Þjóðmál - 01.12.2016, Page 65
RÍKISFJÁRMÁL OG SKATTAR
„EITT MIKILVÆGASTA VERKEFNI RÍKISSTJÓRNARINNAR VERÐUR AÐ VINNA AÐ AFNÁMI
FJÁRMAGNSHAFTA EN GJALDEYRISHÖFTIN BJAGA EIGNAVERÐ OG DRAGA
ÚR SAMKEPPNISHÆFI ÞJÓÐARINNAR.
GREINA ÞARF EFNAHAGSSTÖÐU ÍSLENSKA ÞJÓÐARBÚSINS OG ÚTFÆRA ÁÆTLUN UM
AFNÁM HAFTA MEÐ HLIÐSJÓN AF MIKILVÆGI GJALDEYRISJÖFNUÐAR FYRIR LAND OG ÞJÓÐ.
SÉRSTAKLEGA ÞARF AÐ TRYGGJA TRAUSTA UMGJÖRÐ UM GJALDEYRISMARKAÐINN TIL
FRAMTÍÐAR OG SJÁ TIL ÞESS AÐ SKULDASKIL FALLINNA FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA ÓGNI EKKI
EFNAHAGSLEGUM STÖÐUGLEIKA."
Úr stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
LEIÐRÉTTINGiN
SKILVIRKT UMSÓKNARFERLI
OG FAGLEG AFGREIÐSLA
Einfalt var að taka þátt í leiðréttingunni og 91 þúsund
umsóknir voru samþykktar
www.leidretting.is
Sigurður Már Jónsson
Hverjir borguðu Leiðréttinguna?
- nokkur orð um bankaskatt, stöðugleikaskatt
og gerbreytta stöðu ríkissjóðs og heimila
Afnám fjármagnshafta með tilheyrandi
uppgjöri við slitabú fallina fjármálafyrirtækja
með fjármálastöðugleika að leiðarljósi
var án efa eitt af flóknari úrlausnarefnum
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks. Þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar tók við í maí 2013 var Ijóst
að hefja yrði þessa vinnu frá grunni. Fyrst
beið þó að ráðast í framkvæmd Leiðrétt-
ingarinnar en fjármögnun hennar var
tryggð með skatti á kröfuhafa bankanna eða
fjármálafyrirtæki í slitameðferð.
Um leiðog framkvæmd Leiðréttingar-
innar var kynnt var greint frá því að sérstakur
skattur á fjármálafyrirtæki, svokallaður
bankaskattur, hefði verið hækkaður verulega
og undanþága fjármálastofnana í slita-
meðferð frá skattinum verið afnumin. Gert
var ráð fyrir að breyting á bankaskattinum
myndi auka tekjur ríkissjóðs um 92 milljarða
króna á fjórum árum. Þannig yrði Leiðrétt-
ingin að fullu fjármögnuð.
Meðfylgjandi graf (bls. 68) sýnir tölur um
álagða skatta á slitabúin þessi tvö ár sem
þau fengu einhverja álagningu að ráði,
þ.e. 2014 og 2015 (vegna rekstrar 2013 og
2014). Árið þar á undan, þ.e. 2013 vegna
rekstrar 2012 greiddu þau mjög litla skatta
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 63