Þjóðmál - 01.12.2016, Blaðsíða 22
Kolbrún Bergþórsdóttir ritstjóri hélt því fram í október 2012
að Samfylkingin hefði„unnið ötullega að þvísíðustu mis-
serin að flæma fólk frá fylgi við flokkinn"Hún veltiþvi fyrir
sérhvar hægri-kratar væru niðurkomnir, þvi þeir væru ekki
lengur velkomnir I Samfylkinguna.
hafa fellt sig við eftirmann sinn. Hallarbyltingin
mistókst en það munaði aðeins einu atkvæði.
Þótt formaðurinn hafi náð að verjast var hann
orðinn of veikur til að ná árangri. Það fjaraði
því hratt undan Samfylkingunni.
í fréttaskýringu Kjarnans 20. mars 2015
var ekki dregin upp fögur mynd af framtíð
Samfylkingarinnar:
„Augljóst er að formannsslagur Sigríðar
Ingibjargar og Árna Páls getur haft mikil
áhrif innan flokksins til framtíðar litið.
Einn viðmælenda Kjarnans sagðist líta á
formannsframboð Sigríðar Ingibjargar
sem„aðför úr launsátri" sem gæti skapað
djúpstæðan ágreining innan flokksins, á
versta tíma. Þar sem mikil hreyfing væri
á fylgi vinstra megin og við miðju í hinu
pólitíska landslagi. Slagurinn gæti komið
enn meiri hreyfingu á fylgið, og grafið
undan flokksstarfinu. Á móti gæti það
einnig gerst, að forystubreyting á þessum
tímapunkti myndi færa honum byr í segl,
en flestir viðmælenda voru sammála um að
það væru minni líkur en meiri á því."
Árni Páll ákvað að draga sig í hlé og
Oddný Harðardóttir var kjörin formaður í júní
2016. Hún náði engum árangri. Niðurstaða
kosninganna í október síðastliðnum var
niðurlægjandi. Samfylkingin rétt náði yfir
5%-þröskuldinn og fékk aðeins þrjá þing-
menn. Þetta þýðir að frá því að Samfylkingin
náði sínum besta árangri undirforystu
Össurar Skarphéðinssonar og að síðustu
kosningum sögðu liðlega átta af hverjum tíu
stuðningsmönnum skilið við flokkinn. Lík og
til að undirstrika niðurlæginguna á Samfylk-
ingin ekki þingmann á höfuðborgarsvæðinu.
Hvar eru hægri-kratar?
Fyrr á þessu ári var því fagnað að öld er liðin
frá því að Alþýðuflokkurinn var stofnaður.
Gamli flokkurinn er enn til með sömu
kennitölu og áður (420169-5829). Aldrei
fékk Alþýðuflokkurinn aðra eins útreið í
kosningum og Samfylkingin 2016. Minnsta
fylgi Alþýðuflokksins var 1974 - 9,1 %. Fjórum
árum síðar vann flokkurinn hins vegar góðan
kosningasigur með 22% atkvæða.
Strax eftir að Samfylkingin bauð fram
og varformlega stofnuð höfðu margir
„innfæddir" Alþýðuflokksmenn - kratar -
áhyggjur af stöðu þeirra innan hins nýja
flokks. Engu var líkara en hver af öðrum hyrfu
kratar af vettvangi og eftir stóð fólk sem
átti rætur í Alþýðubandalaginu og Kvenna-
listanum. Þótt Jóhanna Sigurðardóttir hafi
verið í Alþýðuflokknum hafði hún sagt skilið
við flokkinn eftir ágreining við Jón Baldvin
Hannibalsson og stofnað Þjóðvaka. Eftirað
hún varð forsætisráðherra og formaður, var
Ijóst Samfylkingin var að breytast og færast
lengra til vinstri.
Kolbrún Bergþórsdóttir hélt því fram í
október 2012 að Samfylkingin hefði„unnið
ötullega að því síðustu misserin að flæma
fólk frá fylgi við flokkinn." í pistli í Morgun-
blaðinu sagði Kolbrún meðal annars:
„Sem formaður Samfylkingar hefur
Jóhanna ótrauð fært flokk sinn til vinstri og
gert hann ómögulegan valkost fyrir þá sem
fylgja miðjustefnu eða eru hægri kratar...
Hófsamt og framfarasinnað fólk getur ekki
20 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016