Vinnan - 01.09.1946, Blaðsíða 14
þessi dýrmæta eining stéttarinnar fær aS eflast að
skipulagi og stéttarpólitískum þroska.
Þetta hefur sambandsstjórn verið ljóst, enda verið
óþreytandi í því, á þessu tímabili harðvítugra átaka
milli stj órnmálaflokka, að brýna fyrir sambandsfélög-
um að láta eigi slík átök veikja hina stéttarlegu einingu
sína. — Þetta sýnir m. a. ályktun miðstjórnar frá 21.
sept. s.l. ár, er send var öllum sambandsfélögum. Þar
segir:
„Með tilliti til kosninga þeirra, sem háðar verða um
land allt á næsta ári, og að búast má við sterkum átök-
um milli flokka í sambandi við þær, vill miðstjórnin
áminna öll sambandsfélög Alþýðusambandsins um það,
að standa sem bezt á verði um hina stéttarlegu einingu
á grundvelli stéttarlegra sjónarmiða, hvað sem átökum
stjórnmálaflokka líður. Þetta má þó engan veginn skilj-
ast þannig, að stéttarsamtök verkalýðsins eigi að líta
á þessar kosningar sem óviðkomandi mál, þvert á móti.
Kosningar þessar eiga verkalýðsfélögin beinlínis að
nota til allsherjar liðsöfnunar vinnandi stétta um hags-
munamálin. Kemur þá einkum til greina nýsköpun at-
vinnuveganna, þ. e. sköpun einingar vinnandi fólks um
framkvæmd þeirra stefnumála, sem núverandi stjórnar-
samvinna byggist á ■— og stéttarleg eining gegn þeim
öflum, sem vilja koma henni á kné-------“
Alþýða landsins, og reyndar öll þjóðin, á mikið í
húfi, að hin stéttarlega eining innan verkalýðssamtak-
anna ekki bresti. Hlutverk hinnar stéttarlegu einingar er
mikilvægt. Hamingja lands og þjóðar liggur við, að
það verði giftusamlega af hendi leyst.
Vér þurfum að fullkomna enn starfsaðferðir og
skipulag heildarsamtakanna til samræmis við kröfur
tímans og framtíðarverkefnin, gera stéttarsamtökin að
enn öflugra tæki í launabaráttunni og samræma hana
hinni almennu hagsmuna- og réttindabaráttu alþýð-
unnar á sviði þjóðmálanna.
Vér eigum að gera Alþýðusamband íslands að enn
sterkara þjóðfélagsafli í þágu hinnar atvinnulegu ný-
sköpunar í landinu og knýja hana fram að settu marki.
Vér verðum að fá því til leiðar komið, að sigrum
verkalýðsins í launabaráttunni verði eigi rænt eftir
stjórnmálalegum leiöum, með aukinni dýrtíð á kostnaö
hans og að valdhafarnir geri eigi í verðlagsmálunum
neitt það, er varðar hagsmuni verkalýðsins, án sam-
ráðs við hann og samþykkis stéttarsamtaka hans.
Vér þurfum að marka það skýrt stefnuna í dýrtíðar-
málum, tryggingarmálum, öryggismálum, húsnæðis-
málum o. s. frv., að vinnandi stéttum verði hún það
ljós, að þær geti saiíieinast um hana á stéttargrundvelli.
Vér verðum að halda áfram liðsöfnuninni með þjóð
vorri um sjálfstæðimálið og linna eigi fyrr en Island er
sem fullvalda og sjálfstætt ríki, hreinsað af erlendum
her.
AF ALÞJÓÐAVETTVANGI
k----------------------------------------------y
Frh. af hls. 196.
c) Hin frjálsa verkalýðshreyfing Þýzkalands verður að
vera þátttakandi í öllum þeim samtökum er starfa
að útrýmingu nazismans.
d) Hafa skal vakandi auga á öllum tilraunum nazista
til að þrengja sér inn í áhrifastööur og koma í veg
fyrir áhrif þeirra á hagkerfi landsins.
e) Einnig ber að koma í veg fyrir að nazistum takist
að smjúga inn í stjórnarstofnanir og lögreglu, og
að hreinsa slíkar stofnanir með öllu af áhrifum
þeirra.
Samin var ýtarleg ályktun um samskipti Alþjóðasam-
bandsins og UNO.
Varðandi endurreisn gríska verkalýðssambandsins
var samþykkt eftirfarandi:
I. Alþjóðasambandið mótmælir harðlega aðförum
grísku ríkisstjórnarinnar, er svo freklega skerða
frelsi verkalýðshreyfingarinnar.
II. Það beinir mótmælum sínum til utanríkisráöherr-
anna fjögra, er nú sitja á ráðstefnu í París.
III. Það krefst rannsóknar á þessu atferli, og að eiga
fulltrúa við þá rannsókn. Alþjóðasambandið krefst
fulls frelsis fyrir grísku verkalýðssamtökin.
IV. Framkvæmdanefndin heitir grísku verkalýðshreyf-
ingunni þeim stuðningi er hún fær í té látið.
Þá var samþykkt ályktun varðandi afstöðuna til fas-
istastjórnar Franco á Spáni.
Aðalritara Alþjóðasambandsins var falið að halda
áfram samningum um stofnun „fagdeilda“.
Samþykkt var að senda nefnd til Japan, til að kynna
sér ástandið þar, og aðstoða við endurreisn verkalýös-
samtakanna á lýðræðisgrundvelli. í nefndinni eiga sæti
fulltrúar frá Ástralíu, Bretlandi, Sovétríkjunum, Frakk-
landi, Kína og Ameríku. Þessari nefnd ber einnig að
kynna sér ástandiö í Koreu og gefa skýrslu um það til
Alþjóðasambandsins.
*
Vér þurfum að hefja hina stéttarlegu einingu upp af
varnarstigi hinnar faglegu baráttu til sókndjarfrar ein-
ingar vinnandi fólks á sviði þjóðmálanna, þar sem
flokkaskipting með verkalýðnum er horfin af sviði hinn-
ar lifandi sögu.
Fagleg og pólitísk eining alþýöunnar þýðir: Þjóð-
félagsleg yfirráð vinnandi fólks til sjávar og sveita,
lausn hins efnahagslega vandamáls og sjálfstæði íslands.
204
VINNAN