Stefnir - 01.06.1955, Page 73

Stefnir - 01.06.1955, Page 73
SKAMMGÓÐ VIST 71 ARCHIE LEE: Hvernig var það með hann Bunny frænda þinn, þennan skögul- tennta, fann hann ekki upp nýja aðferð til að hagnýta olíu-úrgang? BABY DOLL: Fann og fann ekki. ARCHIE LEE: Hvernig á að skilja það? BABY DOLL: Nú, þú þekkir hann Bunny. Hann finnur eitthvað upp, krafsar upp nokkra h'luthafa, en svo fer allt í háaloft og hluthafarnir fara í mál. Og svo segir hann líka, að konan sín gangi með kvennaveiki. ARCHIE LEE: Eitthvað er bogið við þau öll, og ekki stíga þau í vitið, en þau hafa samt vit á því að sjá, að 'gamla konan fer að hrökkva upp af innan skamms, og enginn af þeim vill hafa hana upp á sér á meðan. BABY DOLL: Það er víst ekki fjarri sanni. ARCHIE LEE: Og ég sit uppi með hana. BABY DOLL: Engan æsing. ARCHIE LEE: Það á að hafa mig að fífli. BABY DOLL: Engan æsing, engan æsing. (Rósa frœnka raular hjá rósarunn- inum). ARCHIE LEE: Komdu þá kerlingunni á einhvern af þeim hinum. BABY DOLL: Hvert þeirra, Ardiie Lee? ARCHIE LEE: Eni-mini-mæni-mó. — Mó getur hirt hana. BABY DOLL: Hver ykkar er þá „Mó?“ ARCHIE LEE: Ekki ég. (Rósa frœnka höktir hægt og gætilega me'ð skærin sín kringum rósarunnann og raular fyrir munni sér. Línur úr erindinu hlandast viS samtaliö, sem fram fer á veróndinni. Blátt rökkur Imígur yfir gar'öinn, en rósarunninn er umluktur bjartara Ijósi). ARCHIE LEE: (meö trúarlegum fjálgleik). Sumir fá þessa langvinnu sjúkdóma og þurfa að taka morfín. Mér er sagt að morfín sé rándýr skratti. BABY DOLL: Sumir hjara endalaust, þó þeir taki morfín. ARCHIE LEE: Og það í stórum skömmtum? BABY DOLL: Já, þó þeir taki það í stórum skömmtum. ARCHIE LEE: Segjum að gamla konan mjaðmarbrotnaði eða eitthvað, eitthvað sem morfín þyrfti við. BABY DOLL: Hitt fólkið mundi verða að hlaupa undir bagga með okkur. ARCHIE LEE: Já, reyndu nú að ná eyris virði út úr honum Jim, bróður þínum! Eða þeim Susie, Tom og Bunny! Þau eru öll samansaumuð kvikindi. Þau velta hverjum eyri fyrir sér, þangað til þau mega til! BABY DOLL: Þau hafa ekki úr miklu að moða og reyna að halda í sitt. ARCHIE LEE: Ja, ef til þess kæmi, ef svo færi að hún hrykki upp af hjá okkur, Skal ég vara þig við einu — (silast á fœtur og spýtir yfir brjóstriöið). Eg læt hrenna hana og setja öskuna í Kóka-kólaflösku — (hlammar sér niöur aftur) nema fólkið þitt snari út fyrir kistu! (Rósa frœnka hefur klippt nokkrar 'ósir og skjögrar nú meö þœr í áttina aö dyrunum); Hérna kemur hún aftur. Talaðu nú við hana.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.