Stefnir - 01.06.1955, Page 75

Stefnir - 01.06.1955, Page 75
SKAMMGÓÐ VIST 73 RÓSA FRÆNKA: Æ, framtiðina! Nei-nei. Þegar meykerling er orðin um nirætt, virðist óþarfi að gera mikið veður út af framtíðinni, heillin. Oft hef ég undr- azt, en þó aldrei efast______ (Rödd hennar dvínar og ómur aj lagi heyrist um leiö og hún snýr sér frá veröndinni). Jesús hefur aldrei yfirgefið mig! Nei, blessaður frelsarinn hefur ekki gleymt mér! Hvorki ég né þú, Baby Doll, vit- um um tímann, en Hann þekkir hann, og þegar hann kemur, mun hann kalla mig. Vindur mun koma af himni og lyfta mér og taka mig með sér, eins og hann tekur rósirnar, þegar þær eru orðnar eins og ég er............ (Músikkin. hljóönar og hún snýr sér jrá veröndinni). BABY DOLL: (ræskir sig aftur). Það er allt í lagi með það, Rósa frænka, að treysta á Jesú, en við verðum að muna það, að Jesús hjálpar aðeins þeim, sem — ja — hjálpa sér sjálfir! RÓSA FRÆNKA: 0, ég veit það, Baby Doll! (Hún hlœr). Ójá, ég lærði það í vöggunni. Ég hugsa að ág hljóti að hafa lært það áður en ég fæddist. Já, hef ég nokkurn tíma verið hjálparlaus? Ég gæti talið veikindadaga mina á fingrum mér, þá daga, sem ég hef ekki verið á fótum og eitthvað að snúast. Blessaður frelsarinn hefur haldið mér heilli og starfandi, starfandi og heil- brigðri, já, ég er hreykin af því, að hafa ekki orðið öðrum til byrði með ell- inni. Og þegar sá tími kemur, að ég þarf að styðja mig við Hann — (Archie Lee snýr sér vvó meS þjósti). ARCHIE LEE: Allt þetta tal um Jesú og illa soðið grænmeti og þess háttar kemur alls ekki málinu við. Sjáðu nú til, Rósa frænka. — BABY DOLL: (stendur á fœtur). Archie Lee, viltu halda þér saman eitt andar- tak? ARCHIE LEE: Talaðu þá út! Og skýrt! Hvað ertu eiginlega að tvínóna við þetta? BABY DOLL: Það er hægt að ræða um hlutina á fleiri en einn veg! ARCHIE LEE: Jæja, hafðu þig að iþví, og hættu þessu Jesú tali. Það er Súsie, það er Jim, það er Tom og Jenní og það er Bunny! Og ef enginn þeirra hentar henni, þá eru hæli í héraöinu, sem vilja taka hana! Láttu hana bara ákveða á hvert þeirra hún vill fara. Strax í fyrramálið ætla ég að setja skranið hennar á bílinn og aka með hana þangað sem hún kýs sér! Er það ekki ein- faldara, en að vappa svona eins og köttur kringum heitan graut? Rósa frænka er með fullu ráði. Hún veit hvað mörg herbergi eru hérna í húsinu! Hún veit, að ég er taugaveiklaður. Hún veit, að ég þarf að vinna og að verka- maður þarf að fá sinn mat! Hann á sitt hús og vill hafa það eftir sinu höfði! Jesús almáttugur, ef þetta er ekki einföld og sanngjörn lausn á máiinu, skal ég þvo hendur mínar og láta ykkur tvær um að ráða ráðum ykkar! Já, ég skal — fari það í helvíti —! (Hann strunsar inn , skellir hurSinni á eftir sér. ÞaS er löng þögn og Baby Doll horfir vandræSalega út í bláinn, en Rósa frænka starir á lukta hurSina). RÓSA FRÆNKA: (aS lokum). Ég héit, að þið krakkarnir væruð ánægð með matreiðsluna mína. (Blátt rökkur hefur hnigiS yfir garSinn. Rósa jrœnka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.