Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 50

Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 50
Árið 1982 var 40% taprekstur af útgerð hérlendis, 13% tap árið 1983 og 19% tap árið 1984. Afli fór minnkandi vegna ofveiði samhliða því að gríðarleg umfram- framleiðslugeta var til staðar. Fiskmarkaðir þekktust ekki heldur var fiskverð ákveðið af opinberu verðlagsráði og millifærslukerfi. mokuðu afla á land og síðan var það mál landkrabbana að vinna fiskinn og selja. Vestfirðingarnir voru í þann tíma í harðri baráttu gegn kvótakerfinu. Þingmenn þeirra lögðu endurtekið fram tillögur um sóknarmark á Alþingi - síðast undir merkjum Frjálslynda flokksins. Óskynsemin í því kerfi ætti að vera augljós. Sóknarmarkið felur það í sér að fiskveiðarnar verða að kapphlaupi við tímann þar sem skipin fiska eins hratt og hægt er - en sitja þess á milli bundin við bryggju. En vestfirðingarnir áttu styst að sækja á miðin og áttu því hægast með að moka fiski á land auk þess að sóknarmarkið var í samræmi við gamla aflakóngs-hugar- farið að hugsa um kíló af lönduðum fiski en ekki lokaverðmæti aflans. Nú tæpum 30 árum síðar eru stóru Vest- fjarðaskipin - spíttbátar í yfirstærð - horfin og kvóti þeirra kominn annað. Fiskiðjan Skagfirðingur er aftur á móti eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins. Sjávarútvegnum hefur verið umbylt á þessum 30 árum - fókus fyrirtækjanna er nú á allri virðiskeðjunni fremur en moka fiski á land í kapphlaupi. Fiskiðjan var vitaskuld ekki ein - flestar norðlenskar útgerðir voru þá þegarfarnar að nýta sér kvótakerfið til þess að hámarka virði aflans sem fullunninnar vöru. Það var einmitt á þessum tíma sem hið gamalgróna iðnaðarsvæði í Eyjafirði gekk í endurnýjun lífdaga sem miðstöð fiskiðnaðar - og slorið tók við af ullinni. Þessar breytingar hafa þó verið hraðari en svo að þjóðarsálin hafi náð að fylgja þeim eftir, enda hefur þjóðmála- umræðan verið föst í fortíðinni - í rómantísk- um bábiljum þar sem sjávarútvegur snýst bara um veiðar. Jafnframt er talað líkt og góður árangur útvegsfyrirtækjanna sé eitthvert vandamál! Á sama tíma er Ijóst að kvótakerfið er ekki meitlað í stein. Það er mikil nauðsyn að gera kerfið markaðsvænna, eyða þeirri eignaréttarlegu óvissu sem ertil staðar við nýtingu heimildanna sem og þær pólitísku kvaðir sem enn liggja á kerfinu, s.s. hvað varðar stærð fyrirtækja. Og þá jafnframt þarft að skapa sátt um auðlindargjald. Gjaldþrota grein Þegar kvótakerfið kom fram í sinni fyrstu mynd árið 1984 var rekstur sjávarútvegs- fyrirtækja herfilegur. Árið 1982 var40% taprekstur af útgerð hérlendis, 13% tap árið 1983 og 19% tap árið 1984. Afli fór minnkandi vegna ofveiði samhliða því að gríðarleg umframframleiðslugeta vartil staðar. Fiskmarkaðir þekktust ekki heldur var fiskverð ákveðið af opinberu verðlagsráði og millifærslukerfi. Vegakerfi landsins var byggt upp af malarvegum er voru vanbúnir fyrir þungaflutninga. Verðbólga mældist í tugum prósenta. Greininni hafði um langan tíma verið haldið uppi með lánum á neikvæðum raunvöxtum en eftir að verðtryggingu var komið á árið 1979 fór að þrengja að mörgum skuldsettum fyrirtækjum. Hrun þorskstofnsins árið 1989 var síðan gríðar- legt áfall - útgerðin var á leiðinni á hausinn og við lá að hún myndi draga bankakerfið með sér. Níundi áratugurinn endaði því á stóru„beiláti" fyrir sjávarútveginn sem var með öðrum þræði„beilát" fyrir bankakerfið sjálft. En þá jafnframt varð sú mikilvæga breyting gerð að aflaheimildir urðu fram- seljanlegar árið 1990 sem skapaði grunn fyrir hagræðingu í greininni - að hin hagkvæmari fyrirtæki keyptu út þau lakari. Samhliða hafa sjávarútvegsfyrirtækin stækkað en jafnframt hefur stoðum verið skotið undir gríðar mörg lítil og sérhæfð fyrirtæki. Tilkoma kvótakerfisins var þó aðeins fyrsta skrefið í þá átt að snúa botnlausu 48 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.