Vinnan


Vinnan - 01.09.1946, Page 68

Vinnan - 01.09.1946, Page 68
ar aðfarir vöktu einnig athygli og samúð almennings um land allt með Hlíf. A fundinum 15. febr. mætti Héðinn Valdimarsson, formaður Dagsbrúnar, og færði Hlíf kveðju og heit Dagsbrúnar um fullan stuðning. Þróttur á Siglufirði sendi einnig stuðningsheit í sím- skeyti. Hingað og ekki lengra Þessi fundur Hlífar samþykkti kaup- og kjarasamn- ing þann, sem stjórnin hafði gert og ennfremur: „að stöðva alla vinnu hjá þeim atvinnurekendum, sem neita að gerast aðilar að samningum og reyna að hefja vinnu með utanfélagsmönnum, og leggja bann við því, að meðlimir Hlífar vinni með þeim mönnum, er gerzt hafa meðlimir hins svokallaða Verkamannafélags Hafnar- fjarðar, sem er stofnað til þess eins að kljúfa verka- mannafélagið Hlíf“. Það mun hafa verið langt liðið frá því, að önnur eins stéttarleg vakning og samheldni hafði gripið hafn- firzka verkamenn og var á þessum fundi. Þeim var Ijóst, að ættu samtök verkamanna að vera háð duttlungum og valdi þeirra manna, sem nú vildu eyðileggja Hlíf, hið gamla vígi verkamanna, þá væru verkamannasam- tökin lömuð og lítils virði. Baráttan um tilveru Hlífar var því baráttan fyrir frelsi og sjálfsákvörðunarrétti verkamanna. Fylkingarnar mætast Það var almennt búizt við því, að brátt myndi draga til tíðinda í Hafnarfirði, því að 16. febrúar var von á togara til Bæjarútgerðarinnar, en ráðamenn hennar höfðu samið við félag „sitt“, Verkamannafélag Hafnar- fjarðar. Hlífarmenn voru ákveðnir í því, að þola aldrei að hver atvinnurekandi gæti stofnað félag „sinna“ verkamanna og samið við það. Slíkt hefði getað þýtt um tug „verkamannafélaga" í Hafnarfirði og hvers virði væru samtök verkamanna og kjör — þar og annars stað- ar — þegar svo væri komið? Þeir gerðu því ráðstafanir til þess að hindra verkfallsbrot. Togarinn Júní kom síðari hluta dags 16. febr. Með- limir klofningsfélagsins höfðu verið kvaddir til vinnu. Hlífarmenn mættu á bryggjunni og sást þá svo greini- lega hvorurn megin hafnfirzkir verkamenn voru í þess- ari deilu, að klofningsmenn reyndu ekki að hefja vinnu eftir að hafa þæft á bryggjunni urn hríð. Höfðu þeir þó tjaldað því liði, sem til var, m. a. klætt einn kennara í samfesting — verkamönnum til mikillar skemmtunar. Formaður Hlífar, Helgi Sigurðsson, flutti þarna ræðu og nokkrir fleiri. Var svo kyrrt til kvölds. Alþýðublaðið lýsti Hlífarmönnum þannig: „Þá stóðu nokkrir ósofnir, skjálfandi kommúnistastrákar á bryggj- unni fáliðaðir og ekki neitt líklegir til stór- ræðanna, enda að mestu flækingar af götunum hér í Reykjavík“. En hvers vegna létu þá Alþýðuflokksfor- ingjarnir ekki vinna? Alþýðublaðinu varð ekki svara- fátt: Komið höfðu „lögreglumenn sendir af ríkisstjórn- inni (leturbreyting greinarhöf.) með tilmæli um að vinna yrði ekki hafin að sinni“. (Svo það var þá af virðingu fyrir Hermanni Jónassyni, en hvorki virðingu né ótta við samtök hafnfirzkra verkamanna). Verkfallsmenn ganga niSur á bryggju að stöðva vinnu í b.v. Júní 258 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.