Vinnan


Vinnan - 01.09.1946, Page 6

Vinnan - 01.09.1946, Page 6
r ■\ AF ALÞJÓÐAVETTVANGI V___________________________y Tilkynntug frá aðalskrtfstofu Alþjóða- samkands verkalýðsfélaga Með djúpri hryggð tilkynnir Framkvæmdaráð Alþjóðasambandsins, að varaíorseti Alþjóða- sambandsins og einn af ötulustu forvígismönn- um þess, félagi Sidney Hillman, lézt hinn 10. júlí síðastl. Verkalýður alls heimsins heiðrar minningu hins látna, og þakkar honum hið mikla starf hans í þágu einingarinnar í samtök- um sínum. Sidney Hillman var fæddur í Litháen árið 1887, en fluttist á unglingsaldri til Englands og lærði þar klæð- skeraiðn. Rúmlega tvítugur flutti hann þaðan til Banda- ríkjanna og settist að í Chicago. Hann varð brátt þekktur forystumaður í samtökum stéttar sinnar og aðalleiðtogi hennar í hinu fræga Hart, Schaffner og Marx verkfalli 1910. Forseti klæðskerasambandsins var hann frá stofnun þess 1914, til dauðadags. Hann var einn af aðalstofn- endum C. I. 0. og varaforseti þess frá byrjun, auk þess sem hann gegndi fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir það. Þekktastur varð hann í starfi sínu sem formaður pólitísku nefndar C. I. 0. og af þeim mikla þætti er hann átti í kosningasigri Roosevelts forseta, er hann var endurkjörinn í fjórða sinn. Sem aðalfulltrúi C. I. 0. á verkalýðsráðstefnunni í London og síðar á stofnþingi Alþjóðasambandsins í París átti hann sennilega meiri þátt en nokkur annar einstaklingur í því hversu giftusamlega tókst til með myndun Alþjóðasambandsins. Við fráfall Sidney Hillmans eiga verkalýðssamtökin að sjá á bak einum af sínum allra beztu liðsmönnum, en sérstaklega munu þó samtökin í heimalandi hans, C. I. 0., sakna starfskrafta hans og forystuhæfileika í þeirri hörðu baráttu, er þau eiga nú framundan. Framkvæmdanefnd Alþjóðasambandsins hélt fund dagana 22.—-27. júní í Moskvu. Á dagskrá var: 1. Skipulagsmál Alþjóðasambandsins. 2. Gjöld sambandsfélaganna. 3. Inntökubeiðnir. 4. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar er ferðaðist um Þýskaland. 5. Samskipti Alþjóðasambandsins við samtök hinna sameinuðu þjóða (UNO). 6. Endurreisn gríska verkalýðssambandsins. 7. Afstaða Alþjóðasambandsins til Franco-Spánar. 8. Samningar við fagdeildirnar, og stofnun nýrra fag- deilda innan Alþjóðasambandsins. 9. Aðstoð við verkalýðssamtök nýlendnanna. 10. Skipun rannsóknarnefndar til Japan. 11. Verndun verkalýðssamtakanna og endurreisn. 12. Miðstjórnarfundur Alþjóðasambandsins. Framkvæmdanefndin afgreiddi öll þessi mál með sam- hljóða atkvæðum. Samþykkt var að stofna sérstaka skrifstofu er hafi sérstaklega með að gera mál er varða nýlendurnar. Varðandi Þýzkaland var gerð svofelld ályktun: a) Tryggja verður frjálsa þróun verkalýðsamtakanna á öllum hernámssvæðunum. Skipulagningin verði framkvæmd á þeim grundvelli að allir starfsmenn hvers fyrirtækis séu í sama verkalýðsfélagi. b) Þýzku verkalýðsfélögin verða að einbeita sér að uppeldi æskulýðsins í anda lýðræðis og útrýmingu hins fasiska hugsunarháttar. Frh. á bls. 204. 196 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.