Vinnan


Vinnan - 01.09.1946, Side 40

Vinnan - 01.09.1946, Side 40
Bœjarstjómin lœtur untlan síga Þrátt fyrir allan þennan viðbúnað burgeisaliðsins, létu verkfallsmenn engan bilbug á sér finna, heldur voru staðráðnir í því að hindra enn afgreiðslu „Novu“, þegar hún kæmi aftur til Akureyrar — unz bæjarstjórn- in féllist á kröfu þeirra um að greiða taxtakaup við tunnusmíðið. Fór nú bæjarstjórnin að sjá sinn hlut óvænkast. Réði þar auðvitað mestu staðfesta og einbeittni verkfalls- manna. En einnig mun árangur af herútboðinu ekki hafa orðið eins mikill og vænzt var. Loks mun skip- stjóranum á ,Novu“ ekki hafa litizt á að rjúfa samn- ing þann, sem fyrr er nefndur. Áður en „Nova“ kom til Akureyrar aftur, fór bæjar- stjórnin því að leita hófanna við verkfallsmenn um lausn deilunnar, og hinn 25. marz var undirskrifaður samningur milli bæjarstjórnarinnar og Verkamannafé- lags Akureyrar, um framkvæmd tunnusmíðisins. Skuld- batt bæjarstjórnin sig til að láta smíða tunnur úr öllu því efni, sem bæjarstjórnin hafði fest kaup á (aðeins helmingur efnisins kom með þessari ferð) og að vetr- arkauptaxti verkamannafélagsins skyldi greiddur við vinnuna. Var það ca. 20% hærra en bæjarstjórnin hafði til þessa viljað tryggja verkamönnunum við tunnusmíðið. Var þá deilunni aflýst og „Nova“ afgreidd án tafar, þegar hún litlu síðar kom til Akureyrar aftur. Eftirhreytur I samningi þeim, sem vinnudeilan var leyst með, og fyrr getur, var fram tekið, að engar skaðabótakröfur skyldu reistar, né málshöfðanir hafðar gegn verkfalls- mönnum, vegna þátttöku í deilunni. Gremja burgeisanna yfir ósigri þeirra í deilunni rak þá þó til að rjúfa þetta heit. Hinn 4. apríl lét bæjarfógeti stefna fyrir rétt þremur af stjórnendum vinnudeilunnar. Var fyrstur kallaður fyrir formaður Verkamannafélags Akureyrar, en síðan þeir Jón Rafnsson og Þóroddur Guðmundsson, sem dvalið höfðu á Akureyri, ásamt Jens Figved, til þess að aðstoða félögin við skipulagningu og stjórn deil- unnar. Þegar Jón Rafnsson neitaði að svara spurningum dómarans, var hann úrskurðaður í varðhald og fluttur í tugthúsið. Þegar þetta gerðist stóð yfir þing V. S. N. á Akur- eyri. Spurðist handtaka Jóns þangað, og sendi þingið þegar nefnd á fund bæjarfógeta til að mótmæla aðför- unum. Safnaðist brátt mikill mannfjöldi fyrir utan skrifstofu bæjarfógeta og heimtaði að Jón væri látinn laus. Sá bæjarfógeti það ráð vænst að verða við þeirri kröfu — og féllu þar með niður tilraunir til réttar- ofsókna gegn verkfallsmönnum. Niðurlaysorð Eg tel, að „Novu“-deiIan sé, fyrir ýmsra hluta sakir, meðal merkustu og lærdómsríkustu vinnudeilna, sem háðar hafa verið hér á landi. Þess er áður getið við hversu erfiða aðstöðu hún var háð. Samt vannst hún til fulls, á tiltölulega skömmum tíma, þrátt fyrir mjög hatrama andstöðu hins deilu- aðilans. Tel ég að þakka beri þetta einkum eftirtöldum atriðum: Skipulagning deilunnar var með ágætum. Bardagaaðferðin var rétt valin, miðað við aðstöðuna sem fyrir hendi var. Stjórn deilunnar var ávallt einhuga og óhvikul í öll- um framkvæmdum og naut trausts alls fólksins, sem í deilunni stóð. Verkalýðsfélögin, sem deiluna háðu, nutu samúðar .og stuðnings verkalýðsfélaga og verkalýðssinna víðs- vegar um land — þrátt fyrir andúð þáverandi stjórnar Alþýðusambands Islands og annarra Alþýðuflokks- leiðtoga. Og síðast en ekki sízt: Verkafólkið á Akureyri sýndi frábæra einbeitni og þrautseigju í framkvæmd vinnu- deilunnar og lét ekki á sig bíta, hvorki þá torveldu, fé- lagslegu aðstöðu, sem áður er lýst, né óhagstæða veðr- áttu hins norðlenzka vetrarríkis. Við fjarðarbotninn í faðmi fannkrýndra fjalla var á þessum köldu vetrardægrum kynntur eldur bræðra- lags hins fátæka, vinnandi fólks, undir kjörorðinu: Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði. Fjöll sýni torsóttum gæðum að ná. Bægi sem kerúb með sveipandi sverði silfurblár Ægir oss kveifarskap frá. Gamall húsgangur Fyrir sunnan fáir unna Jóni. Þar af hrelldur þankinn er. Þetta er heldur gott hjá mér Auglýsingavísa eftir kunnan höfund Alltaf er Fossberg að fræða. I fyrra sagði hann mér: Mótorinn má ekki bræða málminn niður úr sér. 230 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.