Vinnan - 01.09.1946, Side 15
STEINGRÍMUR AÐALSTEINSSON:
Iðjudeilan á Aknreyri
Rekstur hennar, árangur og lœrdómar
Vinnudeila sú, sem verksmiðjufólk hér á Akureyri
hefur undanfarið háð við iðnrekendur, er fyrir margra
hluta sakir svo merkileg og lærdómsrík fyrir allan verka-
lýð og fylgjendur hans, að ég finn sérstaka ástæðu til
að rakinn sé opinberlega allur gangur deilunnar og
dregnar þar af þær ályktanir, sem verkalýðnum megi
að gagni verða í félagslegri starfsemi hans og baráttu
-— ýmist til eftirbreytni eða til varnaðar.
Aðdragandi deilunnar
Það er svo um „Iðju“ sem önnur hagsmunasamtök
verkalýðsins, að félagið var stofnað sökum óhjákvæmi-
legrar nauðsynjar á samtökum um að bæta launakjör
og vinnuskilyrði verksmiðjufólksins. Þrátt fyrir 23 ára
viðleitni forstjóra „Gefjunar“ (að hans eigin sögn) til
að hækka vinnulaunin svo sem frekast var unnt, voru
þau svo langt fyrir neðan allar hellur, að í ýmsum til-
fellum voru þau allt að 50% lægri en greitt hefur verið
í Reykjavík fyrir sams konar vinnu.
Strax eftir að „Iðja“ var stofnuð, gerði hún því til-
raunir til þess, á friðsaman hátt, að ná samkomulagi
við atvinnurekendurna um kaup. sem væri að minnsta
kosti eitthvað meira í samræmi við það, sem annars
staðar var greitt fyrir samskonar vinnu.
Svar atvinnurekenda var að hundsa algerlega félagið
og reyna að ganga af því dauðo með stofnun svokall-
aðra „starfsmannafélaga“ í einstökum verksmiðjum
Iðjudeilan á Akureyri árið 1937 er ein lœrdóms-
ríkasta vinnudeila, er háð hefur verið hér á landi.
Rekstur hennar og gangur allur sýnir oss Ijóslega
þá hœttu, sem fólgin er í skipulagslegum tengslum
verkalýðshreyfingarinnar við ákveðinn stjórn-
málaflokk. „VINNAN“ taldi því rétt að hirta eft-
irfarandi grein Steingríms Aðalsteinssonar um
þessa vinnudeilu, en vill vekja athygli lesenda á
því, að greinin er skrifuð árið 1937, rétt eftir að
deilu þessari lauk.
(„gul“ félög) ,sem þeir sjálfir hefðu „töglin og hagld-
irnar“ í.
Leitaði þá Iðja til Alþýðusambandsins, og tók stjórn
þess við málinu haustið 1936, með það fyrir augum,
að hún, án vinnudeilu, næði samningi við stjórn S.Í.S.
Leið svo heilt ár, eða fram á s.l. haust, að enginn
árangur varð, og var sýnilegt, að atvinnurekendur
treystu, annars vegar á samtakaleysi verksmiðjufólks-
ins, þar sem aðeins lítill hluti þess var kominn í Iðju,
hins vegar á aðgerðaleysi Alþýðusambandsstjórnar-
innar.
Nú var svo, að auk krafa verksmiðjufólksins hér um
bætt kjör, hafði Iðja í Reykjavík í hyggju að hækka
enn kauptaxta þann, sem hún, með einbeittum samtök-
Samkvæmt opinberum skýrslum hafa laun karla í
Bretlandi hækkað að meðaltali, miðað við 1938, um
65%, en laun kvenna um 84%. Laun kvenna eru nú
12 á móti 23 miðað við laun karla.
-K
Á hernámssvæði Rússa í Aausturríki hækkuðu laun
karla og kvenna í júlímánuði um 82%, samkvæmt nýj-
um launasamningum við samtök verkamanna í efna-
iðnaðinum og olíuframleiðslunni.
+
22. júlí lögðu 15 þúsund kínverskir hafnarverkamenn
í Singapore niður vinnu og kröfðust 150% launahækk-
unar, þar sem allar nauðsynjar höfðu hækkað meir en
það frá síðustu launabreytingu.
Síðan Bretar tóku aftur völd í Singapore hafa ýmsir
af foringjum verkalýðsins þar í borg, er börðust gegn
Japönum í stríðinu, verið handteknir og sakaðir um
„morð“ og „rán“, vegna þess að þeir drápu Kvislinga
og notuðu eigur þeirra í þjónustu leynibaráttunnar
gegn Japönum.
-K
Verkalýðssamtök Mexico hafa lagt algert bann á all-
ar vörur til og frá Spáni.
VINNAN
205