Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Page 170
168
Læknirinn skýrir svo frá, að hann hafi skoðað sóknaraðila 15. jan.
1970 og talið hana þá komna 6-7 vikur á leið. Hafi hann vísað
henni til sérfræðings í kvensjúkdómum. Hann kveðst hafa skráð hjá
sér, að sóknaraðili hafi síðast haft blæðingar 25. -30. nóvember
1969, og búast mætti við fæðingu í ágústlok eða 2.-7. sept. 1970.
Hinn 26. maí 1970 kveðst læknirinn hafa skoðað sóknaraðila og þá
skráð, að hún væri komin rúma 6 mánuði á leið, fósturhreyfinga hafi
orðið vart 28. apríl 1970. Rannsókn hafi leitt í ljo's höfuðstöðu
fósturs og góð fósturhljóð.
í málinu liggur fyrir bréf Fæðingardeildar Landspítalans, dags.
31. ágúst 1973, undirritað af Pétri H.J. Jakobssyni yfirlækni, svo-
hljóðandi:
"X, fædd ... 1954, búsett ..., Keflavík, ógiftur nemandi, kom til
undirritaðs til læknisskoðunar þann 3. febrúar 1970. Hún sagðist
hafa haft reglulegar tíðir seinast miðjan nóvember 1969 og samfarir
15. desember 1969. Hafði aldrei áður verið barnshafandi, og við
skoðun á fjölgunarfærum er ekkert óeðlilegt að finna, nema að legið
er að stærð og mýkt svarandi til 8-9 vikna meðgöngut íma.
Samkvæmt venjulegum reikningum um meðgöngutíma var samkvæmt sein-
ustu tíðum að vænta fullburða fæðingar seint í ágúst. ... ljósmóðir
vottar fæðingu hjá X á Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs þann
... júlí 1970 lifandi sveinbarns, sem vó 2300 g, að lengd 48 cm.
Hugsanlegur getnaðartími X er frá byrjun desember 1969 og síðan
geta alltaf egglos eitthvað tafist, þannig að þá getur getnaður
orðið tilsvarandi seinna. Þyngd barnsins við fæðingu svarar til
þess að barnið hafi fæðst 4-5 vikum fyrir tímann, og þá væri áætl-
aður fullburðatími seint £ ágúst."
Málið er lagt fyrir læknaráð á þá leið,
að óskað er umsagnar um, hvort barnið Z, f ... júlí 1970, geti með
tilliti til framkominna vottorða lækna, verið ávöxtur samfara aðila
15. desember 1969.
Tillaga réttarmáladeildar um
Ályktun læknaráðs
Samkvæmt þeim læknisvottorðum, sem fyrir liggja, telur læknaráð,
að barnið Z, f. ... júlí 1970, geti verið ávöxtur samfara 15.12.69.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 27. júní
1974, staðfest af forseta og ritara 16. ágúst s.á. sem álitsgerð
og úrskurður læknaráðs.
7/1974
Hæstiréttur hefur með bréfi, dags. 2. maí 1974, skv. úrskurði,
kveðnum upp í Hæstarétti 30. apríl s.á., leitað umsagnar læknaráðs
í málinu nr. 37/1973: Stjórnarnefnd ríkisspítalanna, heilbrigðis-
ráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs gegn S.A-dóttur og
K.A-syni sjálfum og vegna ólögráða sonar þeirra A.K-sonar.
Málsatvik eru þessi:
Hinn ... ágúst 1964 fæddist S.A-dóttur og K.Á-syni, nú til heimilis
að ..., Reykjavík, sonur, sem hlaut nafnið Á. Snemma kom í ljós,