Þjóðmál - 01.12.2016, Page 45
um auðlindir, framsal valds til alþjóðlegra
stofnana og þröskuld atkvæðisþærra manna
til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um
tiltekin lög. Því miðurtókst ekki að ná sátt
um þá vinnu sem unnin var þetta kjörtímabil,
að mestu vegna andstöðu þingmanna með
tengsl við stjórnlagaráð. Það er hins vegar
afar mikilvægt að nýtt þing Ijúki þeirri vinnu
á sömu forsendum og lagt var upp með eins
og leiðarahöfundur Fréttablaðsins bendir á.
Hvernig næst sátt um slíkt ferli er erfitt að
segja en við blasir að hugsanlega má horfa
til þeirra tillagna sem komu frá þeim Ágúst
ÞórÁrnasyni og Skúla Magnússyni í grein í
Fréttablaðinu fyrir skömmu. Þar var lagt til að
Alþingi samþykki langtímaáætlun, t.d. til 12
ára, um heildarendurskoðun stjórnarskrár-
innar þar sem vísað væri til helstu efnis-
legu forsendna endurskoðunar, svo sem
frumvarps stjórnlagaráðs og reynslunnar
af gildandi reglum. Hugsanlega má endur-
ræsa ferlið með slíkum aðgerðum ef víðtæk
samstaða næst um það. Óvíst er að það sé
gerlegt á meðan t.d. Píratar hafa þann þing-
styrk sem þeir hafa núna.
Sigurður Már Jónsson er upplýsingafulltrúi
rikisstjórnarinnar.
ALÞJÓÐAMÁL
Léttvæg arfleifð
Obama í utan-
ríkismálum
í tilefni af sigri DonaldsTrumps í forsetako-
sningunum í Bandaríkjunum 8. nóvember
ræddi Peter Foster, Evrópuritstjóri The Tele-
graph í Bretlandi, við lan Bremmer, banda-
ríska stjórnmálafræðinginn sem kynnti til
sögunnar hugtakið G-Zero til að lýsa veröld
án augljósrar vestrænnar forystuþjóðar til að
takast á við framtíðar-áskoranir.
Eftir Brexit og sigur Donalds Trumps finnst
mörgum að hættuleg umskipti hafi orðið -
hve miklar áhyggjur þurfum við að hafa?
Við ættum að hafa miklar áhyggjur af
framvindu alþjóðamála. Nú er Pax Ameri-
cana lokið - G-Zero hefur þokast nær á
löngum tíma, nú er það opinberlega komið
til sögunnar. Einn helsti kosturinn við að vera
risaveldi er að enginn getur skaðað þig meira
en þú sjálfur. Það er jafnframt einn af verstu
kostunum.
Við kynntumst þessu með yfirdrifnum við-
lan Bremmer er forseti Eurasia Group, alþjóðlegs ráðg-
jafafyrirtækis, og höfundur bókarinnar Superpower: Three
Choices for America's Role in the World.
Mynd: Dirk Eusterbrock
brögðum við 9/11 og hve mjög þau sköðuðu
Bandaríkin í augum alheimsins. Á einhvern
hátt tókst okkur að fara fram úr sjálfum okkur
í þessum kosningaslag og með því að kjósa
DonaldTrump.
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 43