Þjóðmál - 01.12.2016, Side 8

Þjóðmál - 01.12.2016, Side 8
Alþingi. Á grundvelli kosningaúrslitanna og upplýsinga, sem fram komu á þeim fundum, afhenti ég formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni, umboð til stjórnarmyndunar. Viðræður undir forystu hans skiluðu ekki árangri. Formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, Katrín Jakobsdóttir, tók þá við stjórnarmyndunarumboði en aftur leiddu viðræður ekki til farsællar niðurstöðu. Þegar Katrín skilaði umboði til stjórnarmyndunar í síðustu viku lá ekki skýrt fyrir hver skyldi taka við því. Ég ákvað að bíða um stund með að stíga það skref, með hliðsjón af því að línur myndu hugsanlega skýrast án þess að einn stjórnmálaleiðtogi hefði umboðið á hendi. Fyrir slíkri ákvörðun eru ýmis fordæmi, má til dæmis nefna gang stjórnarmyndunarviðræðna árin 1987, 1983 og 1978. Raunin varð sú að formenn Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs ræddu saman um möguleika á myndun ríkisstjórnar þessara tveggja flokka með aðild þriðja stjómmálaflokksins eða fleiri flokka. Upp úr þeim viðræðum slitnaði en nánast um leið lýstu fulltrúar Bjartrar framtíðar, Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar þeim vilja sínum að ræða á ný myndun stjórnar þeirra flokka og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Fyrr í dag kallaði ég leiðtoga eða fulltrúa allra stjórnmálaflokka á þingi til fundar, leitaði álits þeirra á möguleikum til stjórnarmyndunar og því hver skyldi næst leiða hugsanlegar viðræður um myndun ríkisstjórnar. íframhaldinu boðaði ég Birgittu Jónsdóttur, þingflokksformann Pírata, á minn fund og fól henni umboð til stjórnarmyndunar. tÖHUW VIÐBUR^. , $k6gar4í'C ^“>L'a9U" ©S.oMÖM' 9 Nexu* !5^iM48urt'°r‘ g2.oW*b*r NYR VIÐBURÐAVEFUR FUNDIR OG RAÐSTEFNUR J3 TÓNLIST KVIKMYNDIR LEIKHUS MYNDLIST AÐRIR VIÐBURÐIR o SJÓNVARPSDAGSKRÁ - vinsælasti vefur landsíns Allt það helsta á einum stað 6 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.