Stefnir - 01.04.1950, Síða 13
INNLEND STJÓRNMÁL
11
stjæðismenn og Alþýðuflokkur-
inn vildu semja um lausn þeirra
mála. Framsóknarmenn settu
aldrei fram neinar glöggt mótað-
ar tillögur í þá átt og vildu raun-
verulega ekki freista þess að ná
samkomulagi um lausn þeirra.
Þeir vildu kosningar, sumpart
vegna þess að stjórninni hafði
mistekist það meginhlutverk sitt
að verulegu leyti að stöðva vöxt
verðbólgunnar eða draga úr
henni, sumpart vegna hins að
eldur brann innan flokks þeirra
um afstöðuna til hennar. Urslit
kosninganna sýndu litlar breyt-
ingar. Sjálfstæðisflokkurinn jók
fylgi sitt lítillega að hundraðs-
hluta, Framsóknarmenn unnu
upp brot af tapi sínu í kosning-
unum 1946 og hafa nú 24,5%
kjósendafylgis í stað 26,6% árið
1942, kommúnistar töpuðu einu
þingsæti en Alþýðuflokkurinn
tveimur og hafði nú aðeins 7
þingsæti.
Arangur kosninganna virtist
því ekki mikill, ekki síst þegar á
það er litið að nær óbrúanlegt
djúp virtist hafa skapast milli
lýðræðisflokkanna að þeim
loknum. Alþýðuflokkurinn var
reiður og sár eftir tapið og lélega
reynslu af stuðningi Framsókn-
ar við „fyrstu stjórn Alþýðu-
flokksins14 eins og blað hans kall-
aði ríkisstjórn formanns hans.
Flokkurinn lýsti því svo yfir, að
hann drægi sig út úr pólitík og
mun það frumlegasta yfirlýsing,
sem nokkur stjórnmálaflokkur í
heiminum hefur gefið. Bað hann
nú Sjálfstæðisflokkinn og Fram-
sókn að gera svo vel. Sætin væru
laus. En Framsókn vildi enga
samvinnu við Sjálfstæðismenn.
Þegar formanni hennar var falin
tilraun til myndunar meirihluta-
stjórnar ræddi hann ekki við
S]álfsiæðismenn nema um mögu-
leika væntanlegs stuðnings hans
við nýja toll- og skattheimtu til
þess að halda áfram útflutnings-
uppbótum og niðurgreiðslum ef
svo kynni að fara, að Framsókn
næði samkomulagi við Alþýðu-
flokkinn um stjórnarmyndun.
Virtist nú lítið orðið eftir af „úr-
ræðum“ Framsóknar í dýrtíðar-
málum, hinum margumtöluðu og
víðfrægu. En Hermann Jónasson
kom hryggbrotinn frá Stefáni Jó-
hanni þrátt fyrir ýms lystileg til-
boð til Alþýðuflokksins, svo sem
kosningabandalag gegn Sjálfstæð-
ismönnum í næstu kosningum.
Alþýðuflokkurinn hafði sezt í
helgan stein og grét lánleysi
Framsóknar þurrum tárum.
Niðurstaðan varð því sú, að
ekki reyndist unnt að mynda
meirihlutastjórn.