Vinnan - 01.09.1946, Blaðsíða 33
var hringt öllum afturhaldsklukkum á Akureyri og
Siglufirði. Sjálfstæðið, Framsókn og Alþýðusambands-
forustan bundust tryggðaböndum. Forustumenn Al-
þýðuflokksins, sem þá höfðu einræðisvald í Alþýðu-
sambandinu, vegna einræðisákvæða í lögum þess, gerðu
allt sem þeir gátu ásamt hinum flokkunum tveimur til
þess að blekkja verkalýðinn í deilunni. Þeir gáfu m. a.
út flugmiða til þess að tilkynna, að hagsmunir verka-
manna á Borðeyri væru óviðkomandi Alþýðusamband-
inu og verkalýðsfélagið þar nyti því ekki stuðnings þess,
og fleytur Eimskip mættu þess vegna sigla sinn sjó í
friði. Með þessari yfirlýsingu Alþýðusambandsstj órn-
arinnar mun hafa átt að reyna að fá hina sósíaldemó-
kratisku verkamenn til að vinna í trássi við bann V.S.N.
og hindra þannig einingu alþýðunnar í þessari deilu.
Einnig var reynt að telja almenningi trú um að engin
kaupdeila væri á Borðeyri. Það væri aðeins um 3—4
kommúnista að ræða, sem vildu ráða yfir allri vinnu
þar og útiloka aðra frá henni eftir geðþótta sínum.
Verkstjórinn hjá Eimskip hótaði að útiloka þá verka-
Gunnar Jóhannsson
menn frá vinnu, sem ekki vildu vinna undir vernd
lögreglunnar. Með þessum blekkingum og hótunum
tókst að fá verkamenn til að vinna við afgreiðslu Lag-
arfoss.
Sama dag og Lagarfoss var afgreiddur á Akureyri
fór Dettifoss óafgreiddur frá Siglufirði til Akureyrar.
Þegar átti að afgreiða hann morguninn eftir, hafði svo
fjölmennur hópur verkamanna og verkakvenna fylkt liði
á Torfunefsbryggju (aðalbryggjsn á Akureyri) að at-
vinnurekendavaldinu þótti ekki fýsilegt að freista þess
að rjúfa fylkinguna. Atvinnurekendur voru samt ekki
af baki dottnir. Óvenjulega mikil bílaumferð í bænum
gaf til kynna að þeir höfðu mikinn viðbúnað. Flver
klukkutíminn leið eftir annan fram að hádegi. Þá var
Torfunefsbryggjan, þar sem Det.’ifoss lá, orðin full af
fólki. Um nóttina og allan morguninn höfðu erindrekar
breiðfylkingarinnar gegn verkalýðnum verið á ferð-
inni um bæinn í því skyni að safna nægilega sterku
liði til að rjúfa bann verkalýðssamtakanna í annað
sinn. Jafnvel 10 krónur voru boðnar í kaup á thnann
Aðalbjörn Pétursson
VINNAN
223