Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Síða 149
147 -
Eins og fram kemur í vottorði Kjartans R. Guðmundssonar, þá var
slasaði sendur á taugaskurðdeild Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn
og þar dvaldist hann frá 5. -15. febr. 1969. Sjúkdómsgreining
spítalans samkvæmt afriti af læknabréfi er, Concussio medullae
spinalis cervicalis.
Engin skurðaðgerð var gerð á sjúkrahúsinu, en æfingameðferð ráð-
lögð.
Eins og fram kemur í vottorði taugasjúkdémadeildar, sem fyrr grein-
ir, þá var slasaði fluttur á Reykjalund hinn 22. mars 1969. Það
liggur fyrir vottorð Hauks Þórðarsonar, yfirlæknis þar, dags.
16. júlí 1971, þar sem lýst er ástandi slasaða og árangri æfinga-
meðferðar, en ekki kemur glögglega í ljós, hve lengi slasaði
dvaldist á Reykjalundi. Vottorð Hauks Þórðarsonar er svohljóðandi:
"G.S-son, f. ... 1938, ókvæntur, áður matsveinn, ..., Reykjavík,
p.t. Flókadeild.
Ofangreindur maður biður um, að upplýsingar séu samanteknar varð-
andi veikindi sín, einkum breytingar, sem orðið hafa á honum hina
síðari mánuði.
Það vísast til upplýsinga, sem fyrir ættu að liggja, frá taugasjúk-
dómadeild Landspítalans og geðdeild Borgarspítalans. Hann lá á
fyrrnefndum spítala 6. ágúst 1968 - 5. febrúar 1969, og aftur frá
15. febrúar til 22. mars 1969, en í millitíðinni var hann á tauga-
sjúkdómadeild Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn. Á Borgarspítala lá
hann frá 8. ágúst til 16. nóvember 1970. Hann hefur verið á Flóka-
deild Kleppsspítalans undanfarna mánuði.
Um er að ræða afleiðingar af áverka á hálsmænu, sem valdið hafa
truflunum á hreyfingu útlima.
Líkamsástand hans er í stuttu máli eftirfarandi:
Tonus er mjög aukinn í öllum útlimum, sinareflexar snarpir og aukn-
ir hvarvetna, framkalla má clonus í ökklum. Vöðvaafl er almennt
mjög gott í beinu átaki, nema í framhandleggjum og höndum. Þannig
hefur hann ekki sterkt grip, á reyndar erfitt með að opna grip
eftir að hann hefur tekið fast á. Hins vegar fást góðir kraftar
Þegar reynt er á ákveðna vöðva í höndum og fingrum. Vegna hins
aukna tonuss eru hreyfingar allar færðar stirðlega og hægt,
rigiditet er talsvert. Hann gerir fingur-nef próf óörugglega og
hittir frekar illa á nefbrodd, en það er enginn titringur á fingri.
Hann gerir betur hæl-hnépróf. Göngulag er spastiskt og einnig
ataktiskt, en hinn fyrri komponent er meira áberandi. Húðskyn
fyrlr snertingu og sársauka er greinilega minnkað, en hvergi alveg
horfið fyrir neðan C 5 markið. Hann virðist ekki hafa titrings-
skyn, en þar er byggt á upplýsingum hans sjálfs. Hann þekkir
stærri hluti, sem settir eru £ lófa hans án þess að hann sjái.
Hita- og kuldaskyn ekki prófað. Hann getur gengið á tám og á hælum
Hann á vont með að ganga hratt, en við göngu heldur hann yfirleitt
sama hraða og er gangur eins og áður segir, spastiskur, ataktiskur
og luralegur, þunglamalegur. Tal er eðlilegt. Heilataugar eðlileg
ar.