Stefnir - 01.06.1955, Qupperneq 13
MANNERFÐIR 11
Ættartafla er sýnir litblindu (svart) □ = karl. O = kona og hringur með
depli = eðlilega eygð kona, sem ber bó erfðina.
Getur því ekkert dulið litblindugenið
ef það er á þessum eina Xditningi karl-
mannsins og verður hann því lit-
blindur.
Kona, sem hefur þetta víkjandi gen
á öSrum X-litningnum verður hins
vegar ekki litblind, þar sem hiS eSli-
lega ríkjandi gen hins X-litningsins
hylur áhrifin. Eignist þessi kona aftur
á móti afkvæmi meS eðliiega eygSum
manni getur helmingur sona þeirra orð-
ið litblindur, eSa þeir sem skapaðir
eru af eggfrumunum með litblindu-
genið, en hinn helmingurinn verður
með eðlilega sjón. Kona getur því að-
eins orðið litblind að faðirinn sé lit-
blindur og móðirin hafi að minnsta
kosti litblindugen í öðrum X-litningn-
um.
Sömu erfðalögmálum virðast blæð-
arar lúta, og er gen það, sem veidur
vöntun á blóðstorknunarefni staðsett
a sama X-litningnum og litblinda.
Með ákveðinni erfðarannsókn hefur
meira að segja tekist að ákvarða fjar-
tægðina milli þessara tveggja gena.
\ llar slíkar erfðarannsóknir sem
^ þessar er þó mjög erfitt að fram-
kvæma á mönnum, þar sem allskonar
þjóðfélagslegar hömlur eru til hindrun-
ar, og verður að sjálfsögðu ekki komið
við sömu tækni og þegar rannsakaðar
eru erfðir jurta og dýra. Til dæmis
verður ekki við komið sjálffrjóvgunum,
systkynafrjóvgunum eða nánum skyld-
mennaæxlunum. Afkvæmafjöldi hjóna
er oftast of lítill til þess að veita nægt
rannsóknarefni og hver ættliður er
lengi að ná kynþroska, ofan á þetta
allt bætast svo allar yfirsjónir og fals-
anir í skýrslum, rangar kirkjubækur,
fæðing óskilgetinna barna, tökubörn
o. fl. sem torvelda og afvegaleiða allar
rannsóknir.
Þrátt fyrir þetta hefur mönnum
tekizt að skýra arfgengi margra eigin-
leika, svo nú orðið skipta þeir fleiri
hundruðum, sem kunnir eru erfða-
fræðilega. Sumir eiginleikar mannsins
eru hins vegar svo fjölþættir, t.d.
stærð, þyngd, gáfnafar o.fl., að hreinna
lína verður ekki vart, og eru þeir mun
erfiðari til rannsóknar.
að, sem einna fyrst vakti athygli
erfðafræðinga, var arfgengi alls-
kyns sjúklegrar líkamsbyggingar, van-
skapnaður og hörundslýti. Reyndust
flestir slíkir eiginleikar víkjandi og