaður
pólitísku nefndar C. I. 0. og af þeim mikla þætti er
hann átti í kosningasigri Roosevelts forseta, er hann
var endurkjörinn í fjórða sinn.
Sem aðalfulltrúi C. I. 0. á verkalýðsráðstefnunni í
London og síðar á stofnþingi Alþjóðasambandsins í
París átti hann sennilega meiri þátt en nokkur annar
einstaklingur í því hversu giftusamlega tókst til með
myndun Alþjóðasambandsins.
Við fráfall Sidney Hillmans eiga verkalýðssamtökin
að sjá á bak einum af sínum allra beztu liðsmönnum,
en sérstaklega munu þó samtökin í heimalandi hans,
C. I. 0., sakna starfskrafta hans og forystuhæfileika í
þeirri hörðu baráttu, er þau eiga nú framundan.
Framkvæmdanefnd Alþjóðasambandsins
hélt fund dagana 22.—-27. júní í Moskvu. Á dagskrá
var:
1. Skipulagsmál Alþjóðasambandsins.
2. Gjöld sambandsfélaganna.
3. Inntökubeiðnir.
4. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar er ferðaðist um
Þýskaland.
5. Samskipti Alþjóðasambandsins við samtök hinna
sameinuðu þjóða (UNO).
6. Endurreisn gríska verkalýðssambandsins.
7. Afstaða Alþjóðasambandsins til Franco-Spánar.
8. Samningar við fagdeildirnar, og stofnun nýrra fag-
deilda innan Alþjóðasambandsins.
9. Aðstoð við verkalýðssamtök nýlendnanna.
10. Skipun rannsóknarnefndar til Japan.
11. Verndun verkalýðssamtakanna og endurreisn.
12. Miðstjórnarfundur Alþjóðasambandsins.
Framkvæmdanefndin afgreiddi öll þessi mál með sam-
hljóða atkvæðum.
Samþykkt var að stofna sérstaka skrifstofu er hafi
sérstaklega með að gera mál er varða nýlendurnar.
Varðandi Þýzkaland var gerð svofelld ályktun:
a) Tryggja verður frjálsa þróun verkalýðsamtakanna
á öllum hernámssvæðunum. Skipulagningin verði
framkvæmd á þeim grundvelli að allir starfsmenn
hvers fyrirtækis séu í sama verkalýðsfélagi.
b) Þýzku verkalýðsfélögin verða að einbeita sér að
uppeldi æskulýðsins í anda lýðræðis og útrýmingu
hins fasiska hugsunarháttar.
Frh. á bls. 204.
196
VINNAN