Stefnir - 01.06.1955, Síða 14

Stefnir - 01.06.1955, Síða 14
12 STEFNIR varð því vart vi'ð þá við og við í sumum ættum, eða aðeins þegar hið rikjandi gen var í báðum litningun- um. Þannig orsakast klumbfótur af saineiningu tveggja víkjandi gena, sömuleiðis ein tegund dvergvaxtar, og þannig eru hvítingjar til orðnir, en þá vantar, sem kunnugt er, litarefni í húðina. Möguleikarnir á því að þessi gen mætist, er yfirleitt lítill, en þar sem um skyldleikagiftingar er að ræða, eykst sú hætta margfaldlega. Við mikl- ar skyldleikagiftingar margfaldast að vísu margir góðir eiginleikar, en slík- ar giftingar hljóta alltaf að verða á- hættusamar vegna aukinna möguleika á tvöföldun hinna löku erfðastofna. Endaþótt allflestir sjúklegir erfða- eiginleikar séu til orðnir fyrir áhrif víkjandi gena, eru fáeinir þó ríkjandi, svo sem klauflimir og dvergfingur. Nægir þá annað genið til þess að valda sjúkdómnum. Sjúklegar erfðir hefur verið æski- legt að rannsaka til þess að unnt væri að aðstoða viðkomandi einstaklinga í vandamálum þeirra og upplýsa þá um, hvað þeir kunni að leiða yfir væntan- leg afkvæmi sín. Hverju þjóðfélagi er það kappsmál að hefta útbreiðslu mik- illa erfðagalla, en víðast hvar er þeirri arfhreinsun lítill sómi sýndur. Geðveiki, fávitaháttur eða hneigð til ofdrykkju og kynferðisöfga eru í viss- um tilfellum arfgeng, en í öðrum til- fellum virðast aðrar orsakir liggja til grundvallar, svo sem uppeldisáhrif, taugaáföll o. fl. Endaþótt sjúklegir erfðaeiginleikar hafi verið talsvert nákvæmlega rannsakaðir, hefur öðrum eiginleikum einnig verið gaumur gefinn. Þannig er kunnugt, að brúnn augnalitur ríkir yfir bláum, og geta því bláeygðir for- eldrar ekki eignazt brúneygt afkvæmi. Ákveðin gerð af hrokknu hári ríkir yfir sléttu, og bogið nef yfir uppbrettu. Annars er arfgengi ákveðinna eigin- leika oft misjafnt eftir ættum og þjóð- flokkum, og það sem á við eina ætt, á ekki við aðra. Arfgengi fslendinga hefur lítið ver- ið rannsakað og aðeins hið sjúklega. Er hér þó að mörgu leyti betri aðstaða til rannsókna, heldur en víða annars- staðar í heiminum, sökum fólksfæðar, QrO □t# ♦ • ® ® O G ® H ® @ M H Ættartafla cr sýnir arfffengar tvíburafæðingar (svart). Veldur þeira ákveðinn eiginleiki móðurinnar. □ = karl. O = kona.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.