Stefnir - 01.04.1950, Síða 56
54
STEFNIR
Miklar hafnarbætur hafa verið gerðar þar hin síðari ár, og búast
menn við að smíði beggja hafnargerðanna verði lokið á næsta sumri.
Tvö stór hraðfrysihús eru þar. Annað er eign útgerðarmanna og
mun stærra og fullkomnara en hitt frystihúsið, sem Kaupfélag Ey-
firðinga lét reisa.
I sambandi við fryslihús útgerðarmanna er nú verið að byggja
stóra beinamjölsverksmiðju, sem mun að forfallalausu taka til starfa
á þessu ári.
I fyrra hófst vinnsla í hinni stóru og vönduðu niðursuðuverksmiðju.
sem bærinn á. Mun vera liægt að sjóða niður allt að því 30,000
dósir á sólarhring í þessari verksmiðju. En rekstur hennar hefur
ekki gengið sem skyldi, og stafar það einkum af markaðsörðugleikum,
en einnig af því, að skortur á hentugum dósum hefur verið tilfinn-
anlegur.
Þá hafa byggingaframkvæmdir verið miklar undanfarin ár. Mörg
íbúðarhús hafa verið smíðuð og fimm stórir verkamannabústaðir.
Mjög falleg og vönduð sundlaug var vígð þar fyrir nokkrum árum,
og í haust var tekið í notkun stórt og myndarlegt skólahús.
Þetta eru miklar framkvæmdir og í mikið ráðizt á jafnskömmum
tíma, þegar þess er gætt, að Ólafsfjörður er eitt fámennasta bæjar-
félag landsins.
En það, sem hefur gefið Ólafsfirðingum hug og áræði til að ráð-
ast í allt þetta, og gert þeim kleift að koma þessu í framkvæmd,
er dugnaður og atorka þessara fáu einstaklinga, sem byggja Ólafs-
fjörð. Framtak þeirra og kraftur hefur verið sú driffjöður, sem kom
öllu þessu af stað, og er sá grundvöllur, sem allar þessar framkvæmd-
ir hvíla á.
Athafnafrelsi einstaklinganna og velferð þeirra helzt í hendur, og
ef hið fyrra er skert á einhvern hátt, mún hið síðarnefnda standa
völtum fótum. Þess vegna munu Ólafsfirðingar standa vörð um frelsi
einstaklingsins og sameinast einhuga gegn hvers konar óeðlilegum
höftum og þvingunum af hálfu hins opinbera.
Baldvin Tryggvason.